Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Maju Wiktoriu, 14 ára.

Maja er 156 cm. á hæð, grönn, með dökkt sítt hár. Hún er líklega klædd í grænbláan jakka eins og er á meðfylgjandi mynd, hvítar buxur og svarta skó.
Samkvæmt tilkynningu lögreglunner er Maja talin vera á höfuðborgarsvæðinu.

Þeir sem hafa upplýsingar um hvar hún heldur sig mega hafa samband við lögreglu í 112. Einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected] er athygli á því að það er refsivert að aðstoða barn í stroki skv. 193. gr. almennra hegningarlaga.































Athugasemdir