Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fór á stuttbuxum upp Esjuna í snjóstormi: ,,Er hann búinn að missa vitið?”

Fór á stuttbuxum upp Esjuna í snjóstormi: ,,Er hann búinn að missa vitið?”
Gummi Emil Mynd: Trausti Hafsteinsson

Heilsu­fröm­uð­ur­inn Guð­mundur Emil Jóhanns­son seg­ist elska að gera erf­iða hluti alla daga og skora sjálfan sig á hólm. Gummi, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, mætti í settið beint eftir að hafa farið á raf­hlaupa­hjóli yfir hálfa borg­ina á stutt­buxum einum fata.

„Putt­arnir verða kald­astir ef maður er ekki með hanska eða vett­linga, en það þjálfast líka. Ég vil hafa þetta erfitt. Ég var sirka 25 mín­útur á hjól­inu núna og það var vind­kæl­ing, en þetta er bara snilld. Að fara í kuld­ann er eitt það erf­ið­asta sem maður gerir, en ég er búinn að vera að fara hálf­tíma til klukku­tíma alla daga og svo fæ ég í leið­inni sól­ar­ljós og D-vítamín. Við búum á Íslandi og eigum að geta þolað kuld­ann. Svo er þetta geggjuð hug­leiðsla líka. Ég syng stundum og bið guð um að gefa mér góða hluti ef haus­inn ætlar eitt­hvað að fara að kvarta. Þá fer ég bara í þakk­lætið og minni mig á hvað lífið er frá­bært og hvað það er margt sem við getum þakkað fyrir. Svo hjálpar þetta manni að minna sig á alla hlut­ina sem við tökum sem sjálf­sögðum. Núna er mér ískalt, en þá kann ég líka að meta það þegar ég er kom­inn inn í heitt hús með ofnum. Ég er búinn að vera að taka þetta upp á næsta stig núna und­an­farið. Ég er búinn að fara á stutt­bux­unum upp Esjuna í snjóstormi og inn Reykja­dal­inn í mik­illi vind­kæl­ingu. Við ætlum að fara núna 13 apríl upp Esjuna og von­andi koma 300-500 manns með.“

Gummi hefur vakið mikla athygli fyrir vaska fram­göngu á sam­fé­lags­miðlum, þar sem hann birtir reglu­lega mynd­bönd af sér að æfa úti í kuld­anum, öskra sig í gang og fleira sem fæstir myndu gera:

„Það tók mig smá tíma að þora að vera ég sjálfur og hætta að hugsa um álit ann­arra. Mér er skít­sama ef ein­hver finnst ég skrýt­inn. Ég er að gera þetta fyrir mig og veit að ég er að hafa jákvæð áhrif. Ég heyri mjög mikið af jákvæðum hlutum, en svo er reglu­lega verið að segja mér að fólk sé að spyrja: ,,Er hann búinn að missa vitið?” En ég veit hver ég er og fyrir hvað ég stend og það er ekki draum­ur­inn minn að vera eins og allir hinir. Ég er bara orð­inn frjáls og geri það sem ég vil. Það er stór­kost­legt að þora að vera maður sjálfur og þora að stíga inn í styrk­inn. Það kom frétt á RÚV upp úr við­tali við mig um dag­inn þar sem fyr­ir­sögnin var að ég ætl­aði ekki að deyja úr því að vera aum­ingi. Það var eitt­hvað fólk sem vildi taka þetta úr sam­hengi og búa til eitt­hvað nei­kvætt, en ég veit að þau meina ekk­ert slæmt. Það er þung­lyndis- og kvíða­far­aldur í gangi á Íslandi og við verðum að gera eitt­hvað í því. Ef ég næ að hafa jákvæð áhrif á ungt fólk og fá það til að vera meira úti í nátt­úr­unni, hreyfa sig, fara í kuld­ann og hætta að borða óhollt, þá er ég að gera eitt­hvað rétt.“

Gummi seg­ist fá mikil verð­laun við að gera erf­iða hluti og þannig finni hann til­gang, gleði og ham­ingju:

„Ég má ekki lifa of þægi­legu lífi.  Ef ég geri ekki mikið af erf­iðum hlutum mjög reglu­lega enda ég bara óham­ingju­samur. Ég er með mikla orku og verð að losa hana á heil­brigðan hátt. Það hefur alltaf hentað mér að hafa aga og þurfa að erf­iða. Alveg frá því að ég æfði fót­bolta sem gutti og var sagt að hlaupa úti í snjónum og grjót­halda kjafti þó að mér væri ískalt hef ég fílað það að fá að reyna mikið á mig. Forfeður okkar voru hart og sterkt fólk og ég held að það sé inn­byggt í okkur að hafa fyrir hlut­unum. Við sjáum bara töl­urnar þegar kemur að þung­lyndi og kvíða hjá ungu fólki. Það er allt of mikið um til­gangs­leysi og van­líðan af því að lífið er orðið of auð­velt og stefnu­laust,“ segir Gummi og heldur áfram:

„Margir eru komnir í mik­inn víta­hring, en skilja ekki af hverju þeim líður illa. Þú ert kannski í sím­anum meira og minna allan dag­inn, drekkur orku­drykki og kaffi og borðar sykur og dópamín­kerfið er bara komið á hlið­ina. Svo fattar þú ekki af hverju það er lítil orka og mikil van­líðan, en auð­vitað endar það ekki vel ef rútínan manns er orðin svona. Það þarf að hjálpa fólki að gera þessa teng­ingu, svo að það geti hægt og rólega byrjað að breyta lífi sínu í rétta átt.“

Gummi segir ekk­ert gefa sér jafn­mikið eins og þegar hann fái að heyra að hann hafi jákvæð áhrif á fólk. Það gleður hann mikið að boð­skapur hans hafi fengið mikla athygli meðal ungs fólks:

„Ég verð alltaf jafn þakk­látur þegar ungir krakkar og ungt fólk kemur upp að mér og segir mér að ég hafi hvatt þau til dáða til að taka upp betri venjur og bæta líf sitt. Það er frá­bært að vera frjáls og ná að deila styrk og góðum boð­skap með fólki. Ef ég get veitt ungu fólki inn­blástur þá veit ég að ég er að gera eitt­hvað rétt. Að mínu mati hefur aldrei verið meiri þörf á að hvetja fólk til dáða. Við erum öll í þessu saman. Ég fæ reglu­lega hjálp frá góðu fólki til þess að ég geti svo hjálpað öðrum. Ég stunda bæði bænir og þakk­lætisæf­ingar og verð að tengj­ast ein­hverju æðra til að hætta að vera of upp­tek­inn af sjálfum mér. Það sem gefur líf­inu gildi er að vera með til­gang, gefa af sér og hvetja aðra til dáða.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Gumma Emil og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð