Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Íslenska ríkið brotlegt í kosningunum 2021: „Enn einu sinni er Ísland rassskelt af MDE“

Íslenska ríkið brotlegt í kosningunum 2021: „Enn einu sinni er Ísland rassskelt af MDE“
Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu. Mynd: EPA.

Íslenska ríkið braut gegn rétt­inum til frjálsra kosn­inga og skil­virkra rétt­ar­úr­ræða við alþing­is­kosn­ingar 2021, sam­kvæmt úrskurði Mann­rétt­inda­dóms­stóls Evrópu. Var hann kveð­inn upp í morgun. RÚV sagði frá nið­ur­stöð­unni.

Kosn­ing­arnar árið 2021 voru frægar vegna end­ur­taln­ingar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi þar sem fimm fram­bjóð­endur misstu þing­sæti sitt og aðrir fimm fengu sæti. Tveir fram­bjóð­end­anna sem misstu þing­sæti sitt, þeir Guð­mundur Gunn­ars­son, odd­viti Við­reisnar í kjör­dæm­inu og Magnús Davíð Norðdahl, odd­viti Pírata, leit­uðu til Mann­rétt­inda­dóms­stóls­ins.

Ýmsir alvar­legir ann­markar komu í ljós við fram­kvæmd kosn­ing­anna en kjör­gögn voru til dæmis látin liggja óinn­sigluð frá kjör­degi þar til þau voru tal­inn degi seinna.

Dóm­stóll­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að óum­deilt sé að ann­markar hafi verið við fram­kvæmd kosn­ing­anna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi en rétt­ur­inn segir ekki ástæðu til að efast um rann­sókn und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefndar, sem skipuð var til að rann­saka ágall­ana í Norð­vest­ur­kjör­dæmi, né heldur með­ferð Alþingis á kvört­unum þing­mann­anna. Þó kemur fram í dómnum að það sé hlut­verk þing­manna að úrskurða um kjör til Alþingis. Vegna eðli máls­ins geti þeir ekki verið „póli­tískt hlut­lægir“ en sér­stak­lega er minnst á að meðal þeirra þing­manna sem fengu hlut­verkið séu einmitt þeir sem áttu sæti sitt undir.

Þá gerir dóm­ur­inn athuga­semd við með­ferð taln­ing­ar­máls­ins fyrir und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd, kjör­bréfa­nefnd og Alþingi, hafi markast af „tak­marka­lausum ákvörð­un­ar­rétti“. Það hafi brotið gegn þrett­ándu grein sátt­mál­ans um rétt til skil­virkra rétt­ar­úr­ræða og rétt­inn til frjálsra kosn­inga. Er íslenska rík­inu því dæmt til að greiða hvorum þing­mann­inum tæpar tvær millj­ónir króna.

Viðbrögð við dómnum

Helga Vala Helga­dóttir lög­maður og fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar skrif­aði færslu um dóm­inn sem hún segir að sé áfell­is­dómur fyrir íslensk stjórn­völd: „Muniði kosn­ing­arnar 2021 og taln­ingar í Borg­ar­nesi? Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu hefur nú dæmt kjós­endum í hag. Dóm­stóll­inn er ekki sam­mála rík­is­stjórn­ar­flokk­unum um að fram­kvæmd kosn­ing­anna hafi verið lýð­ræð­is­leg. Enn og aftur áfell­is­dómur fyrir íslensk stjórn­völd í grund­vall­ar­máli.“

Atli Þór Fanndal, ram­kvæmd­ar­stjóri Íslands­deildar Transparency International, tjáði sig einnig um dóm­inn en í styttra máli en Helga Vala:

„Enn einu sinni er Ísland rass­skelt af MDE.“

Magnús Davíð Norðdahl, annar þeirra sem kærðu kosn­ing­arnar skrif­aði einnig færslu þegar nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins var kunn­gjörð. Þar sagð­ist hann finna bæði fyrir ánægju og kvíða. „Fulln­að­ar­sigur fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu,“ skrifar hann í Facebook-færsl­unni og segir á öðrum stað: „Á sama tíma og ég finn fyrir mik­illi ánægju og gleði að dóm­stóll­inn hafi tekið undir þau sjón­ar­mið, sem við höfum haldið fram frá upp­hafi þessa máls, er það kvíð­væn­legt að ann­markar séu á fyr­ir­komu­lagi lýð­ræðis í okkar sam­fé­lagi.“

Bætir hann svo eft­ir­far­andi orðum við:

„Upp­spretta valds­ins í okkar sam­fé­lagi er í þing­kosn­ingum. Lög­gjaf­ar­valdið velur hverjir fara með fram­kvæmd­ar­vald sem síðan skipar þá sem fara með dóms­vald. Heilindi kerf­is­ins í heild voru því undir í þessu mik­il­væga máli.Enginn ætti að taka lýð­ræð­inu sem gefnum hlut, sér­stak­lega þegar kjörnum full­trúum er falið að úrskurða um gildi kosn­inga þar sem þeir sjálfir náðu kjöri. Nú er það stjórn­valda að grípa til allra við­eig­andi ráð­staf­ana til þess að vernda lýð­ræðið og tryggja að atburðir af þessu tagi end­ur­taki sig ekki. Það þarf meðal ann­ars að gera með löngu tíma­bærum breyt­ingum á stjórn­ar­skrá.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð