Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Sigurlín segir óréttlætið augljóst og afleiðingarnar skelfilegar: „Stjórnvöld gera ekki rassg….“

Sigurlín segir óréttlætið augljóst og afleiðingarnar skelfilegar: „Stjórnvöld gera ekki rassg….“
Sigurlín Bjarney Gísla­dóttir rit­höf­undur og kenn­ari. Mynd: Skjáskot.

Rit­höf­undur og kenn­ar­inn Sigurlín Bjarney Gísla­dóttir ritar afar áhuga­verðan pistil um ástandið á leigu­mark­aðnum hér á Íslandi. Sem er væg­ast sagt slæmt.

„Á 17. öld var mikil þörf fyrir eirkatla og það þótti sér­stak­lega gott að elda mat í þessum kötlum. Þeir voru hins vegar dýrir og efna­meiri ein­stak­lingar byrj­uðu að leigja katl­ana sína út til þeirra sem höfðu minna á milli hand­anna. Þarna gátu þeir sem þegar áttu mikið grætt á þeim sem áttu lítið.

Margir sönk­uðu að sér kötlum til að leigja út.

Síðar komu hol­lenskir steypu­járn­s­pottar (braspottar) til sög­unnar sem voru mun ódýr­ari og „vanda­málið“ var úr sög­unni. (Helgi Þor­láks­son, 2004, bls. 59—60).

Þegar ég las um eirkatl­ana í bók­inni um sögu 17. aldar sá ég sam­svörun í leigu­mark­aði nútím­ans, daufa end­ur­speglun á milli ald­anna.

Fátt er nýtt undir sól­inni.

Það er ekki nýtt að hinir efna­meiri sjái sér leik á borði og finni leið til að græða á þeim efna­minni með því að leigja út djásnin sín. Þegar kemur að leigu­mark­aðnum á Íslandi und­an­far­inn ára­tug þá hrein­lega veit ég ekki hvar ég á að byrja.

Nú þegar hafa Leigj­enda­sam­tökin og fleiri aðilar sýnt fram á það (til fjölda ára) með tölu­legum upp­lýs­ingum að órétt­lætið er aug­ljóst og að afleið­ing­arnar skelfi­legar fyrir marga. Samt breyt­ist ekk­ert. Rík­is­stjórnir hafa sett saman fjöl­marga vinnu­hópa (með tak­mark­aðri aðkomu leigj­enda) en ástandið heldur áfram að versna. Ráð­herrar hafa komið í fjöl­miðla og lýst yfir áhyggjum yfir stöðu leigj­enda en áhyggjur gera ekk­ert gagn fyrir leigj­endur ef þeim fylgja engar raun­veru­legar breyt­ingar.

Þó verð ég að hrósa stjórn­völdum fyrir hlut­deild­ar­lánin. Loksins kom fram raun­veru­leg lausn sem gat hjálpað mörgum…. þangað til allt hækk­aði svo mikið að það var ómögu­legt að kaupa eign með hlut­deild­ar­láni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í langan tíma.

Síðan var lög­unum breytt og það lag­aði ástandið í smá tíma. Sá sem er á leigu­mark­aði þarf yfir­leitt að safna í kringum 10 millj­ónum til að geta fengið greiðslu­mat og keypt fyrstu eign og þau sem falla undir hlut­deild­ar­lán þurfa að safna 3-5 millj­ónum.

Hins vegar er ómögu­legt að safna þegar stór hluti af heild­ar­launum fara í leigu. Það er ómögu­leik­inn í öllu sínu veldi.

Ég vil ekki eyða orkunni í að segja það sem allir segja: ástandið er ekki gott og verður til þess að grát­lega margir draga fram lífið undir fátækt­ar­mörkum. Kannski er betra að benda á skref sem hægt væri að taka í átt að sann­girni og jafn­ari lífs­kjörum: Hús­næð­is­bætur Þegar ung­lingur í fram­halds­skóla nær 18 ára aldri koma allar tekjur náms­manns­ins til lækk­unar á hús­næð­is­bótum. Þessu þyrfti að breyta og taka ekki með í reikn­ing­inn tekjur náms­manns til 22 ára ald­urs. Það myndi tryggja jafn­ræði á milli náms­manna og fjöl­skyldna þeirra hvort sem þeir eru í leigu­hús­næði eða ekki. Hús­næð­is­bætur eru fínar en tekjur þurfa að vera mjög lágar til að þær séu ekki skertar á ein­hvern hátt og hús­næð­is­bætur reyn­ast oft­ast agn­ar­lít­ill plástur á sár sem stækkar hratt.

Raun­færni­mat á fast­eigna­mark­aði Þetta fal­lega orð, raun­færni­mat, er notað þegar kemur að menntun og er við­leitni til að meta reynslu fólks að verð­leikum og meta það sem ein­ingar upp í ákveðið nám.

Hvernig væri að taka upp raun­færni­mat á hús­næð­is­mark­aði?

Ef mann­eskja getur borgað leigu í 20 ár sem er yfir 50% af heild­ar­tekjum þá hefur hún raun­færni til að greiða af banka­láni með lægri afborg­unum. Ef leigj­and­inn hefur verið með gilda leigu­samn­inga þá er hægt að sjá þetta allt aftur í tím­ann og hægt að umb­una þeim þraut­seigj­una. Leiguþak – bætur og styrkir til leigu­sala Núna fá leigj­endur hús­næð­is­bætur sem ráð­ast af tekjum og eignum. Sumir fá sér­stakan hús­næð­is­stuðn­ing frá sveit­ar­fé­lag­inu (sem ætti reyndar að koma sjálf­krafa þegar tekjur fara undir ákveðið við­mið en ætti ekki að þurfa að sækja um) auk þess sem ýmsar hjálp­ar­stofn­anir koma leigj­endum til aðstoðar því það ríkir mikil neyð hjá mörgum á leigu­mark­aði.

Hvernig væri að setja leigu­þak og þeir leigusalar sem þurfa að greiða með eign­unum sínum (hægt að byggja á tekjum, eignum, láns­hlut­falli og afborg­unum) geti sótt um stuðn­ing frá hús­næðis- og mann­virkja­stofnun og jafn­vel hjá hjálp­ar­sam­tökum?

Setjum leigu­þak, gefum leigj­endur smá reisn og flytjum aðstoð­ina yfir til leigusal­anna. Þetta myndi auka jafn­ræði á milli fólks og koma í veg fyrir þessar djúpu fátækt­ar­holur sem leigj­endur lenda ofan í og dýpka með hverju árinu sem líður, með hverju árinu sem stjórn­völd gera ekki rassg….

Nú þegar búa mjög margir í ósam­þykktu iðn­að­ar­hús­næði. Gettóin sem eru að verða til eru í boði stjórn­valda og hins frjálsa (villta og tryllta) leigu­mark­aðar.

Af hverju eru ekki þús­undir að mót­mæla á Aust­ur­velli á hverjum degi?

Jú, leigj­endur eru of upp­teknir að vinna myrkr­anna á milli, of þreyttir og líka margir fullir af skömm yfir því að vera í þess­ari stöðu.

Fyrir tíu árum lýsti Umboðs­maður barna yfir áhyggjum af stöðu barna á leigu­mark­aði. Sama ár hafði vel­ferð­ar­vakt Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins (ráðu­neyti sem er ekki lengur til) sömu áhyggjur. Það er ekk­ert sem bendir til þess að staða þess­ara barna hafi vænkast. Mis­skipt­ingin er hróp­andi! Eirkatlar eða steypa? Þetta er allt sama sultan.“

Heim­ildir:

Helgi Þor­láks­son. 2004. „Undir Einveldi“. Saga Íslands VII. Hið íslenska bók­mennta­fé­lag, Sögu­fé­lag.

Morg­un­blaðið. 8.9.2014. „Hefur áhyggjur af börnum í leigu­í­búðum.“ Mbl.is. Hefur áhyggjur af börnum í leigu­í­búðum (mbl.is)

Rík­is­út­varpið. 14.11.2014 „Áhyggjur af börnum fátækra leigj­enda.“ Ruv.is. Áhyggjur af börnum fátækra leigj­enda – RÚV.is (ruv.is)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ