Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Félagsmálaráðherra hunsar beiðni um fund vegna Gaza: „Þögn þín ærandi!“

Félagsmálaráðherra hunsar beiðni um fund vegna Gaza: „Þögn þín ærandi!“
Athugið, myndin er sam­sett.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála og vinnu­mála­ráð­herra hunsar ítrek­aðar beiðnir um fund með Semu Erlu Serdaroglu og Hjálmtý Heiðdal um stöðu Palest­ínu­fólks á Íslandi, sem fengið hefur sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu, Solaris, félags­ins Ísland – Palest­ína og No Borders.

Sema Erla Serdaroglu hjá Solaris hjálp­ar­sam­tök­unum segir frá því á Facebook að þann 29. des­em­ber síð­ast­lið­inn hafi þau Hjálmtýr Heiðdal sent form­lega beiðni um fund til Guð­mundar Inga, félags­mála­ráð­herra, fyrir hönd Palest­ínu­fólks á Íslandi sem hefur fengið sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu, félags­ins Ísland – Palest­ína, Solaris og No borders. Þá hafi þau sent ítrekun þann 3. jan­úar er engin svör höfðu borist og svo aftur í gegnum opið bréf sem birt­ist á Vísi 5. jan­úar. Í gær, 7. jan­úar er færsla Semu birt­ist hafði enn ekk­ert svar borist við beiðn­inni og því skrif­aði hún á Facebook og merkti ráð­herr­ann inn.

„Málið varðar líf fólks og þolir hrein­lega ekki meiri bið!“ skrifar Sema Erla og heldur áfram: „Eins og vitað er, þá er hér á landi hópur af Palest­ínu­fólki sem hefur fengið sam­þykkt dval­ar­leyfi fyrir fjöl­skyldu­með­limi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar á síð­ustu vikum og mán­uðum. Um er að ræða um 100 ein­stak­linga sem hafa fengið slík dval­ar­leyfi og ættu, eðli máls­ins sam­kvæmt, að vera löngu komnir til Íslands en þau eru hins vegar öll enn á Gaza þar sem þau eru í lífs­hættu á hverjum degi. Sum þeirra hafa ekki lifað bið­ina af.“

Þá segir hún að ómögu­legt sé að skilja stöðu Palest­ínu­fólks­ins á Gaza sem fengið hefur dval­ar­leyfi hér á landi. „Orðræða ráð­herra í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur verið með þeim hætti að ómögu­legt er að skilja hver staða Palest­ínu­fólks­ins á Gaza sem hefur fengið dval­ar­leyfi á Íslandi er, hvers vegna ekki sé búið að koma þeim frá Gaza þrátt fyrir að fjöldi ríkja sé að sækja fólk þangað nán­ast dag­lega og hvenær von er á þeim til lands­ins.“

Aukreit­ist segir Sema Erla að þau fáu svör sem ber­ist frá stjórn­völdum séu bæði óskýr og bygg­ist á ósann­indum. „Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir Palest­ínu­fólks og stuðn­ings­fólks þeirra til þess að fá skýr­ari mynd á málið frá stjórn­völdum er lítið um svör og þegar þau ber­ast eru þau mjög óskýr, byggð á ósann­indum og/eða til þess fallin að afvega­leiða umræð­una.“ Sema Erla minn­ist á tjald­búð­irnar sem settar voru upp fyrir framan Alþingi 27. des­em­ber síð­ast­liðnum, af örvænt­inga­fullum ætt­ingjum Gazabúanna sem mega koma til lands­ins en eru ekki sóttir. Segir hún engan ráð­herra hafi mætt til að ræða við tjald­bú­ana.

„Þessi óvirð­ing sem birt­ist í skorti á svörum við fyr­ir­spurnum þeirra og fund­ar­beiðnum, óskýr­leiki í sam­skiptum við Palest­ínu­fólk og aðgerða­leysi vegna yfir­stand­andi þjóð­ar­morðs er smán­ar­blettur á íslenskri stjórn­mála­sögu. Að ráð­herra í rík­is­stjórn, sem kjörin er af almenn­ingi, leyfi sér að svara bara ekki beiðni um fund frá sam­tökum, félögum og hópi fólks sem málið varðar, fólki sem stendur frammi fyrir því að verið er að þurrka þjóð þeirra út, er félags­mála­ráð­herra til ævar­andi skammar. Þögn þín ærandi!“

Spyr hún að lokum: „

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags­mála- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra

, ætlar þú ekki að svara beiðn­inni um fund? Ætlar þú bara að halda áfram að hunsa fólk sem er að reyna að koma ást­vinum sínum undan ítrek­uðum fjöldamorðum og þjóð­ern­is­hreins­unum? Í alvöru?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð