Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Gotti segir frá tilurð kápu Ágætis byrjunar: „Hugmyndin fæddist í höfðinu á mér“

Gotti og Avalonþ
Gotti og Avalonþ Mynd: Aðsend

Líkt og Mannlíf hefur áður sagt frá mun bók um hljóm­sveitina Sigur Rós brátt líta dagsins ljós, á íslensku, ensku og síðar á árinu, á japönsku. Höfundur bókarinnar er Svanur Már Snorrason og ber hún nafnið … það besta sem guð hefur skapað … Von sem varð að Ágætis byrjun – Sagan af Sigur Rós. Bókar­kápan er óvenju glæsileg og það er lista­maðurinn Gotti Bernhöft sem á heiðurinn af henni, en eins og margir muna eflaust, þá teiknaði Gotti myndina á hið fræga plötu­albúm Ágætis byrjun fyrir 25 árum síðan.

Hann segir að „við vinnslu á teikningunum fyrir Ágætis byrjun kom upp nafnið Avalon fyrir karakterinn sem fæðist þarna á forsíðu; Avalon byrjar sitt líf sem geim-engils fóstur sem fæðist og þroskast svo yfir í að vera flugu­frelsandi Starálfur. Þannig verður Ágætis byrjun einhverskonar þroska­saga Avalon sem og þroska­saga Sigur Rósar. Með vinnslu og svo útkomu Ágætis byrjunar horfði ég upp á einstaklingana í hljóm­sveitinni fæðast og þroskast; þannig að á sama hátt og þeir fæða Ágætis byrjun og Avalon þá fæðir Ágætis byrjun og Avalon þá.“

Aðspurður um bókar­kápuna og hina nýju teikningu af Avalon segir Gotti: „Hugmyndin er sú að Avalon haldi á nýfæddum Sigur Rósara – eins og foreldri eða uppalandi. Og hugmyndin fæddist í höfðinu á mér eins og hugmyndin að Ágætis byrjun teikningunni – við fyrstu snertingu við textann.“

Gotti nefnir að „Ágætis byrjun kom út löngu fyrir daga Spotify, þannig að fólk keypti diskinn og náði þar af leiðandi góðri tenginu við myndina.“ Þá nefnir hann að „daglega koma upp tengsl mín við Ágætis byrjun, sérstak­lega erlendis. Reglulega fæ ég sendar myndir af Avalon tattúi eða fyrir­spurn um að endur­teikna Avalon og ég hef haldið sýningar erlendis – til dæmis í Tokyo – með einungis teikningum frá Ágætis byrjun.“ Þeir sem eru áhuga­samir um að kaupa nýja mynd af Avalon eftir Gotta geta sent honum fyrir­spurn á Instagram (https://www.instagram.com/gotti_bernhoft/).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Menning

Dóttir.x tilnefnd til Music Moves Europe-verð­launanna 2027

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt