Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Vonarglæta hjá Assange: „Skelfilegar pólitískar ofsóknir sem hafa gengið allt of langt“

Vonarglæta hjá Assange: „Skelfilegar pólitískar ofsóknir sem hafa gengið allt of langt“

Kristinn Hrafns­son segir að örlítið von hafi kviknað í gær þegar Joe Biden Banda­ríkja­for­seti sagð­ist vera að íhuga beiðni yfir­valda í Ástralíu um að Banda­ríkin sleppi ákærum á hendur Julian Assange.

RÚV sagði frá því í gær að Joe Biden Banda­ríkja­for­seti sé að íhuga að láta ákærur á hendur Julian Assange, fyrr­ver­andi rit­stjóra Wikileaks, falla niður en ákær­urnar eru átján og eru í tengslum við birt­ingu leynigagna Wikileaks um stríð­rekstur og glæpi Banda­ríkj­anna í Írak og Afganistan.

Í dag eru akkurat fimm ár síðan Julian Assange var færður í örygg­is­fang­elsið Belmarsh í Bret­landi en þar hefur hann mátt dúsa síðan. Mannlíf heyrði í Kristni Hrafns­syni, núver­andi rit­stjóra Wikileaks og vini Assange og spurði hann hvernig þeim félögum lit­ist á orð Joe Biden um að hann væri að íhuga málið. „Sæll. Það vill nú svo til að ég var rétt í þessu að koma út úr Belmarsh fang­els­inu eftir að hafa heim­sótt Julian. Þetta er svo­lítið sér­stakur dagur, það eru nákvæm­lega fimm ár upp á dag síðan Julian var hand­tek­inn og varpað í þessa dýflissu sem Belmarsh fang­elsið er. Það var 11. apríl 2019 sem hann var dreg­inn út úr sendi­ráði Ekvadors af bresku lög­regl­unni.“ Þannig hefst svar Kristinn en svo beinir hann orðum sínum að Joe Biden: „Orð Joe Bidens í gær­kvöldi, þar sem hann seg­ist vera að íhuga þessa beiðni ástr­al­skra yfir­valda um að Julian sé leystur undan þess­ari ákæru og fái að snúa aftur til heima­lands síns, urðu að sjálf­sögðu umtals­efni okkar Julians í morgun. Það er hægt að segja að þarna glitti í ein­hverja von en þessi von­ar­glæta er nátt­úru­lega óskýrð þannig að bæði hann og við sem erum að berj­ast fyrir hans frelsi viljum vita meira hvað hangir á spýt­unni. Og ég reikna með að blaða­menn fylgi þessu fast eftir og krefj­ist skýr­inga á því en hið eina lógíska í þessu er að málið verði hrein­lega fellt niður og Julian geti öðl­ast frelsi. Þetta er mál sem aldrei hefði átt að hefja og er til hábor­innar skammar að það sé búið að fylgja Julian í öll þessi ár.“

Kristinn bendir á að Julian hefur ekki aðeins verið í fimm ár í Belmarsh fang­els­inu heldur hafi hann verið meira og minna ófrjáls ferða sinna síðan 2010, þar af í sjö ár þar sem hann dvaldi í sendi­ráði Ekvador í London.

En hvernig líður Julian eftir allan þennan tíma?

„Líðan hans er að sjálf­sögðu í sam­ræmi við það, maður getur rétt ímyndað sér hvaða áhrif það hefur að vera sviptur frelsi í allan þennan tíma og í kring­um­stæðum þar sem örlög þín eru full­kom­lega óljós og eng­inn endir í sjón­máli. En jú, orð Bidens eru að minnsta kosti ein­hver von­ar­glenna, á því byggj­andi að ætla að það sé að minnsta kosti komið að því stigi að þessu fari að ljúka og kom­inn tími til því þetta er ekk­ert annað en ófagrar og skelfi­legar póli­tískar ofsóknir sem hafa gengið allt of langt.“

Verði Julian Assange fram­seldur til Banda­ríkj­anna gæti hann verið dæmdur í 175 ára fang­elsi og jafn­vel til dauða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ