Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Starfsmaður ísraelska ríkisútvarpsins stóð fyrir herferð gegn Bashar í Söngvakeppninni

Starfsmaður ísraelska ríkisútvarpsins stóð fyrir herferð gegn Bashar í Söngvakeppninni

Stjórn­andi Facebook-hóps sem skipu­lagði her­ferð svo Hera Björk gæti sigrað í Söngvakeppni sjón­varps­ins, starfar hjá ísra­elska rík­is­út­varp­inu.

Á dög­unum var sagt frá því í fjöl­miðlum að stjórn­andi Facebook-hóps­ins Israeli-Icelandic conversation, hefði hvatt hóp­með­limi til að kjósa Heru Björk í Söngvakeppni sjón­varps­ins, til að koma í veg fyrir að Palest­ínu­mað­ur­inn Bashar Murad sigr­aði. Stjórn­and­inn, Yogev Segal, bað alla með­limi hóps­ins að sann­færa tvo til þrjá vini eða ætt­ingja um að kjósa Heru Björk. Sagðist hann ekki hafa neitt á móti Bashar, og sagði að hann hefði heldur ekk­ert á móti því að Palest­ína keppi í Eurovision einn dag­inn en ekki núna. Sagðist hann ótt­ast að það yrði „póli­tískt skað­legt“ og að sam­band Íslands og Ísrael gæti versnað ef Bashar myndi keppa fyrir hönd Íslands.

Facebook-hóp­ur­inn, sem  var stofn­aður 23. jan­úar á þessu ári, degi áður en til­kynnt var um þátt­töku Bashar Murad í Söngvakeppni sjón­varps­ins en nokkrum dögum áður hafði sú saga farið á kreik að hann væri meðal þátt­tak­enda. Í lýs­ing­unni á hópnum segir meðal ann­ars eft­ir­far­andi: „Þessi hópur miðar að því að gera íbúum Íslands og Norð­ur­landa kleift að eiga bein sam­skipti við Ísraela, ekki í gegnum fjöl­miðla. Hópurinn hefur einnig það að mark­miði að leiða þegna land­anna saman og láta þá kynna afstöðu sína og deila til­finn­ingum sínum.
Hópurinn er ekki full­trúi opin­berrar stefnu Ísra­els­ríkis.“

Á lin­kedin-síðu stjórn­anda hóps­ins, Yogev Segal, sést að hann starfar hjá ísra­elska rík­is­út­varp­inu, Israeli Public Broadcasting Corporation eða KAN eins og það kallað, og hefur gert það síð­ustu fimm árin.

Eftir að úrslitin lágu fyrir skrif­aði Yogev færslu þar sem hann fagnað því að Hera Björk hefði sigrað keppn­ina. Sagði hann að Ísland hefði í marga mán­uði verið búið að „skapa vill­andi ímynd“ og að ef Palest­ínu­maður myndi keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision myndi sú ímynd verða enn meira vill­andi og skemma sam­skipti Ísraels og Íslands. Þá kall­aði hann á öðrum stað í færslu sinni, þátt­töku Bashar „póli­tískan farsa“.

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri til­kynnti í gær að óháðir aðilar yrðu fengnir til að rann­saka fram­kvæmd atkvæða­greiðslu Söngvakeppni sjón­varps­ins en þess höfðu höf­undar lags Bashar Murad kraf­ist, enda hefur komið í ljós ýmsir van­kantar á fram­kvæmd­inni. Frestur til að senda inn kepp­endur í Eurovision rennur úr á morgun og því ljóst að tími til rann­sóknar sé naumur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð