Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ósátt við framkomu Félagsmálastofnunar: „Gæti alveg náð mér í mann og sagt að hann berði mig“

Ósátt við framkomu Félagsmálastofnunar: „Gæti alveg náð mér í mann og sagt að hann berði mig“
Reykja­vík – myndin teng­ist frétt­inni ekki beint Mynd: Reykjavíkurborg

Móður vant­aði aðstoð en fékk enga árið 1991.

„Þarf ég virki­lega að vera óheið­ar­leg, vera alkó­hólisti eða eiga mann sem lemur mig til að fá aðstoð Félags­mála­stofn­unar? Mér virð­ist það vera svo að ef maður er heið­ar­legur, vinnur sína vinnu og stendur í skilum eigi maður enga mögu­leika á aðstoð,“ sagði íslensk ein­stæð þriggja barna móðir í sam­tali við DV árið 1991. Hún hafði flutt til lands­ins 16 mán­uðum fyrr en hún hafði búið í eitt ár í Svíþjóð þar á undan. Hún leit­aði eftir hús­næð­is­að­stoð hjá Félags­mála­stofnun en fékk enga aðstoð og furð­aði sig á því.

„Stelpumar mínar þrjár vildu ekki búa úti svo við fluttum heim. En ég hef bara verka­manna­laun og hef ekki efni á að leigja á almennum mark­aði þannig að ég óskaði eftir hús­næð­is­að­stoð hjá Félags­mála­stofnun. Til að byrja með sam­þykkti Félags­mála­stofnun að taka þátt í leigu með mér og ég fékk íbúð á almennum mark­aði sem kost­aði 43 þús­und krónur á mán­uði. Við mæðgurnar vorum búnar að flytja og gera leigu­samn­ing en þá vildu þeir hjá Félags­mála­stofnun ekki hjálpa mér og sögðu aö ég væri með nokkur þús­und krónum of mikið í tekjur. Ég var með rétt rúm­lega 55 þús­und krónur í laun,“ sagði konan um málið. Samkvæmt kon­unni var henni sagt að allar íbúðir væru í útleigu en að hún væri á for­gangs­lista.

„Ég hef hins vegar fylgst með íbúðum sem hafa losnað og bent þeim hjá Félags­mála­stofnun á þær en ekk­ert ger­ist. Ég veit dæmi þess að kona sem bað um hús­næð­is­að­stoð hjá stofn­un­inni, því mað­ur­inn hennar berði hana og að þau væru skilin, fékk íbúð. En málið er að þótt þetta fólk sé skilið á papp­ír­unum er það ekki raunin. Maðurinn flutti með kon­unni inn í þessa íbúð og þau búa þar saman. Ég gæti alveg náð mér í mann og sagt að hann berði mig og þá kannski fengi ég íbúð. Eða ef ég drykki og færi í með­ferð þá fengi ég íbúð. Það er eins og það sé verið að reyna að ýta manni út í líf­erni sem maður ekki vill. Ef maður reynir að standa sig í líf­inu lok­ast allar dyr,“ en konan gekk á milli vina og ætt­ingja til að eiga þak yfir höfuð sitt og dætra hennar. Á 16 mán­uðum bjuggu þær á 12 mis­mun­andi stöðum.

„Mér finnst þetta furðu­legt kerfi sem vill ekki hjálpa þeim sem vilja hjálpa sér sjálfir en hjálpar þess í stað fólki sem jafn­vel segir ósatt og not­færir sér þetta,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni