Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Júlíana Dögg var kölluð api fyrir framan hóp af fólki: „Hver stal þér?“

Júlíana Dögg var kölluð api fyrir framan hóp af fólki: „Hver stal þér?“
Júlíana Dögg upp­lifði van­mætti, sorg og reiði í síð­ustu viku – Mynd: Facebook

Háskóla­nem­inn Júlíana Dögg Önnu­dóttir Chipa greinir á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook frá kyn­þátta­hatri sem hún varð fyrir í síð­ustu viku. Und­an­farnar vikur og mán­uði hefur umræða um kyn­þátta­hatur auk­ist á Íslandi og telja sumir að ástandið hafi ekki verið jafn slæmt fyrir minni­hluta­hópa á Íslandi í mörg ár.

„Síð­ast­liðin vika hefur verið skrítin, full af von­brigðum, van­mætti, sorg og reiði. Ég varð fyrir ras­isma tvisvar sinnum á 5 dögum. Í fyrra skiptið var ég kölluð api fyrir framan hóp af fólki og í seinna skiptið var ég spurð hvaðan ég fékk húð­lit­inn minn, ég segi að hann komi frá Mósambík og þá fæ spurn­ing­una “hver stal þér?”.“ skrifar Júlíana um málið.

„Ég ætla ekki að fara dýpra í þessi atvik en ég finn mig knúna til þess að opna þessa umræðu.

Ég skil ekki hvernig fólk í fyrsta lagi hugsar svona og í öðru lagi að það láti svona út úr sér. Hvernig má það vera að árið 2024 sé verið að kalla mig apa og ég spurð hver stal mér og hvernig ég komst til Íslands?“ spyr hún.

„Sorg­legur sann­leik­ur­inn er sá að þessi tvö atvik höfðu ekk­ert rosa­lega mikil áhrif á mig per­sónu­lega vegna þess að ég er svo vön þessu, pælið í því að ég er orðin svo vön því að verða fyrir ras­isma að þetta hefur varla áhrif á mig? En það sem hafði mest áhrif á mig og er ein stærsta ástæða þess að ég vil opna þessa umræðu er að Adeline Brynja og Ayon Rúnar litlu frændsystk­ini Agnars eru mixed race eins og ég og ég vil ekki að þau verði fyrir ras­isma á neinn hátt, það brýtur í mér hjartað að hugsa til þess að þau geta orðið fyrir áreiti fyrir það eitt að vera með dekkri húð en mörg, ég vil ekki að þau verði vön því að verða fyrir ras­isma eins og ég. Þau eiga að geta gengið í skóla, stundað íþróttir og aðrar tóm­stundir, farið út í búð, farið í sund, skemmt sér og lifað líf­inu án þess að verða fyrir ras­isma. Til­finn­ing­arnar sem ég lýsti í byrjun blossuðu upp þegar ég hugs­aði til þeirra,“ heldur Júlíana áfram en orð hennar end­ur­spegla að miklu leyti orð Brynju Dan Gunn­ars­dóttur, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem krafð­ist aðgerða gegn kyn­þátta­hatri á Íslandi á Alþingi fyrr í mán­uð­inum og þá sagði Atli Harð­ars­son pró­fessor að kyn­þátta­hatur á Íslandi væri sýni­legt.

„Þau eiga allt lífið eftir og ég vona að sam­fé­lagið leyfi þeim að vera þau sjálf og gefi þeim tæki­færi til þess að blómstra.

Ég var líka einu sinni bara lítil stelpa með dekkri húð en fólkið í kringum mig og það tekur á að þurfa að heyra það liggur við dag­lega að ég sé öðru­vísi. Ég hef byggt mér skjöld og reyni að leyfa þessu ekki að hafa áhrif á mig en ég vil ekki að það sé það sem þarf til þess að kom­ast af í sam­fé­lag­inu okkar. Ég bið ykkur að líta inn á við og hugsa ykkur tvisvar og jafn­vel þrisvar um áður en þið segið eitt­hvað sem við­kemur húð­lit fólks eða upp­runa. Við erum öll mann­eskjur og eigum skilið að komið sé fram við okkur öll af virð­ingu,“ skrifar Júlíana svo að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð