Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Þrír hafa dáið í höndunum á Kjartani Guðbrandssyni: „Hefur djúpstæð áhrif á mann“

Þrír hafa dáið í höndunum á Kjartani Guðbrandssyni: „Hefur djúpstæð áhrif á mann“

Kjartan Guð­brands­son einka­þjálf­ari og list­mál­ari hefur átt ótrú­legt lífs­hlaup og segir lífið og dauðs­föll í kringum sig hafi kennt sér að njóta hverrar mín­útu og fara ekki að sofa með óupp­gerða hluti eða eiga í ill­deilum við fólk. Kjartan, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar  segir dauð­ann vara stærsta kenn­ara sem til er:

„Ég hef haldið á þremur aðilum í hönd­unum sem hafa dáið og það er rosa­leg reynsla sem mótar mann og hefur djúp­stæð áhrif á mann,“ segir Kjartan, sem  var náinn vinur Jóns Páls Sig­mars­sonar og var með honum á æfing­unni þegar hann lést ungur að aldri:

„Ég labba inn í sal í ein­hverri leiðslu og þá liggur Jón Páll þar og hafði greini­lega dottið aftur á bak eftir ein­hvers konar aðsvif. Við vorum þarna þrír að reyna að blása í hann lífi. Ég man að sjúkra­bíll­inn var mjög fljótur á stað­inn, en þetta er enn í móðu eins og ég segi, skugga­legt atvik. Gym 80 var á frá­bærri leið þegar Jón Páll fór. Þetta var gríð­ar­legt sjokk og eig­in­lega svo mikið sjokk að ég náði mér bara ekk­ert eftir það. Þetta átti ekki að gera gerst. Ég fékk lexíu í því hvað dauð­inn kennir manni á þessu tíma­bili og það er ekk­ert sem kennir manni meira. Dauðinn kennir manni það að það er ekk­ert sjálf­sagt og þú skalt njóta hverrar mín­útu og hann kennir manni rosa­lega öfl­uga lexíu sem er að ganga til hvílu að kvöldi án þess að eiga í ill­deilum við fólk. Það er ekk­ert til verra en óupp­gerðir hlutir við fólk sem fer.“

Kjartan, sem er lík­lega eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur sigrað keppnir í vaxt­ar­rækt, kraft­lyft­ingum, afl­raunum og fit­ness. Hann byrj­aði mjög ungur að æfa með Jóni Páli Sig­mars­syni, marg­földum sterkasta manni heims. Kjartan segir að Jón Páll Sig­mars­son hafi verið gjör­sam­lega ótrú­legur maður í alla staði:

„Jón Páll var rosa­leg fyr­ir­mynd. Ég var svo hepp­inn að fá að ferð­ast með honum og sjá hvað hann var vin­sæll erlendis. Hag­mæltur, fynd­inn, fljótur að hugsa. Hann var með allan pakk­ann. Ofboðs­lega aðlað­andi maður, góður karakter og góður vinur. Hann nýtti sína orku í ofur­mann­legan ,fókus og setti allt í að verða bestur,“ segir Kjartan, sem seg­ist aldrei gleyma atvik­inu þegar Jón Páll fékk hann til að rífa niður veggi í upp­bygg­ing­unni á Gym 80.

„Þessi hug­mynd með Gym 80 vakn­aði bara á rúnt­inum og úr varð mjög mögnuð stöð. Ég gleymi því aldrei þegar það þurfti að brjóta vegg­ina áður en stöðin opn­aði af því að þarna var bara íbúð áður. Hann hringir í mig og við mætum með kúbein niður eftir. Hann byrjar með kúbeinið, en svo bara gafst hann upp á kúbein­inu og byrjar að hlaupa niður vegg­ina og gefa frá sér rosa­leg hljóð. Hann var 140 kíló þarna og þetta var eins og í Marvel mynd. Það vant­aði bara merkið framan á hann, því hann hafði allt, alla vöðvana og lúkkið og allt saman.“

Kjartan, Bubbi Morthens og Jón Páll Sig­mars­son voru allir miklir áhuga­menn um hnefa­leika. Það var ekki hlaupið að því að sjá bar­dag­ana á þessu tíma og því oft gripið á það ráð að leita að ein­hverjum með gervi­hnött. Kjartani er sér­lega minnistætt þegar þeir félag­arnir horfðu á Mike Tyson tapa í fyrsta sinn:

„Það var magnað atriði þetta til­tekna kvöld, þegar Mike Tyson tapar í fyrsta skipti á móti Buster Douglas. Við höfðum verið að leita að stað til að horfa á bar­dag­ann og höfum loks upp á manni sem vart vert á Kaffi Óperu sem átti flott heim­ili og var með gervi­hnatta­sjón­varp og við fáum að fara heim til hans að horfa. Konan hans var ein Heima þetta kvöld og hún opn­aði fyrir okkur og fór svo bara upp á háa­loft. En þessi bar­dagi var rosa­legur og smám saman eykst hávað­inn í okkur. Þegar konu­greyið kemur aftur niður stig­ann klukkan fjögur um nótt þá er Tyson í gólf­inu og það er verið að telja. Bubbi er hopp­andi uppi í sófa og segir aftur og aftur: „Hann sló hann niður, hann sló hann niður!“ Á sama tíma er Jón Páll kom­inn úr að ofan og allur rauður og sveittur, enda fljótur að hitna, 140 kíló­gramma fjallið. Þegar hún sér okkur þrjá í þessum ham var hún fjót að læð­ast upp aftur án þess að segja neitt. En þetta var algjör­lega frá­bær tími og útsend­ing­arnar þar sem Bubbi og Ómar Ragn­ars­son voru saman að lýsa þessum bar­dögum eru algjör­lega „legend­ary” dæmi.“

Kjartan hefur upp­lifað ótrú­lega hluti í gegnum tíð­ina og tekið þátt í alls kyns hlutum. Árið 2016 var hann feng­inn í sér­stakt verk­efni, þegar honum var boðin full vinna í London við að einka­þjálfa dul­ar­fulla mold­ríka konu:

„Mér var boðin vinna í Equinox í London og það var klapp á bakið fyrir mig, af því að þetta er fyrir mér eitt allra besta „gym“ í heimi. Þetta var árið 2017 og ég var feng­inn í að þjálfa eina rúss­neska í prufu­verk­efni. Ég brun­aði til London og mass­aði pruf­una, en hún var ekki alveg til­búin í verk­efnið. Þetta var búlgarskur Rússi [Ruja Ignatova]. Hún var í braski með raf­mynt (OneCoin) og hafði náð svaka hæðum þar og átti bunka af aurum og lifði hátt. Hún var með líf­verði og alls konar fólk í kringum sig og svo var ég þjálf­ar­inn þarna ein­hvers staðar á „standby“ á Hilton hót­el­inu og ég þoli það ekki til lengdar. Hún var ekki alveg til­búin í það pró­gramm sem ég ætl­aði henni. Ég nenni ekki að vera á launum við að gera ekki neitt, ég hef prófað það áður. Ég var á launum við að gera nán­ast ekki neitt. Ég kíkti í gym­mið og rölti um Kens­ington og fékk mér eitt­hvað að borða og svo leið bara tím­inn. Ég vildi sjá hvort hún myndi hrökkva í gír­inn, en eftir sex eða sjö vikna æfinga­törn sem var frekar dræm, þá tók ég fund og ákvað að við myndum reyna að hitt­ast seinna og gera þetta betur þegar hún væri til­búin. En nú skilst mér að hún sé bara horfin af yfir­borði jarðar. Annað hvort var hún mafíu­tengd eða ein­hver hefur látið hana hverfa. Eða að hún hafi sjálf látið sig hverfa með ein­hvern pen­ing, en eng­inn veit neitt virð­ist vera. Þetta var tals­vert öðru­vísi verk­efni en ég er vanur,“ segir Kjartan.

Ruja hafði náð ótrú­legum hæðum í braski með raf­mynt­ina á heims­vísu áður en hún hvarf spor­laust í októ­ber árið 2017. Ekkert hefur spurst til hennar síðan, þó að lög­reglu­yf­ir­völd víðs vegar í heim­inum hafi reynt að hafa uppi á henni.

Í þætt­inum segir Kjartan alls kyns sögur, meðal ann­ars þegar hann gleymdi níu túpum af dýnamíti undir rúmi móður sinnar þegar hann var ung­lingur:

„Mamma er mér ofar­lega í minni núna, af því að dán­ar­dag­ur­inn hennar er nýlið­inn. Hún dó allt of ung og er mér ofar­lega í huga. Hún gerði sitt besta til að hemja okkur bræð­urna, en við vorum keng­brjál­aðir á köflum. Denni bróðir bjó erlendis, en kom heim reglu­lega. Eitt kvöldið kemur hann heim með skvísu og vill fá her­bergið mitt. Ég sagði honum að gleyma því og hann reynir að múta mér, fyrst með ein­hverjum ólög­legum efnum í poka, en þegar það gekk ekki seg­ist hann geta látið mig hafa túbur af dýnamíti ef hann fái her­bergið og ég sam­þykkti það. Svo fór ég inn í her­bergi til mömmu og set dýnamítið undir rúmið og sofna við hlið­ina á henni. En svo gleymi ég því bara að það séu 9 túbur af dýnamíti undir rúmi hjá mömmu. Ef það hefði farið af stað hefði það lík­lega sprengt hálfa blokk­ina!“

Kjart­an hefur und­an­farið getið sér gott orð fyrir mál­verk sín. Upphafið að því var þegar hann slys­að­ist til að mála of­ur­hetju­mynd­ir með syni sín­um í barna­her­berg­inu. Eftir það fór hann í Slipp­fé­lagið, keypti sér striga og byrj­aði að mála:

„Lífið snýst um að taka ákvarð­anir og ég ákvað bara að ég gæti gert þetta. Nú eru komin nokkur ár og  þetta hefur gengið vonum framar. Pabbi mál­aði, bróðir hans pabba og margir fleiri í ætt­inni, þannig að það er mynd­list í ætt­inni og ég hef alltaf haft áhuga. Þegar ég kem heim til ein­hvers tek ég strax eftir því hvað er á veggj­unum. Ég byrj­aði bara að æfa mig og svo hefur þetta vaxið smátt og smátt og það er komin eft­ir­spurn í þetta. Af því að ég er ekki lærður fæ ég ekki inni í gall­er­í­unum hérna heima, en nýlega hafði Gallerý í San Fransisco sam­band við mig og við náðum samn­ingum um að þeir keyptu af mér slatta af myndum. Það er búið að flytja þær út og flestar mynd­irnar eru þegar seldar og þeir vilja nán­ara sam­starf. Það er mikil við­ur­kenn­ing og mjög gaman fyrir mig. En aðal­lega finnst mér gaman að mála og von­andi skil ég ein­hverja jákvæðni eftir á strig­anum. Gjöfin að geta skilið eitt­hvað gott eftir sig í líf­inu er það mik­il­væg­asta fyrir hjartað.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Kjartan og öll við­töl og podcöst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ