Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Segir „brosgrettur“ Katrínar Jakobsdóttur „birtingarform lágkúru illskunnar“

Segir „brosgrettur“ Katrínar Jakobsdóttur „birtingarform lágkúru illskunnar“
Athugið myndin er sam­sett

Kristinn Hrafns­son líkir vest­rænum rík­is­stjórnum við Adolf Eichmann, hátt­setts for­ingja SS-sveitar Nasista, sem sagð­ist bara hafa hlýtt skip­unum í seinni heim­styrj­öld­inni.

Alþjóða­dóm­stóll­inn í Haag komst að bráða­birgða­nið­ur­stöðu í þjóð­ar­morðs­máli Suður Afríku gegn Ísrael, í dag en þar er Ísrael gert að reyna mun betur að koma í veg fyrir manns­fall sak­lausra borg­ara á Gaza. Þeim er þó ekki gert að hætta árásum.

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri Wikileaks skrif­aði færslu í dag af því til­efni en hann segir bráða­birgða­nið­ur­stöð­urnar gætu breytt póli­tísku lands­lagi „sem smám saman er að slig­ast í átt­ina að því að hætta algeru og ömur­legu afskipta­leysi.“ Bætir hann við að íslensk stjórn­völd, með Bjarni Bene­dikts­son í broddi fylk­ingar í utan­rík­is­málum, ættu að taka eftir þess­ari þróun. „Nema Bjarni vilji stríð við almenn­ing sem hann getur ekki annað en tapað,“ skrifar Kristinn og heldur áfram: „Almenn­ingur hlustar með hryll­ingi á stað­reyndir sem lagðar voru fyrir Alþjóða­dóm­stól­inn eins og þá sem situr fast í hug­skoti mínu: „Á hverjum degi er fótur eða báðir fætur skornir af 10 börnum á Gaza, oftar en ekki án deyf­ingar“. Staldrið við þá mynd.“

Þá segir Kristinn að vest­rænar rík­is­stjórnir leiki hlut­verk þekkts nas­ista og er harð­orður í garð Katrínar Jak­obs­dóttur og Bjarna Bene­dikts­sonar. „Vest­rænar rík­is­stjórnir leika hlut­verk Adolfs Eichmanns, skó­svein Þriðja rík­is­ins, sem yppti öxlum í rétt­ar­höld­unum í Ísrael og sagð­ist bara hafa fylgt skip­unum á meðan Hannah Arendt lýsti honum sem aum­legri lyddu í grein­ingu sinni um lág­kúru illsk­unnar. Bros­grettur Katrínar Jak­obs­dóttur þegar hún talar um vand­ann við flækjur máls­ins er birt­ing­ar­form lág­kúru illsk­unnar alveg eins og reiði­legar gas­lýs­ingar Bjarna Bene­dikts­sonar þegar hann smokrar sér undan íslenskri ábyrgð á að bjarga fólki undan þjóða­morði með því að skjóta sér á baki við skjöld lægstu og lág­kúru­leg­ustu hvata í póli­tísku lit­rófi, ras­isma og fas­isma.“

Að lokum minn­ist hann á upp­reisn sem 79 diplómatar í finnsku utan­rík­is­þjón­ust­unni gerðu fyrir hálfum mán­uði þar sem Elina Valtonen, utan­rík­is­ráð­herra Finn­lands var harð­lega gagn­rýnd fyrir afstöðu­leysi vegna ástands­ins á Gaza. Segir hann að upp­reisnin virð­ist hafa haft áhrif því í gær hafi Valtonen gagn­rýnt Ísra­els­stjórn harð­lega „og sagði að hún gæti á engan hátt rétt­lætt slátr­un­ina á Gaza og ábyrgð á hörmu­legum aðbún­aði íbúa, með rök­semdum um sjálfs­vörn. „Það er nóg komið“, sagði Valtonen.“

Að lokum biðlar Kristinn óbeint til starfs­manna íslensku utan­rík­is­þjón­ust­unnar um að fara að for­dæmi kollega sinna í Finn­landi:

„Starfs­menn íslensku utan­rík­is­þjón­ust­unnar ættu að huga að þessu for­dæmi kollega sinna í Finn­landi. Vilja þeir dóm sög­unnar um hlut­deild í lág­kúru illsk­unnar? Vilja þeir vera Adolf Eichmann? Um afstöðu Bjarna Bene­dikts­sonar þarf ekki að fjöl­yrða. Hann umfaðmar hut­verkið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð