Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Gunnar kemur til varnar Tómasi hjartalækni: „Það er ekki fréttamennska heldur lúaleg aðför“

Gunnar kemur til varnar Tómasi hjartalækni: „Það er ekki fréttamennska heldur lúaleg aðför“
Tómas Guð­bjarts­son er í sjúkra­leyfi

„Þessi fram­setn­ing er með ein­dæmum lúa­leg. Með þess­ari full­yrð­ingu tek ég undir með Óðni Jónssyni, fyrr­ver­andi frétta­stjóra Rúv, þar sem hann segir í athuga­semd við fés­bók­ar­færslu Magnúsar Karls: „Það er auð­vitað ekki boð­legt að vitna í ónafn­greinda ein­stak­linga til að grafa undan mann­orði nafn­greindrar per­sónu. Það er ekki frétta­mennska heldur lúa­leg aðför,“ skrifar Gunnar Ármanns­son lög­maður í aðsendri grein á Vísi um fram­göngu frétta­manna RÚV í umfjöllun í þætt­inum Þetta helst um Plast­barka­málið og aðkomu Tómasar Guð­bjarts­sonar hjarta­læknis að mál­inu. Í þætt­inum var farið hörðum orðum um Tómas og vitnað í níu nafn­lausa lækna.

Greinin ber yfir­skrift­ina Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður ekki mann? Þar er farið ítar­lega ofan í plast­barka­málið og aðkomu Tómasar hjarta­læknis. Gunnar tekur fram að hann þekki Tómas ekki per­sónu­lega.

„Kveikjan að umfjöllun í þætt­inum Þetta helst á Rúv er vænt­an­lega til­kynn­ing frá skrif­stofu for­stjóra LSH á heima­síðu þann 15.12. sl. og í fram­hald­inu umfjöllun í fjöl­miðlum um plast­barka­málið. Ástæða til­kynn­ing­ar­innar frá skrif­stofu for­stjóra virð­ist vera sú að lög­maður ekkju Andemariam Beyene, Sigurður Guðni Guð­jóns­son, sendi for­stjór­anum erindi þar sem hann óskaði þess að spít­al­inn myndi kynna erindið fyrir rík­is­lög­manni með það í huga að sátt yrði gerð um bætur til handa ekkj­unni með hans aðkomu,“ skrifar Gunnar.

Gunnar Árnason lög­maður.

Hann segir að nálgun þátta­stjórn­anda í þætt­inum Þetta helst komi á óvart og hljóti að kalla fram spurn­ingar um til­gang þátta­stjórn­and­ans, Þóru Tóm­as­dóttur, með nálgun sinni.

„Síðan skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kom út hefur fátt gerst annað í mál­inu en að grein sú sem birt var í Lancet um aðgerð­ina hefur verið dregin til baka og Macchiarini hefur nú hlotið tveggja og hálfs árs dóm í fang­elsi fyrir sinn þátt í mál­inu. Var hann fund­inn sekur um grófa lík­ams­árás. Var tekið fram í dómnum að ekki væri efast um að lækn­ir­inn hafi von­ast eftir því að aðferð hans myndi virka en engu að síður hefði hann hagað sér með sak­næmum ásetn­ingi. Rannsókn hefði sýnt að lækn­ir­inn hafi gert sér grein fyrir áhætt­unni og að aðferð sú sem hann beitti myndi valda sjúk­lingum lík­am­legum meiðslum og þján­ingum. Hann hafi hins vegar kært sig koll­óttan um áhætt­una,“ skrifar Gunnar.

Pöntuð umfjöllun?

Hann spyr, ljósi þess að lítið nýtt hafi komið fram, og alls ekk­ert sem varðar Tómas, af hverju er þá þessi áhersla þátta­stjórn­anda á stöðu Tómasar við Land­spít­al­ann.

„Ef það er svo að ein­hverjum líki ekki við Tómas eða hvernig hann hefur kosið að hafa sam­skipti við fjöl­miðla á und­an­förnum árum er þá hægt að panta umfjöllun á Rúv, nafn­laust, um þau sam­skipti og gera þau tor­tryggi­leg? Hvað hafa ýmis sam­skipti Tómasar við fjöl­miðla vegna ann­arra mála með plast­barka­málið að gera?“.

Paolo Macchiarini var dæmdur í fang­elsi vegna plast­barka­máls­ins.

Gunnar rifjar upp að Rann­sókn­ar­nefndin hafi meðal ann­ars tekið sam­skipti Tómasar við fjöl­miðla vegna plast­barka­máls­ins til sér­stakrar skoð­unar og skilað nið­ur­stöðu sinni um þau árið 2017. „Nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu, hvað varðar þennan þátt máls­ins, að Tómas hefði haft uppi vill­andi ummæli opin­ber­lega og gert með því hlut sinn í aðgerð­inni meiri en efni hafi staðið til. Það hafi síðan valdið því að í opin­berri umræðu hafi orðið óljóst hver ábyrgð Tómasar hefði verið við fram­kvæmd aðgerð­ar­innar, þegar fréttir bár­ust af því að öll opin­ber leyfi hefði skort fyrir fram­kvæmd hennar. Hér er rétt að staldra sér­stak­lega við,“ skrifar hann.

Orðalagið „við“

Gunnar telur nið­ur­stöðu nefnd­ar­innar varð­andi þennan þátt er alls ekki hafna yfir gagn­rýni hvað varðar þá ályktun að Tómas hafi gert sinn hlut meiri en efni hafi staðið til.

„Nefndin byggir þessa nið­ur­stöðu á því að Tómas hafi við­haft orða­lagið „við“ um þætti í með­ferð­inni sem hann hafi sjálfur ekki tekið þátt í eða ein­göngu horft á. Hér er rétt að hafa í huga að þeir þættir sem þarna ræðir um eru ekki flóknar lækn­is­fræði­legar aðgerðir heldur ein­föld lækn­is­fræði­leg fram­kvæmd eins og að taka stofn­frumur úr Andemariam eða bera þær á plast­bark­ann. Þá er sagt að hann hafi ekki tekið þátt í að taka slím­húð úr koki og festa inn á plast­ígræðið. Hins vegar átti hann, ásamt öðrum aðal­skurð­lækni, þátt í að gera aðgerð á Andemariam og ná út æxl­inu sem var mjög flókið verk­efni. Í því verk­efni voru margir við­staddir sem þó tóku ekki þátt í þeim hluta aðgerð­ar­innar. Með því að nota orðið „við“ um allan hóp­inn sem stóð að aðgerð­inni má þá alveg eins segja að Tómas hafi verið að gera hlut þeirra meiri en efni hafi staðið til,“ skrifar Gunnar.

Lagt að Tómasi

Lög­mað­ur­inn hrekur síðan, lið fyrir lið, und­ir­liggj­andi ásak­anir um ábyrgð Tómasar,

„Þá er rétt að hafa í huga að það stóð ekki til að Tómas tæki þátt í aðgerð­inni fyrr en með mjög stuttum fyr­ir­vara. Og til að byrja með neit­aði Tómas því að hann gæti tekið þátt þar sem hann væri upp­tek­inn við annað. Það var hins vegar lagt hart að honum að koma og taka þátt þar sem það var hann sem gerði aðgerð­ina á Andemariam árið 2009 og lok­aði honum eftir þá aðgerð. Macchiarini og stjórn­endur á Karol­inska háskóla­sjúkra­hús­inu ósk­uðu eftir aðkomu Tómasar. Hér er vert að hafa í huga að áður en fyrsti sjúk­ling­ur­inn í þessa aðgerð kom til sögu, Eritr­íu­mað­ur­inn Andemariam frá Íslandi, hafði Karol­inska Institu­tet (KI) með Karol­inska háskóla­sjúkra­húsið sem sam­starfs­að­ila, fram­tíð­ar­sýn sem hafði það að mark­miði í náinni fram­tíð, að geta gert þess konar aðgerðir sem voru gerðar. Þ.e. áður en Macchiarini kom til sög­unnar. KI hafði hins vegar þær vænt­ingar að Macchiarini myndi styrkja bæði klíníska og vís­inda­lega end­ur­nýj­un­ar­lækn­is­fræði (regener­ativ medicin). Það var við fram­an­greindar aðstæður sem full­trúi Sjúkra­trygg­inga á Íslandi lagði sér­stak­lega til að málið yrði tekið upp við stjórn­endur Land­spít­ala og var það gert og sam­þykkt,“ skrifar hann,

Land­spít­al­inn greiddi Tómasi laun og ferða­kostnað vegna aðgerð­ar­innar. Það hafði einnig þýð­ingu í þessu sam­hengi að fyrir lá að Tómas átti að sjá um eft­ir­lit á Íslandi eftir aðgerð­ina.

„Á þeim tíma sem aðgerðin var gerð voru engar grun­semdir um að Macchiarini væri svika­hrappur. Það hafði því eng­inn úr teym­inu sér­staka ástæðu til að reyna að aðgreina sig frá honum eða störfum hans. Því var ekki nein sér­stök ástæða fyrir nokkurn úr teym­inu að hafa fyr­ir­vara á aðkomu sinni að verk­efn­inu …,“ skrifar Gunnar.

Óljóst er hvenær Tómas snýr aftur úr til starfa úr sjúkra­leyfi

Hér má lesa grein Magnúsar í heild sinni:

Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður ekki mann?

Þessi fleygu orð Jóns Hregg­viðs­sonar úr Íslands­klukku Halldórs Kiljan Laxness flugu mér í hug eftir að hafa hlustað á þátt­inn Þetta helst á Ruv.is frá 3. jan­úar sl. Útgangs­punktur umfjöll­un­ar­innar er sagður sá að fjalla um stöðu Tómasar Guð­bjarts­sonar við LSH vegna „plast­barka­máls­ins“.

Ástæða þess að ég hlust­aði á þátt­inn voru skrif Magnúsar Karls Magn­ús­sonar, læknis og kenn­ara við lækna­deild HÍ, sem hann birti á fés­bók­ar­síðu sinni í til­efni umfjöll­unar þátt­ar­ins um stöðu Tómasar. Honum fannst umfjöll­unin ekki fag­leg og að skortur væri á vönd­uðum frétta­flutn­ingi um málið. Þar sem ég átti fyrir höndum kennslu 6. árs lækna­nema við HÍ um lækna og lög­fræði ákvað ég að lesa sjálfur ítar­lega og að flestra mati vand­aða skýrslu sér­stakrar rann­sókn­ar­nefndar undir for­sæti Páls Hreins­sonar um þann hluta máls­ins sem snýr að aðkomu íslenskra heil­brigð­is­starfs­manna og stofn­ana. Sú skýrsla kom út 6. nóv­em­ber 2017.

Kveikjan að umfjöllun í þætt­inum Þetta helst á Rúv er vænt­an­lega til­kynn­ing frá skrif­stofu for­stjóra LSH á heima­síðu þann 15.12. sl. og í fram­hald­inu umfjöllun í fjöl­miðlum um plast­barka­málið. Ástæða til­kynn­ing­ar­innar frá skrif­stofu for­stjóra virð­ist vera sú að lög­maður ekkju Andemariam Beyene, Sigurður Guðni Guð­jóns­son, sendi for­stjór­anum erindi þar sem hann óskaði þess að spít­al­inn myndi kynna erindið fyrir rík­is­lög­manni með það í huga að sátt yrði gerð um bætur til handa ekkj­unni með hans aðkomu.

Spít­al­inn vísar einnig til þess að í kjöl­far dóms yfir Paolo Macchiarini sl. sumar hafi spít­al­inn ákveðið að taka málið til umfjöll­unar að nýju með hlið­sjón af þætti spít­al­ans í með­ferð fyrsta sjúk­lings­ins sem und­ir­gekkst aðgerð hjá Macchiarini.

Það þarf ekki að koma á óvart að íslenskir fjöl­miðlar sýni mál­inu áhuga og rifji upp helstu atvik máls­ins enda hefur það vakið heims­at­hygli allt frá árinu 2011.

Nálgun þátta­stjórn­anda í þætt­inum Þetta helst kemur hins vegar á óvart og hlýtur að kalla fram spurn­ingar um til­gang þátta­stjórn­and­ans með nálgun sinni.

Síðan skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kom út hefur fátt gerst annað í mál­inu en að grein sú sem birt var í Lancet um aðgerð­ina hefur verið dregin til baka og Macchiarini hefur nú hlotið tveggja og hálfs árs dóm í fang­elsi fyrir sinn þátt í mál­inu. Var hann fund­inn sekur um grófa lík­ams­árás. Var tekið fram í dómnum að ekki væri efast um að lækn­ir­inn hafi von­ast eftir því að aðferð hans myndi virka en engu að síður hefði hann hagað sér með sak­næmum ásetn­ingi. Rannsókn hefði sýnt að lækn­ir­inn hafi gert sér grein fyrir áhætt­unni og að aðferð sú sem hann beitti myndi valda sjúk­lingum lík­am­legum meiðslum og þján­ingum. Hann hafi hins vegar kært sig koll­óttan um áhætt­una.

Í ljósi þess að lítið nýtt hefur komið fram, og alls ekk­ert sem varðar Tómas, af hverju er þá þessi áhersla þátta­stjórn­anda á stöðu Tómasar við LSH?

Ef það er svo að ein­hverjum líki ekki við Tómas eða hvernig hann hefur kosið að hafa sam­skipti við fjöl­miðla á und­an­förnum árum er þá hægt að panta umfjöllun á Rúv, nafn­laust, um þau sam­skipti og gera þau tor­tryggi­leg? Hvað hafa ýmis sam­skipti Tómasar við fjöl­miðla vegna ann­arra mála með plast­barka­málið að gera?

Rann­sókn­ar­nefndin tók m.a. sam­skipti Tómasar við fjöl­miðla vegna plast­barka­máls­ins til sér­stakrar skoð­unar og skilað nið­ur­stöðu sinni um þau árið 2017. Nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu, hvað varðar þennan þátt máls­ins, að Tómas hefði haft uppi vill­andi ummæli opin­ber­lega og gert með því hlut sinn í aðgerð­inni meiri en efni hafi staðið til. Það hafi síðan valdið því að í opin­berri umræðu hafi orðið óljóst hver ábyrgð Tómasar hefði verið við fram­kvæmd aðgerð­ar­innar, þegar fréttir bár­ust af því að öll opin­ber leyfi hefði skort fyrir fram­kvæmd hennar. Hér er rétt að staldra sér­stak­lega við. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar um þennan þátt er alls ekki hafin yfir gagn­rýni hvað varðar þá ályktun að Tómas hafi gert sinn hlut meiri en efni hafi staðið til. Nefndin byggir þessa nið­ur­stöðu á því að Tómas hafi við­haft orða­lagið „við“ um þætti í með­ferð­inni sem hann hafi sjálfur ekki tekið þátt í eða ein­göngu horft á. Hér er rétt að hafa í huga að þeir þættir sem þarna ræðir um eru ekki flóknar lækn­is­fræði­legar aðgerðir heldur ein­föld lækn­is­fræði­leg fram­kvæmd eins og að taka stofn­frumur úr Andemariam eða bera þær á plast­bark­ann. Þá er sagt að hann hafi ekki tekið þátt í að taka slím­húð úr koki og festa inn á plast­ígræðið. Hins vegar átti hann, ásamt öðrum aðal­skurð­lækni, þátt í að gera aðgerð á Andemariam og ná út æxl­inu sem var mjög flókið verk­efni. Í því verk­efni voru margir við­staddir sem þó tóku ekki þátt í þeim hluta aðgerð­ar­innar. Með því að nota orðið „við“ um allan hóp­inn sem stóð að aðgerð­inni má þá alveg eins segja að Tómas hafi verið að gera hlut þeirra meiri en efni hafi staðið til. Um er að ræða teym­is­vinnu margra þar sem hlut­verk hvers og eins er vel skil­greint fyr­ir­fram og því eðli­legt að með­limir hóps­ins tali um sig sem slíkan, þ.e. sem hluta af hópi. Það hefði í raun verið bein­línis skrítið ef svo hefði ekki verið gert í almennri frá­sögn heldur hefði hver og einn af hóp­með­limum farið að skil­greina nákvæm­lega í hverju hann tók þátt og hverju ekki.

Þá er rétt að hafa í huga að það stóð ekki til að Tómas tæki þátt í aðgerð­inni fyrr en með mjög stuttum fyr­ir­vara. Og til að byrja með neit­aði Tómas því að hann gæti tekið þátt þar sem hann væri upp­tek­inn við annað. Það var hins vegar lagt hart að honum að koma og taka þátt þar sem það var hann sem gerði aðgerð­ina á Andemariam árið 2009 og lok­aði honum eftir þá aðgerð. Macchiarini og stjórn­endur á Karol­inska háskóla­sjúkra­hús­inu ósk­uðu eftir aðkomu Tómasar. Hér er vert að hafa í huga að áður en fyrsti sjúk­ling­ur­inn í þessa aðgerð kom til sögu, Eritr­íu­mað­ur­inn Andemariam frá Íslandi, hafði Karol­inska Institu­tet (KI) með Karol­inska háskóla­sjúkra­húsið sem sam­starfs­að­ila, fram­tíð­ar­sýn sem hafði það að mark­miði í náinni fram­tíð, að geta gert þess konar aðgerðir sem voru gerðar. Þ.e. áður en Macchiarini kom til sög­unnar. KI hafði hins vegar þær vænt­ingar að Macchiarini myndi styrkja bæði klíníska og vís­inda­lega end­ur­nýj­un­ar­lækn­is­fræði (regener­ativ medicin). Það var við fram­an­greindar aðstæður sem full­trúi Sjúkra­trygg­inga á Íslandi lagði sér­stak­lega til að málið yrði tekið upp við stjórn­endur Land­spít­ala og var það gert og sam­þykkt. Land­spít­al­inn greiddi Tómasi laun og ferða­kostnað vegna aðgerð­ar­innar. Það hafði einnig þýð­ingu í þessu sam­hengi að fyrir lá að Tómas átti að sjá um eft­ir­lit á Íslandi eftir aðgerð­ina.

Á þeim tíma sem aðgerðin var gerð voru engar grun­semdir um að Macchiarini væri svika­hrappur. Það hafði því eng­inn úr teym­inu sér­staka ástæðu til að reyna að aðgreina sig frá honum eða störfum hans. Því var ekki nein sér­stök ástæða fyrir nokkurn úr teym­inu að hafa fyr­ir­vara á aðkomu sinni að verk­efn­inu. Það að í ljósi sög­unnar hafi það orðið tíma­bundið óljóst hver ábyrgð hvers og eins úr teym­inu væri á ein­stökum verk­efnum við aðgerð­ina skiptir í raun og veru engu sjálf­stæðu máli hvað varðar hina end­an­legu ábyrgð. Hún skýrð­ist við rann­sókn máls­ins. Aðkoma allra sem að aðgerð­inni komu var rann­sökuð sér­stak­lega þegar í ljós var komið að svik voru í tafli. Í þeirri rann­sókn kom fram að Tómas kom ekk­ert að þeim þætti með­ferð­ar­innar sem flokk­að­ist undir til­raun­starf­semi í aðgerð­inni. Og hér er einnig rétt að hafa í huga að í samn­ingi Sjúkra­trygg­inga við Kar­ól­inska var sér­stak­lega tekið fram að Sjúkra­trygg­ing­arnar myndu ein­göngu greiða fyrir þann hluta með­ferðar sem teld­ist til gagn­reyndrar lækn­is­með­ferðar- og ekk­ert fyrir þann hluta sem teld­ist til til­rauna­með­ferðar. Að auki var tekið sér­stak­lega fram að ef Andemariam myndi þarfn­ast eft­ir­með­ferðar á Karol­inska þá myndi íslenska ríkið ein­göngu greiða fyrir það ef um væri að ræða afleið­ingar vegna hinnar gagn­reyndu lækn­is­með­ferðar en ef kostn­aður tengd­ist til­raun­með­ferð þá myndi Karol­inska greiða. Því var ekki um það að ræða að íslenskir skatt­greið­endur væru að greiða fyrir til­rauna­með­ferð þar sem hinn ábyrgi aðili var dæmdur fyrir lík­ams­árás – eins og haldið er fram í umfjöllun á Rúv í við­tali við Björn Zoega, stjórn­ar­for­mann Land­spít­al­ans.

Meg­in­nið­ur­staða nefnd­ar­innar er sú að í ljósi allra mála­vaxta var til­vísun Tómasar á Andemariam til Karol­inska eðli­leg. Nefndin sá ástæðu til að taka fram sér­stak­lega (bls. 217) að þótt við hafi bæst síðar að meta einnig hvort ígræðsla væri fýsi­legur kostur, hafi til­vísun Tómasar gert ráð fyrir því að Andemariam kæmi til Íslands þremur dögum eftir mat sænsku lækn­anna og að síðan yrði í fram­hald­inu tekin ákvörðun um hvaða úrræði hent­aði Andemariam best og hann sendur síðar aftur til Sví­þjóðar í þá aðgerð.

Í umfjöllun þátt­ar­ins segir við­mæl­andi þátta­stjórn­anda að nefndin geri marg­vís­legar athuga­semdir við störf Tómasar. Og í inn­gangi þátt­ar­ins er vitnað til 9 ónafn­greindra lækna um að Tómas þurfi að sæta ábyrgð fyrir þátt­töku sína í mál­inu. Og að „sumir“ telji að hann verði að hætta störfum við spít­al­ann svo afdrifa­rík hafi þátt­taka hans verið.

Skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar styður fram­an­greindar álykt­anir ekki. Það eru vissu­lega gerðar athuga­semdir við ákveðna þætti en þeir lúta m.a. að vinnu­brögðum innan spít­al­ans og varða Tómas ekki sér­stak­lega. Má þar t.d. nefna færslur í sjúkra­skrár þegar verið er að senda sjúk­linga til aðgerða erlendis. Nefndin sá sér­staka ástæðu til að nefna að þessi ábend­ing ætti erindi við flesta lækna sjúkra­húss­ins og e.t.v. aðra starfs­menn, svo sem rit­ara. Þá gerði nefndin ákveðnar athuga­semdir við þátt­töku Andemari­ams í umræddu mál­þingi og jafn­framt lagði nefndin til ákveðnar breyt­ingar sem varða vís­inda­siða­nefnd. En hvað varðar Tómas sér­stak­lega þá er meg­in­nið­ur­staðan sú að Tómas hafi ekki brotið af sér heldur fyrst og fremst haft hags­muni Andemariam í fyr­ir­rúmi. Og það svo mjög að hann hafi gert mun meira heldur en til hafi verið hægt að ætl­ast. Nefndin kemst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að Tómas hafi látið Macchiarini gabba sig með því að breyta texta í bréfi til Macchiarini sem hann hélt að ætti að nota til þess að fá leyfi vís­inda­siða­nefndar fyrir plast­barka­ígræðslu ef til hennar myndi þurfa að grípa. Með því hafi hann „tæp­lega“ fylgt eftir fyr­ir­mælum 11. gr. lækna­laga. Hér er rétt að hafa í huga að í sænskri rann­sókn var kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að sam­skipti sænsku lyfja­stofn­un­ar­innar og Karol­inska/KI hafi verið veru­lega ábóta­vant og séu í reynd rót þeirra vanda­mála sem sköp­uð­ust. M.a. var bent á að ekk­ert hafi komið fram við rann­sókn máls­ins um að form­leg sam­skipti þess­ara aðila hafi átt sér stað meðan á starf­sem­inni stóð, hvað snertir t.d. forms­at­riði vegna leyf­is­veit­inga eða skil­grein­ingar og afmörk­unar til að hægt væri að þróa starf­sem­ina innan gild­andi lag­ara­mma. Á þessu sam­skipta­leysi þar til bærra aðila í Svíþjóð gat Tómas enga ábyrgð borið.

Allt fram­an­greint hefur legið fyrir síðan skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar var birt 6. nóv­em­ber 2017. En þátta­stjórn­andi kaus að láta umfjöllun sína snú­ast um per­sónu lækn­is­ins Tómasar og meintrar óánægju nafn­lausra kollega hans með fram­göngu hans í fjöl­miðlum. Skýrsla nefnd­ar­innar fjall­aði að óveru­legu leyti um þennan þátt og er auka­at­riði í plast­barka­mál­inu.

Sé það svo að ónafn­greindum læknum finn­ist Tómas fara offari í sam­skiptum við fjöl­miðla á að taka slíkt mál upp á öðrum vett­vangi, t.d. annað hvort innan spít­al­ans sjálfs eða Lækna­fé­lags­ins. Það að tengja þessa óánægju við plast­barka­málið er hins vegar grafal­var­legt mál því með því er verið að láta líta svo út að Tómas hafi brotið af sér með ámæl­is­verðum hætti og að því ýjað að hann verði að bera sér­staka ábyrgð þess vegna. Mögulega hætta störfum við spít­al­ann svo afdrifa­rík hafi þátt­taka hans verið. Þegar fyrir liggur í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar með skýrum hætti að Tómas braut ekki af sér með ámæl­is­verðum hætti í mál­inu.

Umfjöllun þátta­stjórn­anda hefur verið ósann­gjörn, ein­hliða og bein­línis vill­andi.

Má benda á tvennt til við­bótar í því sam­hengi.

Annars vegar er á það bent að sá hluti máls­ins sé óupp­gerður sem varðar bætur til ekkju Andemariam í sam­ræmi við ábend­ingar rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Það er út af fyrir sig rétt en það er ekki skýrt nánar í hverju ábend­ingar nefnd­ar­innar fel­ast. En ábend­ing nefnd­ar­innar er nefni­lega mjög sér­tæk.

Nefndin komst að þeirri nið­ur­stöðu að rann­sóknir sem gerðar voru hér á landi á Andemariam eftir með­ferð­ina hefðu fallið undir að vera leyf­is­skyldar vís­inda­rann­sóknir. Slíkt leyfi hafi hins vegar ekki legið fyrir. Nefndin hins vegar segir að þarna hafi ekki verið um að ræða ásetn­ing og lagði það sér­stak­lega á sig að graf­ast fyrir um í hverju mis­skiln­ingur gæti hafa falist. Jafn­framt taldi nefndin að með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga um Andemariam í þágu vís­inda­grein­ar­innar sem birt­ist í Lancet hefði verið ábóta­vant.

Af fram­an­greindu til­efni telur nefndin ástæðu til að Land­spít­ali taki til athug­unar hvort rétt geti verið að veita ekkj­unni fjár­hags­að­stoð í því skyni að ráða lög­mann til að fara yfir það hvort mögu­lega sé um bóta­skyld atvik að ræða, þ.e. vegna skorts á leyfi til vís­inda­rann­sóknar og vegna með­ferðar á per­sónu­upp­lýs­ingum. Nefndin slær því alls ekki föstu að bóta­skylda sé fyrir hendi en að aðstoða eigi ekkj­una við að fá úr því skorið. Það vekur aftur á móti athygli að nefndin tók það sér­stak­lega fram að það vekti undrun að Kar­ól­inska háskóla­sjúkra­húsið hefði ekki haft sam­band við ekkj­una til þess að fara yfir mögu­lega bóta­skyldu fyrir þau mis­tök sem gerð voru í aðgerð­inni sjálfri.

Hins vegar þá end­aði þátta­stjórn­and­inn á því að setja málið þannig upp að spyrja hvort ekki þyrfti að rann­saka aðkomu ann­arra sem tóku þátt í aðgerð­inni þegar fyrir lægi að búið er að dæma höf­uð­paur­inn fyrir sinn þátt. Við­mæl­and­inn bætti um betur með því að taka fram að málið hafi aldrei komið til kasta lög­reglu hér heima. Svo mörg voru þau orð og þætt­inum lokið.

Hvaða spurn­ingar eru þá hlust­endur skyldir eftir með? Braut Tómas af sér með refsi­verðum hætti? Á eftir að dæmi Tómas til refs­ingar? Mun íslenska lög­reglan rann­saka aðkomu Íslend­ing­anna að mál­inu? Já það er nefni­lega það, er nema von að spurt sé hvenær drepur maður mann og hvenær ekki?

Þessi fram­setn­ing er með ein­dæmum lúa­leg. Með þess­ari full­yrð­ingu tek ég undir með Óðni Jónssyni, fyrr­ver­andi frétta­stjóra Rúv, þar sem hann segir í athuga­semd við fés­bók­ar­færslu Magnúsar Karls: „Það er auð­vitað ekki boð­legt að vitna í ónafn­greinda ein­stak­linga til að grafa undan mann­orði nafn­greindrar per­sónu. Það er ekki frétta­mennska heldur lúa­leg aðför.“

Það er ekk­ert í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sem gefur í skyn að Tómas hafi brotið af sér með refsi­verðum hætti. Íslensk lög­gæslu­yf­ir­völd eru full­fær um að meta það sjálf­stætt hvort þau telji ástæðu til að taka upp rann­sókn á meintu saka­máli eða ekki. Það hefur ekki verið gert og verður ekki gert.

Í Svíþjóð voru allir sem komu að málum Andemariam til rann­sóknar. Að end­ingu var einn ákærður og hann síðar sak­felldur. Rannsókn á öðrum var felld niður þar sem ekki var talið lík­legt að frek­ari rann­sókn myndi leiða til sak­fell­ingar. Refsi­þætti máls­ins í Svíþjóð er þar með lokið.

Að lokum.

Heil­brigð­is­starfs­fólk sem lendir í kast­ljósi fjöl­miðla er almennt í veikri stöðu ef bornar eru sakir á það. Það er ekki auð­velt að sitja undir rang­indum og ein­hliða mál­flutn­ingi. Það er ekki skrítið að þeir sem fyrir slíku verða geti þurft að draga sig í hlé, a.m.k. tíma­bundið. En von­andi ein­göngu tíma­bundið.

Á Íslandi er skortur á heil­brigð­is­starfs­fólki. Á sumum sviðum mjög mik­ill skortur. Sér­stak­lega þegar um er að ræða mjög sér­hæft heil­brigð­is­starfs­fólk.

Það varðar öryggi sjúk­linga ef mjög sér­hæfðu starfs­fólki er gert ókleift að sinna störfum sínum.

Höfundur er lög­maður.


Um höf­und.

Und­ir­rit­aður er lög­maður og var fram­kvæmda­stjóri Lækna­fé­lags Íslands á árunum 2002-2009. Síðan þá hefur und­ir­rit­aður látið sig heil­brigð­is­kerfið varða á marg­vís­legan hátt. M.a. með stunda­kennslu við Lækna­deild HÍ frá árinu 2009 og kennt þar um þagn­ar­skyldu lækna. Frá árinu 2022 einnig sinnt stunda­kennslu hjá 6. árs lækna­nemum um lög­gjöf á sviði heil­brigð­is­mála.

Ég þekki Tómas Guð­bjarts­son ekki per­sónu­lega. Á árum mínum sem fram­kvæmda­stjóri Lækna­fé­lags­ins hitti ég Tómas nokkrum sinnum en ekki síðar.

Magnús Karl þekki ég ekki per­sónu­lega en hitti hann í ein­hver skipti á árum mínum hjá Lækna­fé­lag­inu.

Runólf Pálsson for­stjóra Land­spít­ala og Björn Zoega stjórn­ar­for­mann Land­spít­ala þekki ég ekki en hef hitt báða.

Sigurð Guðna Guð­jóns­son lög­mann þekki ég ekki en hef hitt.

Hef notið þjón­ustu starfs­manna Land­spít­al­ans marg­ít­rekað, þó aldrei Tómasar, og er atvinnu­maður í nokkrum sjúk­dómum sem sjúk­lingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð