Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Jón Arnar hitti Elton John í Atlanta – Fékk sjálfsofnæmi þegar hann hætti í frjálsíþróttum

Jón Arnar hitti Elton John í Atlanta – Fékk sjálfsofnæmi þegar hann hætti í frjálsíþróttum
Jón Arnar vakti gjarnan athygli fyrir skraut­legt útlit á stór­mótum í denn. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Nýjasti gestur Gunnars og Arnórs í Alkasts­inu er eng­inn annar er Jón Arnar Magn­ús­son.

Jón Arnar er flestum lands­mönnum kunn­ugur fyrir frækna frammi­stöðu á frjáls­í­þrótta­vell­inum þar sem hann átti far­sælan íþrótta­feril sem spann­aði yfir hart­nær 20 ár. Á afreka­skránni hjá honum eru verð­laun á Íslands-, Norð­ur­landa-, Evrópu- og Heims­meist­ara­mótum, auk þess að hafa tekið þátt á þrennum Ólymp­íu­leikum og verið kos­inn íþrótta­maður árs­ins í tvígang.

Jón Arnar Magn­ús­son

Til þess að setja formið á Jóni Arnari í tölu­legt sam­hengi sagði hann að upp á sitt besta hafi hann mælst með hámarks súr­efn­is­upp­töku (VO2 max) upp á 91, hámarks­púls upp á 238 (hélt 188 slögum „auð­veld­lega“) og mjólk­ur­sýru­gildi upp á 19. Þetta eru tölur sem bestu úthalds­í­þrótt­menn sam­tím­ans eru ennþá að kepp­ast við!Jón Arnar er alinn upp í sveit og fór fyrst að taka þátt í frjáls­í­þrótta­mótum um 12 ára aldur. Verandi af mik­illi afreksætt lá keppnin strax vel fyrir honum. Hins vegar fór hann ekki að taka íþrótt­ina alvar­lega fyrr en hann var orð­inn 26 ára gam­all og þá fyrir til­stuðlan og með fullum stuðn­ingi frá kon­unni sinni. Hann fór strax að skara fram úr og aðeins ári seinna var hann fána­beri Íslands á Ólymp­íu­leik­unum á Atlanta árið 1996. Upp­lifunin af þeim ólymp­íu­leikum var ein­stök þar sem hann fékk tæki­færi á að sjá banda­ríska Draumaliðið í körfu­bolta og að það hafi verið frá­bært að sjá NBA-stjörn­u­rnar í mat­salnum. Jón Arnar var líka svo lán­samur að fá að heim­sækja Elton John þar sem hann bjó í Atlanta og segir Jón að aldrei á ævinni hafi hann séð eins stóran flygil og í stof­unni hjá honum í tvö­faldri penthouse íbúð. Eina eft­ir­sjáin sem Jón Arnar tal­aði um var að sem fána­beri íslenska liðs­ins fékk hann að gjöf sér­saumað búta­saumsteppi. Í ein­hverjum flutn­ingum end­aði þetta for­láta teppi í Góða Hirðinum og Jón sagð­ist gjarnan vilja fá að heim­sækja teppið ef núver­andi eig­andi er tibú­inn að gefa sig fram.Þegar Jón var 39 ára gam­all tók hann ákvörðun um að hætta keppni og nán­ast frá einum degi til ann­ars hætti hann öllum æfingum sem í rúman ára­tug hafði verið um sex til átta tímar á dag. Mjög fljót­lega eftir að hann hætti æfingu fór hann skyndi­lega að upp­lifa svæsið sjálfsof­næmi sem gerði það að verkum að hann missti hvert ein­asta hár á lík­am­anum. Hann horfði bók­staf­lega á lík­ams­hárin hverfa í sturtu­nið­ur­fallið á mjög skömmum tíma og ennþá í dag er hann hár­laus fyrir utan að honum er nýverið farið að vaxa aftur skegg eftir margra ára skegg­leysi. Jón telur að skyn­sam­legra hefði verið eftir, öll þessi ár í dag­legum æfingum að, trappa sig niður og með því hefði hann komið í veg fyrir þetta gríð­ar­lega sjokk sem fólst í því að stoppa frá einum degi til ann­ars.Jón flutti eftir fer­il­inn til Bret­lands þar sem hann lærði kírópraktor eða hnykk­ingar. Hann segir þetta hafa verið erfið ár af því leiti að hann hafi þurft að setj­ast á skóla­bekk og nema fræði sem öll fór fram á flók­inni ensku. Á end­anum komst hann í gegn um þetta og fimm árum seinna var hann komin aftur til Íslands og hóf starfs­feril sinn sem kírópraktor. Í við­tal­inu fór hann yfir eðli hnykk­inga og útskýrði meðal ann­ars hvað ger­ist í lík­am­anum þegar maður heyrir þessi oft á tíðum ógn­vekj­andi brak­hljóð sem hnykkj­urum tekst að fram­kalla. Jón fór yfir til­felli þar sem kona sem lent hafði í alvar­legu hestaslysi var rúllað inn til hans í hjóla­stól. Hann tók af henni staf­ræna röntgen­mynd og sá að mænan var ekki í sundur en allt stoð­kerfið algjör­lega á skjön. Hann fór rólega af stað með að rétta hana af og eftir nokkur skipti kom hún á hækjum og nokkur skipti eftir það kom hún gang­andi og í dag lifir þessi kona eðli­legu lífi og stundar hesta­mennsku af kappi.

Þetta flotta við­tal við hinn magn­aða afreks­mann má heyra og sjá hér á spil­ar­anum fyrir neðan en einnig má heyra öll við­töl Alkast­ins á öllum streym­isveitum eins og spotify og auð­velt er að merkja við follow eða subs­ribe og fær maður þá til­kynn­ingar í hvert skipti sem nýtt við­tal kemur út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð