Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Setur Gaza-hryllinginn í samhengi við Ísland: „Ég á bara mjög, mjög erfitt með þetta“

Setur Gaza-hryllinginn í samhengi við Ísland: „Ég á bara mjög, mjög erfitt með þetta“
Gaza ströndin er jafn löng og leiðin frá Njarðvík að Mos­fellsbæ

Rebekka Guð­leifs­dóttir setur ástandið á Gaza-strönd­inni í sam­hengi við Ísland.

Ljós­mynd­ar­inn Rebekka Guð­leifs­dóttir skrif­aði Facebook-færslu í dag þar sem hún setur þær hörm­ungar sem nú standa yfir á Gaza, í sam­hengi við Ísland. Óhætt er að segja að færslan er slá­andi en Rebekka seg­ist hafa gert þetta fyrir þá Íslend­inga sem kunni ekki að setja sig í spor ann­arra.

Rebekka Guð­leifs­dóttir

„Ef öll heim­ili á Íslandi- rúm­lega 130.000 tals­ins árið 2021 skv Hagstofu – væru sprengd í tætlur eða rifin með jarð­ýtum, að hluta eða að öllu leyti eyðilögð.. Þá væri það samt minna en helm­ingur þeirra heim­ila, um 300.000, sem hafa verið eyðilögð á mjórri land­ræmu við Mið­jarð­ar­haf á rúm­lega fjórum mán­uðum.“ Svona hefst færsla Rebekku og heldur svo áfram: „Ræman er um 42 km á lengd, sem sam­svarar vega­lengd­inni frá Njarðvík inn í Mos­fellsbæ. Ég velti þessu upp, vegna þess að sumir Íslend­ingar glíma við þann hvim­leiða vanda, að kunna ALLS ekki að setja sig í spor ann­ara. Þetta virð­ist sér­stak­lega vefj­ast fyrir þeim, þegar um er að ræða fólk sem er að glíma við hryll­ing sem við á Íslandi höfum aldrei verið nálægt því að upp­lifa og eigum þ.a.l erfitt með að ímynda okkur. Flest okkar eru samt sem áður fær um að hafa sam­kennd með slíku fólki.“

Og svo kom næsta sam­lík­ingin, Hafn­ar­fjörður. „Í mínum heimabæ, Hafn­ar­firði, búa rúm­lega 30.000 mann­eskjur. Tölur eru eitt­hvað á reiki varð­andi hversu margar mann­eskjur hafa verið drepnar á þess­ari land­ræmu sem ég minnt­ist á að ofan, vegna þess að sprengju­árásum nágranna þeirra hefur nán­ast ekki linnt í 126 daga, og hafa bara ágerst núna á síð­ustu dögum, og því ein­stak­lega erfitt að fara mark­visst og örugg­lega í það hræði­lega verk að skrá­setja alla látna. Sér­stak­lega í ljósi þess að mik­ill fjöldi sem saknað er, er graf­inn undir húsa­rústum, ann­að­hvort dáið eða við það að deyja.

En, sam­kvæmt nýj­ustu tölum í gær, þá er tala lát­inna komin í 28064. Ef tekið er með að ein­hverjar þús­undir séu enn ófundnir, þá er nokkurn veg­inn hægt að jafna þetta við að hvert ein­asta manns­barn í Hafn­ar­firði hafi verið tekið af lífi, á margs­konar við­bjóðs­legan máta, á 126 dögum. Fyrir augum alls heims­ins, sem fylgd­ist með morð­unum á Instagram og TikTok. Meðan þeir sem höfðu allt vald til að stöðva þetta gengd­ar­lausa morð­æði, gerðu ann­að­hvort ekk­ert, eða aðstoð­uðu morð­ingj­ana með rausn­ar­legum pen­inga og vopna­gjöfum.“

Því næst setur Rebekka fjöldi barna sem drepin hafa verið í árásum Ísraela, í sam­hengi við fjölda barna í grunn­skólum lands­ins.

„Af þessum 28.064 hafa *að minnsta kosti* 11.500 börn verið drepin.Árið 2022 voru 11.499 nem­endur í eft­ir­far­andi grunn­skólum:

Aust­ur­bæj­ar­skóli (414), Álf­hóls­skóli (580), Álfta­nes­skóli (363), Árbæj­ar­skóli (693), Áslands­skóli (432), Breið­holts­skóli (438), Brekku­bæj­ar­skóli (465), Brekku­skóli á Akureyri (450), Egils­staða­skóli (417), Engi­dals­skóli (232), Fella­skóli (359), Flata­skóli (365), Folda­skóli (480), Foss­vogs­skóli (329), Grunn­skól­inn Sel­tjarn­ar­nesi (585), Grunn­skól­inn Vest­manna­eyjum (547), Grunn­skól­inn Ísafirði (384), Grunn­skól­inn Borg­ar­nesi (305), Grunn­skól­inn Hvera­gerði (446), Haga­skóli (587), Háteigs­skóli (501), Hraun­valla­skóli (594), Kárs­nes­skóli (656), Hval­eyr­ar­skóli (396) og Viði­staða­skóli (481). Er nokkur mann­eskja á land­inu sem gæti ímyndað sér veru­leika, þar sem allir nem­endur þess­ara íslensku skóla, hefðu verið drepin á kval­ar­fullan hátt, og heim­ur­inn bara horfði á?“

Rebekka seg­ist hafa þurft að koma þessu frá sé en seg­ist vera of reið til að geta tjáð sig almenni­lega. „Ég varð bara að koma þessu frá mér. Ég er of full af reiði og gríð­ar­legum von­brigðum fyrir hönd mann­kyns, til að kunna almenni­lega að tjá mig þessa dag­ana. En þessar hugs­anir leit­uðu á mig í gær. Ekki veit ég hvenær ráða­menn heims verða búnir að seðja hungur sitt í horfa á sak­laust fólk deyja í beinni útsend­ingu.“

Að lokum seg­ist Rebekka hafa fengið nóg fyrir mörgum mán­uðum og að hún viti hrein­lega ekki hvernig hún eigi „að vera til í sama sam­fé­lagi og þeir Íslend­ingar sem ennþá láta eins og það komi þeim ekk­ert við að land sem Ísland er í við­skiptum við er búið að brjóta bók­staf­lega öll lög sem til eru, fremja ógeðs­leg­ustu morð sem hugs­ast getur, monta sig af þessu og gera EKKERT til að fela það,“ og bætir við: „Og okkar stjórn­völd eru – þökk sé okkar ömur­leg­asta Bjarna Bene­dikts­syni- með morð­ingj­unum í liði. Ég á bara mjög, mjög erfitt með þetta.“Með færsl­unni birti Rebekka sam­an­burð á Gaza-strönd­inni og sam­bæri­legu svæði á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ