Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ekið á gangandi vegfaranda: „Hendur mínar döngluðu af húddi bílsins“

Ekið á gangandi vegfaranda: „Hendur mínar döngluðu af húddi bílsins“

„Hendur mínar döngl­uðu ein­hvern veg­inn af húddi bíls­ins og spegl­inum bíl­stjóra­megin og fram­brettið fór utan í mig af ótrú­legu afli,“ lýsir Birkir Fjalar Við­ars­son sem fylgdi börnum sínum venju sam­kvæmt í grunn­skóla í morgun. Hann hafði nýlega kvatt þau og var fót­gang­andi á leið heim. Þegar Birkir Fjalar gekk yfir gang­braut á horni Hátúns og Sól­ar­túns hann er ekinn niður af öku­manni jepp­lings.

„Ég kastað­ist til hliðar, fór í flottan koll­hnís,“ segir Birkir sem komst að því er virð­ist ótrú­lega vel frá atvik­inu. Birki var brugðið og segir fyrstu við­brögð sín að spretta á fætur og láta bíl­stjór­inn heyra það.

„Ég krafð­ist þess af öku­mann­inum að hann færi heim og segði fólk­inu sínu frá því sem gerð­ist og gengi úr skugga um að fólkið hans lærði af þessu,“ segir Birkir Fjalar og bætir við að nú hafi farið vel.

Sér á þér eða tel­urðu að þú hafir sloppið með skrekk­inn?

„Ég slapp ansi vel. Sér ekki á mér, held ég. Á eftir að afklæð­ast. Hef verið önnum kaf­inn að tala við fólk eftir atvikið. Mig langar mest að taka til heima hjá mér og hlusta á þung­arokk. En jú, smá aumur í mjó­baki og hálsi,“ svarar Birkir Fjalar og bætir við að hann telji sig samt ljón­hepp­inn. „Ég vil vera heill fyrir börnin mín. Þannig að ég er mjög þakk­látur að ekki hafi farið verr.“

Birkir segir eitt það fyrsta sem komið hafi í huga hans hafa verið börnin sín og ann­arra: „Börnin eru það dýr­mætasta.“ Hann vill koma því á fram­færi að ábyrgðin liggi ekki ein­göngu á fót­gang­andi að passa sig á umferð­inni og hvað þá að velta ábyrgð­inni yfir á börnin. „Ef þú ekur um íbúð­ar­hverfi á bíl þá áttu alltaf að fara var­lega því að gang­andi og hjólandi veg­far­endur eru ekki í bíl. Þetta er svo aug­ljóst,“ segir Birkir Fjalar.

Birkir Fjalar Viðarson með dóttur sinni á góðum degi. Mynd/aðsend

Atvikið verður tilkynnt til lögreglu

Aðspurður hvort að atvikið hafi verið til­kynnt til lög­regl­unnar svarar Birkir: „Ég hringdi en þau segja mér að þetta sé ekki skráð nema ég komi niður á stöð.“

Hyggstu gera það?

„Algjör­lega. Ég hvet fleira fólk sem lendir í svip­uðu til að gera það sama. Það virð­ist bara verið tekið mark á tíðni­tölum og töl­fræði. Ég mun til­kynna atvikið ekki til að koma öku­mann­inum í stein­inn, – heldur svo þetta sé til í gögnum lög­regl­unnar.“

Sár reynsla

Birkir Fjalar vill að akandi veg­far­endur virði til­teknar hraða­tak­mark­anir og gæti að sér þegar ekið er um íbúa­hverfi bæja og borgar. Þegar Birkir var í fyrsta bekk í grunn­skóla varð hann vitni þegar bíl var ekið á vin hans:

„… ég sex ára gam­all. Ég og vinir mínir heyrðum skóla­bjöll­una klingja hátt og þá var tími til að hlaupa inn í skóla úr frí­mín­út­unum. Við hlupum yfir göt­una. Jeppi ók á vin minn sem var fimm ára. Hann lést af sárum sínum skömmu síðar. Ég hugsa oft um hann. Hann var skemmti­legur drengur.“

Í lokin bendir Birkir á mik­il­vægi þess að atvik sem þessi séu rædd. Að breyta þurfi hugs­un­ar­hætt­inum og menn­ing­unni: „Þó það væri ekki nema til að bjarga einu barni frá því að stórslasast, örkuml­ast eða deyja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð