Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

56% lækna styðja dánaraðstoð – Formaður LÍ dregur í efa niðurstöður könnunar heilbrigðisráðherra

56% lækna styðja dánaraðstoð – Formaður LÍ dregur í efa niðurstöður könnunar heilbrigðisráðherra
Steinunn Þórð­ar­dóttir, for­maður Lækna­fé­lags­ins.

Þau Ingrid Kuhlman, Bjarni Jónsson, Sylviane Lecoulte, Steinar Harð­ar­son, Vet­ur­liði Þór Stef­áns­son og Íris Dav­íðs­dóttir skrifa saman grein sem ber yfir­skrift­ina: Dánar­að­stoð: Hvers vegna skilar Lækna­fé­lag Ís­lands auðu?

Sex­menn­ing­arnir eru stjórn­ar­menn í Lífs­virð­ingu, sem berst fyrir lög­gjöf um dán­ar­að­stoð á Íslandi.

Sex­menn­ing­arnir eru ekki sáttir við stöðu mála hér á landi, og þá þykir þeim að for­maður LÍ (Lækna­fé­lag Íslands) virð­ist ekki trúa nið­ur­stöðum könn­unar sem heil­brigð­is­ráð­herra lét gera, þar sem fram kom að rúm­lega 56% lækna eru hlynntir dán­ar­að­stoð.

„Mið­viku­dag­inn 27. mars sl. var dán­ar­að­stoð umfjöll­un­ar­efnið í Pall­borð­inu á Vísi. Gestir þátt­ar­ins voru Steinunn Þórð­ar­dóttir, for­maður Lækna­fé­lags Íslands, Henry Alex­ander Henrys­son sið­fræð­ingur og Ingrid Kuhlman, for­maður Lífs­virð­ingar.

Tilefni þátt­ar­ins var m.a. að ræða nýlegt frum­varp um dán­ar­að­stoð sem var lagt fram í byrjun mars. Hér fyrir neðan eru okkar við­brögð við því sem kom fram í þætt­inum.

LÍ veigrar sér við að skrifa umsögn um frum­varpið sem Lækna­fé­lag Íslands (LÍ) ákvað að senda ekki inn umsögn um frum­varpið, þrátt fyrir að for­maður þess hafi lýst því yfir að afstaða félags­ins sé skýr; það sé mót­fallið því að læknar veiti dán­ar­að­stoð. Formaður félags­ins full­yrðir einnig að það hafi þó skoð­anir á frum­varp­inu. En hvers vegna velur félagið að láta ekki afstöðu sína end­ur­spegl­ast í form­legri umsögn um frum­varpið?

Er það ætlun LÍ að stýra umræð­unni með því að íhuga málið, móta sér stefnu og hugs­an­lega taka svo þátt í sam­ræðum eftir það? Er mögu­legt að þessi tregða til að tjá sig form­lega um frum­varpið sé í raun til­raun til að seinka fram­gangi máls­ins og drepa umræð­unni á dreif?

Breyt­ingar á afstöðu lækna­fé­laga Formaður LÍ bendir á að alþjóða­sam­tök lækna séu and­víg dán­ar­að­stoð sem og lang­flest aðild­ar­fé­lög sam­tak­anna. Þess má geta, þrátt fyrir þessa and­stöðu, að dán­ar­að­stoð hefur verið lög­leidd í 8 löndum í Evrópu, löndum Eyjaálfu auk Kanada, Kúbu og tveimur ríkjum í Suður-Ameríku. Auk þess hafa lög sem heim­ila dán­ar­að­stoð tekið gildi í 11 fylkjum Banda­ríkj­anna. Í þeim löndum/fylkjum þar sem dán­ar­að­stoð er lög­leg hafa læknar verið hluti af ferl­inu og gert það af fúsum og frjálsum vilja.

Enginn læknir er þving­aður til að veita dán­ar­að­stoð gangi það gegn skoð­unum hans.

Á und­an­förnum ára­tug hafa fjöl­mörg sam­tök lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga í Bret­landi end­ur­skoðað afstöðu sína til dán­ar­að­stoðar eftir að þau létu kanna skoð­anir félags­manna. Sem dæmi þá hafa bresku lækna­sam­tökin (British Medical Association), félag skurð­lækna (Royal College of Surgeons) og félag hjúkr­un­ar­fræð­inga (Royal College of Nursing) fært sig frá því að vera mót­fallin lög­leið­ingu dán­ar­að­stoðar yfir í að taka hlut­lausa afstöðu.

Þessi þróun sýnir breytt við­horf þess­ara heil­brigð­is­starfs­manna til dán­ar­að­stoðar, þrátt fyrir and­stöðu frá lækna­fé­lögum á alþjóða­vett­vangi. Eitt af aug­ljós­ustu merkjum um breytt við­horf til dán­ar­að­stoðar innan lækna­sam­fé­lags­ins á Íslandi er að í fyrsta skipti stíga fram fjórir læknar sem allir hafa langan starfs­feril að baki og mikla starfs­reynslu. Í umsögnum sínum um laga­frum­varpið lýsa þeir yfir stuðn­ingi við frum­varpið og byggja mál­flutn­ing sinn á hald­góðum rökum. Viðhorf þeirra vekur athygli og kallar á ígrundun innan LÍ um gild­andi stefnu félags­ins í afstöðu sinni til dán­ar­að­stoðar.

Lækna­fé­lagið hefur ekki viljað ræða málið. Í Pall­borð­inu lýsti for­maður LÍ yfir von­brigðum með að ekki skuli hafa haft sam­ráð við Lækna­fé­lagið við samn­ingu og fram­lagn­ingu frum­varps­ins þar sem því sé beint sér­stak­lega að lækna­stétt­inni. Þar gleymir hún að LÍ hefur ekki leit­ast við að taka virkan þátt í mótun frum­varps­ins að eigin frum­kvæði. Félagið gekk jafn­vel svo langt árið 2021 að and­mæla þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að fram­kvæma skoð­ana­könnun meðal heil­brigð­is­starfs­manna í þeim til­gangi að fá sem gleggsta mynd af afstöðu þeirra til dán­ar­að­stoðar.

Þessi stað­festa afstaða LÍ gegn dán­ar­að­stoð vekur upp spurn­ingar um vilja og áhuga félags­ins á að vera þátt­tak­andi í umræð­unni. Lífs­virð­ing hefur ítrekað, frá stofnun þess árið 2017, boðið LÍ til umræðu um dán­ar­að­stoð. Fyrsta svarið barst í febr­úar 2024!

Willum Þór Þórsson.

Læknar sem hugsa meira um dán­ar­að­stoð styðja hana. Formaður LÍ dregur í efa nið­ur­stöður könn­unar heil­brigð­is­ráð­herra frá 2023 sem leiddu í ljós að 56,2% lækna styðja dán­ar­að­stoð. Hún heldur því fram að þeir læknar sem hafi ígrundað málið ítar­lega og kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að styðja dán­ar­að­stoð hafi fremur svarað könn­un­inni. Með öðrum orðum tengir hún vand­lega umhugsun lækna um dán­ar­að­stoð við jákvæða afstöðu til hennar.

Þessi við­ur­kenn­ing af hálfu for­manns­ins býr til ákveðna mót­sögn við afstöðu hennar þar sem hún und­ir­strikar ómeð­vitað tengslin á milli góðrar ígrund­unar og stuðn­ings við dán­ar­að­stoð. Ómögu­legt að blanda ekki læknum inn í málið

Í þætt­inum ræddi for­maður LÍ þann mögu­leika að útfæra dán­ar­að­stoð án beinnar aðkomu lækna þar sem þeirra grund­vall­ar­hlut­verk – að lækna og líkna – geti þá hald­ist óbreytt sem og siða­regl­urnar. Þessi hug­mynd er vand­kvæðum bundin, sér­stak­lega í ljósi þeirra skil­yrða sem sett eru fram í frum­varp­inu. Þau krefj­ast þess m.a. að læknir meti heilsu­far sjúk­linga og ávísi lyfjum sem hluti af ferl­inu. Þannig virð­ist það vera flókið, ef ekki ómögu­legt, að taka lækna algjör­lega út út jöfn­unni við veit­ingu dán­ar­að­stoðar.

Hins vegar er vert að taka fram að ekki er gert ráð fyrir að marga lækna þurfi til að ann­ast dán­ar­að­stoð á Íslandi. Ekki er heldur gerð krafa um að ALLIR verði að veita hana heldur aðeins þeir læknar sem eru til­búnir til þess.

Hér má greina sam­an­burð við gift­ingar sam­kyn­hneigðra áður fyrr en í upp­hafi var prestum heim­ilt að neita að gefa saman sam­kyn­hneigð pör og var þessi réttur þeirra kall­aður „sam­visku­frelsi“. Hið sama ætti við í til­viki dán­ar­að­stoðar.

Við hvetjum LÍ til að efna til opinnar og gagn­særrar umræðu um dán­ar­að­stoð innan félags­ins. Byggt á þeim sam­tölum sem við í Lífs­virð­ingu höfum átt við lækna höfum við ástæðu til að ætla að stuðn­ingur þeirra við dán­ar­að­stoð sé meiri en for­maður LÍ gefur til kynna. Við hvetjum því LÍ til að taka til­lit til og virða sjón­ar­mið meiri­hluta lækna eins og þau birt­ast í nýlegri við­horfskönnun heil­brigð­is­ráð­herra. Að minnsta kosti ætti að hefja sam­talið og leyfa umræð­unni að þroskast áfram. Þetta er grund­vall­ar­at­riði til að tryggja að ákvarð­anir sem teknar eru í nafni félags­ins end­ur­spegli raun­veru­legan vilja og afstöðu lækna.

Lífs­virð­ing leggur einnig ríka áherslu á mik­il­vægi þess að LÍ und­ir­búi og fram­kvæmi ítar­lega við­horfskönnun meðal félags­manna sinna um dán­ar­að­stoð. Áður en slík könnun fari fram er grund­vall­ar­at­riði að félagið bjóði félags­mönnum upp á víð­tæka fræðslu um þann stranga lag­ara­mma og það fag­lega verk­lag sem er við lýði í þeim löndum sem hafa leyft dán­ar­að­stoð auk kynn­ingar á þeim ólíku útfærslum sem þjóðir hafa valið.

Finnska lækna­fé­lagið er nú þegar að taka þessi skref. Könnun sem var fram­kvæmd í vetur meðal félags­manna þess leiddi í ljós að 55% finnskra lækna eru hlynntir dán­ar­að­stoð. Í maí er fyr­ir­hugað að efna til umræðu innan félags­ins um dán­ar­að­stoð og hvaða stefnu finnska lækna­fé­lagið ætti að hafa.

Slík nálgun auðgar ekki aðeins umræð­una innan lækna­stétt­ar­innar heldur stuðla einnig að vel upp­lýstri og ígrund­aðri ákvörð­un­ar­töku varð­andi mögu­lega lög­leið­ingu dán­ar­að­stoðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð