Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Sigríður Hrund býður sig fram til Forseta Íslands: „Hugsa, tala og framkvæmi í kærleika“

Sigríður Hrund býður sig fram til Forseta Íslands: „Hugsa, tala og framkvæmi í kærleika“
Sigríður Hrund. Mynd: Saga Sigurðardóttir

Enn bæt­ist við fram­boðs­lista til emb­ættis for­seta Íslands en Sigríður Hrun Pét­urs­dóttir fagnar fimm­tuga­af­mæli sínu með fram­boði.

Sigríður Hrund Pét­urs­dóttir, fjár­festir og fyrrum for­maður FKA, til­kynnir fram­boð sitt til emb­ættis for­seta Íslands í fimm­tugs­af­mæli sínu á Kjar­vals­stöðum í kvöld en veislan hefst klukkan 18:30.

Sigríður Hrund sendi Mannlífi fram­boðs­ræðu sína sem má lesa hér í heild sinni:

Fram­boðs­ræða Frú for­seta lýð­veld­is­ins Íslands

Náð og friður – verið hjart­an­lega vel­komin kæru vinir, vin­konur og vensla­fólk.

Ég verð stutt­orð og hnit­miðuð eins og sam­fé­lag nútím­ans er alsiða.

Það er stór­kost­legt að vera hér sam­an­komin á þessum ein­stöku tíma­mótum. Minn fagn­aður í dag er fimm ára­tuga fagn­aður. Fimm ára­tugir eru and­ar­dráttur í eilífð­inni og mik­il­vægt að lifa í núinu hverju sinni og iðka mennsk­una heils­hugar og af fullum krafti.

Heilmargt hefur gerst á fimm ára­tugum – jafn­rétt­islögin voru sett 1976, Íslend­ingar tróna sem jafn­rétt­is­meist­arar í alþjóða­þorp­inu 14 ár í röð en kynin þó hvergi nærri jöfn engu að síður og kynjum fjölgar, við klipptum tvö núll aftan af krón­unni árið 1981, en að vera með sjálf­stæðan gjald­miðil er eins og að róa á ára­bát á Atl­antsálum. Við höfum gengið saman í gegnum þjóð­ar­sátt, hrun, alheims­far­aldur, stríð sem okkur snertir og stór­fellda fólks­flutn­inga á heims­vísu, en Íslend­ingum hefur fjölgað jafnt og þétt á þessum ára­tugum eða um 10% að jafn­aði, en tvö­falt hraðar eða meira á síð­asta rúmum ára­tug eða nær 20%.

Arfleifð lands­manna stendur styrkum fótum, ekki síst innra með okkur, í okkar hjarta­lagi, enda hefur í ald­anna rás verið þétt setið í bað­stofum og fólk tekið inn og hlúð að þrátt fyrir fyr­ir­liggj­andi kröpp kjör. Þorpið okkar Ísland er vin­sælt og vel sótt og bland­ast hratt fjöl­breyti­leika og fjöl­menn­ingu. Það er ríki­dæmið okkar, það þarf þorp til að ala upp barn og við erum öll börn. 

Eyjan Ísland er fram­úr­skar­andi staður til að glíma við lífið. Landið ber öll merki þess að vera vel tengt nátt­úru­kröftum í lofti, láði og legi. Hér er ekki auð­velt að búa en þó höfum við það allra best í alþjóða­þorp­inu. Legu lands­ins vegna er það hlut­verk okkar að vera eins sjálf­bær sem fram­ast er kostur, það er sjálf­stæð­is­grunnur. Sjálf­bærni­hrað­all­inn er og verður verk­efni þess­arar þjóðar um ókomin ár. 

Á Íslandi búa og vill búa fólk sem þráir gott, öruggt líf þar sem mann­rétt­indi ríkja og eru í hávegum höfð. Friður. Friður í hjörtum þýðir friður í heimi. Friður í fjöl­breytni­sam­fé­lagi kallar á þol­in­mæði, þol­gæði, þraut­seigju og umburð­ar­lyndi. Að rísa yfir og iðka kær­leik­ann. Ein styrkasta stoð okkar sam­fé­lags er að hér gilda ein lög en iðk­aðir eru fjöl­margir siðir ólíkra menn­ingar- og trú­ar­heima.  Hér heyr­ast alls kyns útgáfur af íslensku, meira að segja ég tala með hreim – ég tala alltaf líf og ljós og aldrei last og hnjóð. Hugsa, tala og fram­kvæmi í kær­leika.

Það er kom­inn tími til að við sem þjóð og sam­fé­lag rísum saman upp og yfir. 

Val er vald og við erum þess megnug að geta skapað okkar eigin fram­tíð með því sem við veljum. Lifað sam­fé­lagið sem við þráum að búa í. Tekist þannig á við hverjar þær áskor­anir sem okkur mæta í sam­ein­ingu og sam­stöðu.

Við veljum frá létt­vægu hjómi, hjól­förum sem þjóna ekki lengur til­gangi sínum, meið­andi hugs­unum, orðum og hegðun sem tak­markar ljós ein­stak­linga og heftir för okkar sem sam­fé­lag. 

Við veljum kær­leik­ann í hví­vetna, við æfum okkur í mennsk­unni og öllu hennar fjöl­breytta lit­rófi. Við veitum rými til að vera mann­eskja og við elskum að skapa, rýna og end­ur­skapa í sífellu okkar dýr­mæta og fjöl­breytta sam­fé­lag. Á Íslandi hugsum við, tölum og fram­kvæmum í kær­leika. Og við æfum okkur linnu­laust með jákvætt við­horf í hví­vetna.

Það er kom­inn tími til að hér­lendis séu aftur notuð orðin Frú for­seti Íslands. 

Með gnægð sterkra marg­fald­ara að leið­ar­ljósi – kær­leika, von, náð, gleði og þakk­læti – og opið skín­andi hjarta til­kynni ég hér með fram­boð mitt til Frú for­seta Íslands í vor.

Ég kem ekki fyrir valdið, ekki fyrir met­orð eða hverf­ular vin­sældir, ég á ekki póli­tískt bak­land og ég kem ekki einu sinni fyrir sjálfa mig – heldur fyrir okkur öll. Allt sem ég upp­lifi og verð fyrir – hvatn­ingu, fram­gangi, hnjóði, lasti, umtali, kær­leika – munum við upp­lifa saman og verða fyrir. Ég kann ekki að vera fram­bjóð­andi, aðeins Frú for­seti – sem er afar ein­föld fyr­ir­mynd – að vera ég sjálf. Dýrmæt, ein­stök og fágæt – eins og við öll. Þetta verður stór­kost­leg sköp­un­ar­veg­ferð umlukin krafti, sam­stöðu og gleði.

Mér fylgja ófrá­víkj­an­lega þrenn grunn­gildi; lýð­ræði, tján­ing­ar­frelsi og jafn­ræði. Þau iðka ég eftir minni allra bestu getu hverju sinni enda tel ég þau horn­stein grósku­mik­ils sam­fé­lags. 

Lýðræði og tján­ing­ar­frelsi eru dýrum dómum keypt með manns­lífum. Þau eru best heiðruð með því að iðka þau, slá skjald­borg um og vernda átaka­laust. Það er hlut­verk okkar að standa upp og stíga fram, hvetja fólk áfram til dáða, rýna eigin kenndir og til­finn­ingar, hlusta á þorpið okkar í hinu smáa og stóra sam­hengi og feta þannig til­ver­una skref fyrir skref – en alltaf sam­ferða. 

Af hverju kem ég snemma fram með fram­boð? Af því á Íslandi er lít­ill sem eng­inn fyr­ir­sjá­an­leiki og stöð­ug­leiki í takt við veð­ur­far. Það er því skyn­sam­legt að skapa vissu og öryggi þegar kostur er. Nú höfum við rými og tíma til að kynn­ast og æfa okkur í þakk­læti fyrir okkar rétt­indi og að standa með sjálfum okkur.

Frú for­seti þjón­ustar allt lands­fólk óháð lýð­breytum – aldri, kynjum og upp­runa – með alúð og umhyggju fyrir hina við­kvæmu hópa sem ekki eru tekju­ber­andi; unga, aldna og sjúka og ekki síst þá dýr­mætu ein­stak­linga sem hingað leita en hafa ekki þegn­rétt­indi – ennþá. Alveg eins og gróska í listum er mæli­kvarði á ríki­dæmi sam­fé­lags þá er styrkur sam­fé­lags mældur best á því hvernig við hlúum að við­kvæmum hópum.

Hér er að hefj­ast lands­leikur – hér mun mæta lands­lið fram­bjóð­enda sem við fögnum, hvetjum og gefum rými til að vera og tjá sig – því þannig fáum við liðs­heild og það besta út úr hverjum og einum liðs­að­ila. Kjörað­stæður eru að lands­liðið end­ur­spegli þjóð­ina og sé blandað lýð­breytum sem aldri, kynjum og upp­runa. Þetta ein­staka tæki­færi til að rýna stöðu lands og þjóðar í fáeinar vikur ein­kenn­ist af sköp­un­ar­gleði,  stemn­ingu, von og þakk­læti. 1. júní fjöl­kvennum, mennum, kvárum við prúð­búin á kjör­staði, ég verð kosin Frú for­seti lýð­veld­is­ins Íslands, liðið faðm­ast, klappar upp í stúku, stúkan klappar til baka, Tólfan tekur loka húh og við förum glað­vær, táp­mikil og upp­lits­djörf inn í nýtt tíma­bil lands og þjóðar – heim að baka vöfflur með sultu og rjóma og kakó með rjóma – það er aldrei nóg af rjóma.

Miðlar mínir eru komnir af stað undir vef­síð­unni sigri­d­ur­hrund.is og snjall­miðlum Frú­For­seti.  Orð eru til alls fyrst – fínt að venja sig við nýyrði með iðkun.  Hér eru 3 ára­tugir fólks sem ekki hefur notað þessi orð og við hin dottin úr æfingu.

Eins og þróun sam­fé­lags og tungu­máls ber með sér – við sjá­umst og skjá­umst

Kær­leik­ur­inn ríkir – af því að það er okkar val og við byrjum í eigin hjörtum.

Náð og friður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð