Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Verktaki segir Njarðvíkurlögn hafa verið ónýta 1992: „Við settum bara bætur á öll götin“

Verktaki segir Njarðvíkurlögn hafa verið ónýta 1992: „Við settum bara bætur á öll götin“
Mynd/Facebook HS veitna

Bygg­ing­ar­tækni­fræð­ing­ur­inn Skúli Ágústs­son, var­aði við því hraun­flæði sem tók Njarð­vík­ur­lögn í sundur í eld­gos­inu sem hófst á fimmtu­dag­inn síð­ast­lið­inn. Verktaki sem vann við bæt­ingu á lögn­inni 1992, segir hana hafa verið hálf ónýta á þeim tíma.

Mbl.is segir frá því að Skúli Ágústs­son bygg­ing­ar­tækni­fræð­ingur, sem hefur unnið fyrir HS Orku, hafi varað almanna­varnir og við­bragðs­að­ila við nákvæm­lega því hraun­flæði sem tók Njarð­vík­ur­lögn í nýjasta eld­gos­inu. Það gerði hann fyrst árið 2020 og aftur í pósti til almanna­varna, HS Orku, lög­regl­unnar og Grinda­vík­ur­bæjar, þann 29. des­em­ber síð­ast­lið­inn.

Í póst­inum segir hann að hann telji að mis­tök hafi verið gerð er varn­ar­garð­arnir voru byggðir utan um Svarta­s­engi.

„Þessi varn­argarður sem nú þegar er kom­inn frá Sýl­ing­ar­felli og utan um byggð­ina í Svarts­engi leiðir aðeins hraun að Grinda­vík­ur­vegi. Tek­ur í sund­ur Grinda­vík­ur­veg­inn, heita­vatns­lögn til Reykja­nes­bæj­ar, Suður­nesja­bæj­ar og Voga. Rýf­ur raf­magns­línu frá Svarts­engi og síður en ekki síst rýf­ur kalda­vatns­lögn til orku­vers­ins því kalda­vatns­lögn­in er grunnt í jarð­vegi frá Gjánni (aðal vatns­töku­svæði Suður­nesja) og því hef­ur eng­an til­gang að vera að setja nýja heita­vatns­lögn djúpt í jörð á þessu svæði þar sem heita­vatnið er nú bara kalt upp­hitað vatn sem kem­ur frá Gjánni. Verði stórt hraun­gos á nýju sprung­unni þá myndi Svarts­engi ein­angr­ast og eng­in kæm­ist þangað nema fugl­inn fljúg­andi eða með þyrl­um því Grinda­vík­ur­veg­ur færi und­ir hraun báðum meg­in við Svarts­engi og Norður­ljósa­veg­ur­inn einnig,“ seg­ir Skúli í póst­in­um.

Fram kemur í frétt mbl.is að stór hluti þess sem Skúli spáði fyrir um, hafi raun­gerst í eld­gos­inu en hins vegar hafi hraunið ekki náð að kalda­vatns­lögnum nema að hluta.

„Ég gerði þetta um helgi að gamni mínu út frá hæð­ar­línu­korti. Ég var mikið í Grinda­vík sem gutti og það er eig­in­lega ástæðan fyr­ir því að ég gerði þetta,“ seg­ir Skúli en það gerði hann árið 2020. „Þá höfðu sam­band við mig tveir menn, ann­ar frá Neyð­ar­lín­unni og hinn frá lög­regl­unni. Þeir fengu þetta sent til sín árið 2020 en síðan hef ég ekk­ert heyrt meira í þeim.“

Í sam­tali við mbl.is segir Skúli að ekki hafi verið tekið til­lit til hæð­ar­mæl­inga við bygg­ingu varn­ar­garð­anna.

„Alls ekki. Það hefði átt að gera varn­argarð frá Sýl­ing­ar­felli að Gíg­húsa­hæð, en í stað þess var gerður varn­argarður utan um mann­virk­in í Svarts­engi. Það var ekki þörf á því ef miðað er við það hvar gosið hef­ur und­an­far­in þús­und ár.“

Bendir hann þó á að hann sýni því vissu­lega skiln­ing að varn­ar­garð­ur­inn hafi verið byggður um Orku­verið enda miklir hags­munir þar undir en að hann telji að mun betur hefði verið hægt að vinna hlut­ina, með styttri og mark­viss­ari varn­ar­garða.

Lögnin ónýt 1992

Mannlíf ræddi við verk­taka, sem ekki vildi láta nafn síns getið, en hann vann við lag­fær­ingar á lögn­inni árið 1992. „Hún var eig­in­lega alveg ónýt árið 1992,“ sagði verk­tak­inn og hélt áfram. „Og þá var rætt um að það ætti að leggja nýja lögn í jörð. Á sínum tíma var ekki hægt að fá svona ein­angr­aðar lagnir, þegar þessi lögn var lögð, 1974. En hún er búin að duga alveg ótrú­lega vel.“

En 1992 var lögnin ónýt. „Hún var alveg búin að því,“ sagði verk­tak­inn og bætti við: „Við vorum að gera við hana, bæta hana. Við settum bara bætur á öll götin en hún var öll götótt, alveg alla leið.“

Verk­tak­inn segir að það hefði átt að vera búið að stækka lögn­ina fyrir löngu síðan. „Það hefði átt að vera búið að grafa hana upp úr jörðu fyrir löngu og stækka hana. Hún er búin að bila oft líka, við Fitjar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð