Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landlæknir í hart gegn Persónuvernd: „Ákvörðunin grefur undan öryggismenningu“

Landlæknir í hart gegn Persónuvernd: „Ákvörðunin grefur undan öryggismenningu“

Embætti land­læknis krefst ógild­ingar á úrskurði Per­sónu­verndar frá því í fyrra en málið snýr að örygg­is­veik­leika á Heilsu­veru.

Per­sónu­vernd lagði stjórn­valds­sekt að upp­hæð 12.000.000 króna, á emb­ætti land­læknis vegna örygg­is­veik­leika í upp­lýs­inga­vefnum Heilsu­veru þann 27. júlí árið 2023. Hafði þá emb­ættið til­kynnt um örygg­is­brest er tveir ein­stak­lingar náðu sér í gögn sér óvið­kom­andi.

Embætti land­læknis sendi rétt í þessu frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem emb­ættið krefst ógild­ingar á úrskurði Per­sónu­verndar. Embættið telur ákvörð­un­ina efn­is­lega ranga, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni og að með­ferð Per­sónu­verndar á mál­inu ekki „sam­boðna þeim reglum sem eru til grund­vallar íslensku rétt­ar­ríki,“ eins og það er orðað í frétta­til­kynn­ing­unni.

Enn­fremur segir í til­kynn­ing­unni að standi ákvörðun Per­sónu­verndar óhögguð, meðal ann­ars til þess fallin að grafa undan örygg­is­menn­ingu og per­sónu­vernd á land­inu og fæla ann­ars ábyrga aðila frá því að til­kynna um örygg­is­bresti og atvik sem snerta öryggi upp­lýs­inga­kerfa. Embættið segir einnig að ákvörð­unin hafi „veikt stöðu stofn­ana þjóð­fé­lags­ins sem reka og hafa umsjón með mik­il­vægum upp­lýs­inga­kerfum og dregið úr mik­il­vægu hlut­verki Per­sónu­verndar sem er að standa vörð um per­sónu­upp­lýs­ingar lands­manna.“

Þá gerir emb­ætti land­læknis alvar­legar og marg­vís­legar athuga­semdir við máls­með­ferð og starfs­hætti Per­sónu­verndar í mál­inu. Segist emb­ættið ekki skor­ast undan ábyrgð í mál­inu enda hafi verið tekið á því um leið og það kom upp.

Hér má lesa frétta­til­kynn­ing­una í heild sinni:

Frétta­til­kynn­ing 22. apríl 2024

Embætti land­læknis hefur ákveðið að krefj­ast þess fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur að ógild verði með dómi ákvörðun Per­sónu­verndar dags. 27. júlí 2023.  Telur emb­ættið ákvörð­un­ina vera efn­is­lega ranga. Málið tekur til örygg­is­veik­leika í upp­lýs­inga­kerf­inu Heilsu­veru. 

Embættið telur með­ferð Per­sónu­verndar á umræddu máli ekki sam­boðna þeim reglum sem eru til grund­vallar íslensku rétt­ar­ríki. 

Þá er ákvörðun Per­sónu­verndar, standi hún óhögguð, m.a. til þess að fallin að grafa undan örygg­is­menn­ingu og per­sónu­vernd hér á landi og fæla ann­ars ábyrga aðila frá því að til­kynna um örygg­is­bresti og atvik er varða öryggi upp­lýs­inga­kerfa. Þetta getur veikt stöðu stofn­ana þjóð­fé­lags­ins sem reka og hafa umsjón með mik­il­vægum upp­lýs­inga­kerfum og dregið úr mik­il­vægu hlut­verki Per­sónu­verndar sem er að standa vörð um per­sónu­upp­lýs­ingar lands­manna. 

Embætti land­læknis gerir marg­vís­legar og alvar­legar athuga­semdir við starfs­hætti og máls­með­ferð Per­sónu­verndar í mál­inu. Þar á meðal telur emb­ættið að bæði form- og efn­isann­markar séu á ákvörðun Per­sónu­verndar, for­sendur ákvörð­un­ar­innar séu rangar og að rann­sókn máls­ins af hálfu Per­sónu­verndar hafi verið ófull­nægj­andi. Að auki byggi sekt­ar­á­kvörðun á ólög­mætum og ómál­efna­legum sjón­ar­miðum. Þá telur emb­ætti land­læknis mik­il­vægt að fá umfjöllun dóm­stóla um ýmis þau atriði per­sónu­vernd­ar­laga sem uppi eru í þessu máli og máli skipta bæði fyrir emb­ætti land­læknis og almennt séð.

Embættið skor­ast ekki undan ábyrgð hvað varðar umræddan örygg­is­veik­leika. Við honum var brugð­ist með skjótum og fum­lausum hætti og með ítar­legri grein­ingu. Þá var stað­reynt að eng­inn mis­not­aði örygg­is­veik­leik­ann og að þær afmörk­uðu per­sónu­upp­lýs­ingar not­enda Heilsu­veru sem örygg­is­veik­leik­inn náði til lentu ekki í höndum ein­stak­linga sem reyndu að nýta þær í ólög­mætum til­gangi. Þannig leiddi örygg­is­veik­leik­inn til minni­háttar örygg­is­brests sem Per­sónu­vernd var til­kynnt um sam­dæg­urs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð