Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Segir þátttöku í Eurovision „siðlausa og smekklausa“: „Afsakið meðanað ég æli“

Segir þátttöku í Eurovision „siðlausa og smekklausa“: „Afsakið meðanað ég æli“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir. Mynd: Facebook

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir segir þátt­töku Íslands í Eurovision vera „bæði sið­laust og smekk­laust.“

Leik- og fjöl­miðla­konan Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir skrif­aði pistil í DV í dag þar sem hún í aðra hönd skrifar um heit­ustu heim­ild­ar­mynd Íslands í dag, Afsakið með­anað ég æli eftir Spessa, og í hina um ábyrgð lista­manna á stríðs­tímum. Í stuttu máli segir Steinunn að heim­ild­ar­myndin sé „meist­ara­verk“ en þar er Megas í aðal­hlut­verki.

Varðandi þátt­töku Heru Bjarkar Þór­halls­dóttur í Eurovision í ár, segir hún að lista­menn eigi að gagn­rýna, þvert á það sem margir telji.

„Á íslensku tón­list­ar­verð­launum gerði for­seti lands­ins það skýrt að þátt­taka í fífla­látum eða galsa­gangi er óvið­eig­andi á stríðs­tímum og við hæfi að sýna þján­ingu ann­arra og sorg til­hlýði­lega virð­ingu. Undarleg þykir mér afstaða þeirra sem tala um lista­menn eins og ábyrgð­ar­laus börn sem ekki megi gagn­rýna. Lista­menn standa ekki utan sam­fé­lags mann­anna, þeir eru speglar mann­anna. Lista­menn á að gagn­rýna! Lista­menn ger­ast lista­menn til að hafa áhrif og bera að sjálf­sögðu mikla ábyrgð. Gagnvart sjálfum sér fyrst og fremst en ekki síður gagn­vart sam­fé­lagi sínu vegna þess sýni­leika sem þeir njóta umfram aðra.“

Þá segir hún þátt­taka í keppni með hryðju­verka­mönnum sé „óhuggu­legur vitn­is­burður um okkur sjálf.“

„Að líta svo á að á okkar tímum sé eðli­legt að láta eins og harmur ann­arra komi okkur ekki við og þramma glað­beitt til leiks með ter­r­oristum er óhuggu­legur vitn­is­burður um okkur sjálf. Að láta eins og þessi skemmtun skipti raun­veru­lega nokkru ein­asta máli er bull. Hvernig væri að berj­ast jafn hat­ramm­lega fyrir því að hér verði til rétt­lát­ara þjóð­fé­lag? Gætum við hugs­an­lega skapað hér betri til­veru? Það virð­ist gleym­ast að púðrið er til að nota það, en aðeins þar sem það gerir gagn.“

Steinunn skýtur einnig föstum skotum á Rík­is­út­varpið fyrir að leið­rétta ekki þær fjöl­mörgu lygar sem sagðar voru í Vest­rænum fjöl­miðlum um atburð­ina 7. októ­ber í Ísrael.

„Fæstar stofn­anir á Íslandi bera sam­fé­lags­lega ábyrgð að heitið geti. Rík­is­út­varpið, sem ætti auð­vitað með réttu að vera eins­konar átta­viti þjóð­ar­innar, er því miður að mestu inni­halds­leysið upp­málað (kannski fyrir utan beinar útsend­ingar Sin­fón­íu­hljóm­sveit­ar­innar og þátta­gerð örfárra). Ekki hefur RÚV til dæmis skrifað orð til leið­rétt­ingar um þann skandal sem frétta­mennska af atburð­unum þann 7. októ­ber síð­ast­lið­inn vissu­lega var. Flest það sem sagt var þá, í heims­ins virt­ustu dag­blöðum sem frétta­stofa RÚV át upp hugs­un­ar­laust, var byggt á veikum grunni og er nú búið að vísa til föð­ur­hús­anna. New York Times hefur orðið að athlægi á heims­vísu vegna þessa stórskandals.“

Enn­fremur segir leik­konan að lista­fólk beri sann­ar­lega ábyrgð á gjörðum sínum.

„Lista­menn hafa mót­andi áhrif á sam­fé­lag sitt og að láta eins og lista­menn séu dulur í höndum stofn­anna eða ákvarð­ana sem þar eru teknar innan er fjar­stæða. Lista­menn bera ábyrgð á gjörðum sínum. Lista­menn hafa, og ég end­ur­tek hafa, umfram aðra í sam­fé­lag­inu, raddir sem tekið er eftir og þess vegna skiptir máli þegar þeir lenda í kring­um­stæðum sem kalla á skýra afstöðu með mann­kyn­inu. Skilaboð lista­manna til umheims­ins ættu ekki að vera villu­ljósið sem segir að frægðin sé öllu æðra, þvert á það sem öllum ætti að vera ljóst.“

Lokaorð Stein­unnar eru hvöss.

„Hvernig við bregð­umst við í stríði skiptir máli, ekki bara í dag heldur líka síðar, enda hefur fjöldi íslenskra alvöru­lista­manna gert það heyr­in­kunn­ugt að þeir láti ekki gera sig að með­hjálp­urum í yfir­breiðslu á þjóð­ar­morðum.

Að fara á svið í egómanískum skrípa­leik með full­trúum þjóðar sem stundar nú hryðju­verk og þjóð­ar­morð – og þar á ég auð­vitað við Ísrael – á meðan verið er að murka lífið úr palest­ínsku þjóð­inni er bæði sið­laust og smekk­laust. Auðvitað ættu þjóðir heims­ins að sýna sam­stöðu og hafna því að keppnin sé haldin að þessu sinni. Við getum skemmt okkur síðar og sú bið er okkur skað­laus með öllu.

Afsakið með­anað ég æli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð