Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ill meðferð erlends kvikmyndatökuliðs á hestum stöðvuð: „Það blæðir ekki undan ofnæmi!!“

Ill meðferð erlends kvikmyndatökuliðs á hestum stöðvuð: „Það blæðir ekki undan ofnæmi!!“
Úr mynd­skeið­inu

Hesta­sam­fé­lagið logar vegna slæmrar með­ferðar á hestum sem spænskir kvik­mynda­töku­menn leigðu á Íslandi.

Samkvæmt Stein­unni Árna­dóttur, org­el­leik­ara, hesta­konu og bar­áttu­konu stöðv­aði eft­ir­lits­maður Mat­væla­stofn­unar með­ferð á hestum sem leigðir voru af spænskum kvik­mynda­gerð­ar­mönnum hér á landi, um leið og mynd­skeið sem sýndi með­ferð­ina. Steinunn vakti athygli á mál­inu á Facebook í gær og sýndi mynd­band þar sem sjá má tvo menn ríða hestum, sem virð­ast dauð­skelk­aðir.

Steinunn sagði í færsl­unni að beisli­bún­aður hest­anna sé „mjög grun­sam­legur.“ Í færsl­unni segir meðal ann­ars: „Hestar sem voru lán­aðir í mynda­töku­verk­efni eru nú „tuktaðir til“ af Spán­verjum. Beisl­is­bún­aður er ekki sam­kvæmt okkar reglum, slatti af keðjum og krókum og eitt­hvað blæðir eftir með­ferð­ina.“ Segir hún að dýra­læknir hafi skoðað blæð­andi sár eftir keðjur á hest­unum og sagt það vera ofnæmi. „Það blæðir ekki undan ofnæmi!!“ skrif­aði Steinunn.

Í sam­tali við Mannlíf lýsir Steinunn hvað sjá má á mynd­skeið­inu. „Þetta virð­ast vera þægur hestur sem verið sé að trylla. Allar hreyf­ingar knapans eru hálf hrotta­legar og hann er með eitt­hvað í hend­inni sem hann lemur hest­inn með. Það sést ekki hvað þetta er en svo virð­ist sem hest­ur­inn meiði sig, þannig eru við­brögðin. Og þetta með beisli­bún­að­inn, þetta er eitt­hvað sem við erum alls ekki með hér á Íslandi, það eru keðjur og krókar þarna niður undir sem eru hrein­lega ekki leyfðir. Og annað, þetta virð­ist vera alveg hund­þægur hestur, hann ber öll merki þess. Og þá fer maður að hugsa, hvernig er tekið á þeim sem ekki eru eins stilltir og þessi? Sam­fé­lagið logar alveg, fólk er alveg ævareitt.“

Mannlíf ræddi einnig við Ingunni Reyn­is­dóttur dýra­lækni, sem séð hafði mynd­bandið en hún sagði það sýna mis­þyrm­ingu. „Þarna er verið að mis­þyrma hross­inu. Það er alveg út í Hróa hött að koma svona fram við hross.“

Guðni Hall­dórs­son, for­maður Lands­sam­bands hesta­manna er sá sem til­kynnti málið til Mat­væla­stofn­unar en hann skrif­aði eft­ir­far­andi færslu á Facebook í gær:

„Í hádeg­inu í dag fékk ég sím­tal þar sem mér var sagt frá meintri illri með­ferð á hestum í kvik­mynda­verk­efni.

Ég fór beint í það að kynna mér málið og hringdi í fjölda fólks î þeim til­gangi.Í fram­hald­inu sendi ég til­kynn­ingu til MAST um málið og krafð­ist taf­ar­lausra aðgerða, sem orðið var við.Um þrjú leitið fékk ég þetta mynd­band sent.Um kaffi­leitið skilst mér að búið hafi verið að stoppa starf­sem­ina og rétt síðar fékk ég upp­lýs­ingar um að allir í hinu erlenda kvik­mynda­tökuliði sem tengd­ust mál­inu hafi verið reknir og muni hverfa af landi brott.

Svona lagað má aldrei líð­ast og vona ég svo inni­lega að það fólk sem svona fer með skepnur verði dregið til ábyrgðar og fái ekki að halda áfram iðju sinni í öðrum löndum. En það er víst ekki í mínum höndum. Aðal atriðið í dag var að stoppa þessa illu með­ferð strax.“

Hér fyrir neðan má sjá mynd­skeiðið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð