Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Páll Bergþórsson er látinn

Páll Bergþórsson er látinn
Blessuð sé minn­ing hans.

Páll Berg­þórs­son er lát­inn, 100 ára að aldri.

Einn allra vin­sæl­asti veð­ur­fræð­ingur Íslands­sög­unnar, Páll Berg­þórs­son, fyrr­ver­andi veð­ur­stofu­stjóri, lést á Hrafn­istu eftir stutt veik­indi. Páll var hund­rað ára gam­all.

Það var Bergþór sonur Páls, sem til­kynnti and­látið en á vef Veð­ur­stof­unnar er farið ræki­lega yfir starfsævi hans.

Hér fyrir neðan má lesa texta Veð­ur­stof­unnar, sem birt­ist á ald­ar­af­mæli Páls í fyrra:

Páll fædd­ist að Fljóts­tungu í Hvít­ár­síðu 13. ágúst 1923. Hann lauk stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum í Reykja­vík 1944. Að loknu tveggja ára námi í verk­fræði við Háskóla Íslands hélt hann til Sví­þjóðar 1947 og stund­aði nám í veð­ur­fræði við Sveriges Met­e­orolog­iska och Hydrolog­iska Institut (SMHI) í Stokk­hólmi og lauk þar prófi 1949. Hann stund­aði frekara nám og rann­sóknir í veð­ur­fræði við Stokk­hólms­há­skóla frá 1953 og lauk fil.kand.-prófi 1955. Á árinu 1958 dvald­ist hann í Osló í nokkra mán­uði við rann­sóknir til und­ir­bún­ings tveggja daga veð­ur­spáa. Þá vann hann við rann­sóknir á spá­að­ferðum við Reikni­m­ið­stöð evr­ópskra veð­ur­stofa (ECMWF) í Reading í Bret­landi hálft árið 1980.

Heim kom­inn frá veð­ur­fræði­námi 1949 hóf Páll störf sem veð­ur­fræð­ingur á Veð­ur­stofu Íslands en hann hafði áður starfað þar sem aðstoð­ar­maður frá 1946 til 1947 og sum­arið 1948. Meg­in­verk­efni hans á stofn­un­inni allt til 1982 sneru að almennri veð­ur­spá­þjón­ustu og flug­veð­ur­þjón­ustu. Hann var deild­ar­stjóri veð­ur­fars­rann­sókna frá 1982 til 1989. Árið 1989 var Páll skip­aður veð­ur­stofu­stjóri frá 1. októ­ber og gegndi því emb­ætti til árs­loka 1993, þá sjö­tugur að aldri.

Auk starfa að veð­ur­þjón­ustu sinnti Páll fjöl­þættum verk­efnum í hlut­verki sínu sem veð­ur­fræð­ingur. Hann var full­trúi í starfs­nefnd um gagna­öflun og gagna­notkun á nor­rænum veð­ur­stofum og for­maður hennar um skeið. Hann vann vet­ur­inn 1954 til 1955, ásamt Bo R. Doos, frum­herj­a­starf við tölvu­grein­ingu og teikn­ingu veð­ur­korta og oft er í fræði­ritum vísað til aðferðar þeirra. Hann flutti veð­ur­fregnir í sjón­varpi frá upp­hafi þeirra 1967 og allt til 1989. Um skeið var Páll kenn­ari á nám­skeiðum fyrir flugnema og kenndi í almenna og hag­nýta veð­ur­fræði við Háskóla Íslands frá 1971 til 1982. Hann sat í rit­nefnd tíma­rits­ins Veðrið frá 1958 til 1978 og lagði því mikið til af áhuga­verðu efni.

Páll er fræð­ari af lífi og sál og tengdi veður og hag helstu atvinnu­vega lands­ins, ekki síst land­bún­aðar, saman með skipu­lögðum og skýrum hætti. Hann er kunnur smekk­maður á íslenskt mál, bæði talað og ritað, mjög áheyri­legur fyr­ir­les­ari og skrifar afar fal­lega rit­hönd. Hann var meðal frum­kvöðla hér­lendis um rann­sóknir á veð­ur­fars­breyt­ingum og beindi snemma sjónum að hnatt­rænni hlýnun og þá ekki síst hvaða áhrif hún hefði á íslenskan land­búnað. Þá rann­sak­aði hann sam­spil veð­ur­fars og mann­fjölda­þró­unar. 

Allt frá 1969 gerði Páll um ára­bil árlegar spár um hafís við Ísland byggðar á hita á Jan Mayen sum­arið og haustið á undan. Þá birti hann um all­langt skeið frá 1976 árlegar spár í apr­íl­lok um hey­feng á land­inu. Hann kom veð­ur­fregnum í sjón­varpi þannig á fram­færi að auð­skilið var almenn­ingi. 

Hann flutti fjölda útvarps­er­inda um veður við miklar vin­sældir, jafn­framt hug­leið­ingum um lífið í land­inu, og bók hans Loftin blá sem út kom 1957 er byggð á þessu efni. Páll hefur enn­fremur samið samið bók­ar­hluta, kennslu­efni og skýrslur um veð­ur­fræði og ritað mik­inn fjölda greina um þau fræði og skyld efni í blöð og tíma­rit. Enn­fremur hefur hann rann­sakað landa­fundi nor­rænna manna í Vest­ur­heimi um árið 1000, m.a. með ferða­lögum þangað vestur, og gaf út bók­ina Vín­lands­gátan um þessi efni árið 1997.

Páll gaf sig mikið að félags­málum og sat m.a. í stjórn Stúd­enta­fé­lags Háskóla Íslands, Starfs­manna­fé­lags rík­is­stofn­ana, Kaup­fé­lags Reykja­víkur og nágrennis og Land­verndar. Enn­fremur sat hann í stjórn Íslenska járn­blendi­fé­lags­ins og Flugráði um tíma.

Páll hefur mjög ákveðnar póli­tískar skoð­anir – er stað­fastur sós­í­alisti – og gegndi ýmsum trún­að­ar­störfum í vinstri­hreyf­ing­unni. Þannig var hann for­maður Æsku­lýðs­fylk­ing­ar­innar og Sós­í­alista­fé­lags Reykja­víkur um hríð og sat í mið­stjórn Sam­ein­ing­ar­flokks alþýðu – Sós­í­alista­flokks­ins, síðar Alþýðu­banda­lags­ins og var fram­bjóð­andi þess í Mýra­sýslu í Alþing­is­kosn­ing­unum 1956.

Páll var góður lausa­vísna­höf­undur og þýddi söng­texta. Um tíma sá hann við annan mann um skemmti­þátt í útvarpi. 

Þrátt fyrir að Páll hefði lokið sinni starfsævi á Veð­ur­stof­unni og væri kom­inn á eft­ir­laun hætti hann síður en svo afskiptum af þeim fræðum sem áttu hug hans allan. Lengstum síðan hefur hann sinnt þessum áhuga­málum sínum af kappi og tekið virkan þátt í sam­komum og skoð­ana­skiptum veð­ur­fræð­inga og ann­arra fræði­manna.

Mannlíf sendir fjöl­skyldu og vinum Páls sam­úð­ar­kveðjur vegna and­láts­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ