Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Eiríkur vill ekki auka fjölda meðmælenda: „Icesave sýndarleikur til að róa lýðinn“

Eiríkur vill ekki auka fjölda meðmælenda: „Icesave sýndarleikur til að róa lýðinn“
Eiríkur Ingi Jóhanns­son Mynd: Trausti Hafsteinsson

Eiríki Inga Jóhanns­syni finnst best að liggja úti í móa með lamba­kóti­lettu í hend­inni og njóta frið­ar­ins. Þá heldur hann í von­ina um að finna ást­ina aftur en hann seg­ist hafa sleppt mörgum góðum konum á lífs­leið­inni, því sálin hafi ekki verið til­búin í ást­ina. Þá segir Eiríkur að Icesave-kosn­ingin hafi verið sýnd­ar­mennska.

Upp­á­halds­staður á Íslandi?

Hjartað slær fast­ast í Hrúta­firði, þar sem útsýnið að Trölla­kirkju blasir við mann á tröpp­unum.

Á for­seti að sitja lengur en tvö kjör­tíma­bil?

Ef það er góður maður í brúnni þá er best að hafa hann þar. 

Hvaða breyt­ingar viltu sjá á stjórn­skipan Íslands?

Stjórn­ar­hefðin hefur ríkt of lengi og tíma­bært að borg­arar lands­ins eigi for­seta sem raðar í rík­is­ráð af fag­mennsku og það helst utan þings svo það ríki sjálf­stæði í öllum þremur valdsviðum lands­ins. Með þessu vinnst það lýð­ræði sem lagt var upp með gerð stjórn­ar­skrá Lýð­veld­is­ins Íslands.

Hver er þinn upp­á­halds­for­seti?

Það er eng­inn sem stendur þar fram úr í mínum minnum af for­setum í minni lífs­tíð öll hafa þau sitt ágæti. Vigdís var glæsi­leg, Ólafur mik­ill reisn­ar­maður og Guðni hjart­hlýr.

Finnst þér að gera eigi kröfu um fleiri fjölda með­mæl­enda fram­bjóð­enda til emb­ættis for­seta Íslands?

Ef svo yrði af, væri það mestu aðför að lýð­ræði lands­ins.  
Þetta er mál sem er oft snúið út í ein­hverja höfða­tölu útreik­inga. 
Mín skóðun er sú að Stjórna­skrá­inn ætt­l­ast til að það liggji ákveð­inn vinna á bak við með­mæl­enda söfnun og að sú vinna sé unnin af fram­bjóð­and­anum sjálfum og að með­mæl­endur sé safnað á pappír, það segir sig sjálft að ekki þurfti að til­greina að þetta væri söfnun á pappír enda var ekki um neitt annað að ræða þá. Þessi vinna er ekk­ert minni í dag en var við stöfnun lýð­veld­is­ins. Það sem mætti breyta er kemur að for­seta kosn­ingum í stjórna­skráni er að mínu mati.

5 gr. „For­seta­efni skal hafa með­mæli minnst á pappír 1500 kosn­ing­ar­bærra manna og mest 3000 í heild“ í stað (For­seta­efni skal hafa með­mæli minnst 1500 kosn­ing­ar­bærra manna og mest 3000)
„Sá, sem hefur náð meiri hluta greiddra atkvæði, ef fleiri en einn eru í kjöri, er rétt kjör­inn for­seti“ í stað  (Sá, sem flest fær atkvæði, ef fleiri en einn eru í kjöri, er rétt kjör­inn for­seti).

Með þessum breyt­ingum hefur fram­bjóð­andi lagt sig fram sam­kvæmt hug­mynda­fræði stjórna­skrána og fram­bjóð­andi þarf að hafa meiri hluta atkvæða á bak við sig til að verða rétt kjör­inn.  þetta er þá unnið með for­kosn­ingun sem endar í tví­hliða­kosn­ingu ef skil­yrði nást ekki í for­kosn­ing­unni.

Einnig þarf að gera skil­yrði á raf­rænni söfn­unni að fram­bjóð­andi þurfi að skila inn 500 papp­írs með­mæli sem söfnuð hafa verið í „eigin per­sónu“ til að fá aðgang að raf­rænni söfnun.  Með þessum þrem breyt­ingum væri lýð­ræði tryggt og virðu­legri fram­kvæmd á fram­boðum.

Ef að til­lögur um hækkun á með­mæla­fjölda verði að veru­leika þá er sama og engin von á fram­boðum frá þeim sem eru efna minni eða hafa ekki aðgang að styrktar aðilum. það vil ég engan vegin sjá ger­ast.

Hver er þín helsta fyr­ir­mynd í líf­inu?

Gott fólk með sterkt sið­ferði sem er ekki pen­inga hyggið.

Hver er upp­á­halds tón­list þín?

Ég er voða­leg alæta á tón­list. Þetta ræðst allt eftir aðstæðum og eftir til­finn­inga­á­standi. Eins núna við þessi skrif væri gott að hafa eitt­hvað sem rífur mann upp 🙂

Hefurðu neytt ólöglegra fíkniefna?

Það hef ég aldrei gert og hef svo sem aldrei drukkið áfengi, tók stutta prufu á áfeng­inu á ung­lings árum en átti aldrei nei­kvæða upp­lifun á eigin drykkju, Mér fannst þetta bara ekk­ert spenn­andi og var mikið heilsu­fars pæl­ari, sá engin rök falin í því að það væri gott að hella í sig. Hef heldur aldrei reykt eða neitt álíka. Sykurinn er mín fíkn og er að vinna mér úr því.

Gerði Ólafur Ragnar Grímsson rétt með því að beita neit­un­ar­vald­inu á sínum tíma?

Ég verð lík­lega ekki vin­sæll á þessu svari en látum vaða.

Er varðar Icesave þá virð­ist þetta hafa verið sýnd­ar­leikur lík­leg­ast til að róa lýð­inn sem var í miklu upp námi sem eði­legt var enda var hrunið hræði­legt fyrir flesta og margur fór ílla af. Af hverju segi ég þetta sýnd­ar­leik? Nið­ur­staðan á Icesave kosn­ing­unum hefði aldrei haft neina þýð­ingu á borgun þess­ara skulda og skuld­bind­ingu Íslands við erlendu kröfu­haf­ana þar sem ísland er bundið þessum milli­ríkja­samn­ingum og ef það hefði ekki náðst úr þrota­bú­unum upp í þessar skuldir þá væri annar veru­leiki til staðar, ekki hefði gengið að lemja hnef­ann í borðið og segja við borgum þetta ekki og þrjóskast í gegnum greiðslu­fall sem mundi svo hvíla yfir ríkið um ókomna tíð og engin lána­lína opin eftir það. Sem betur fer var til fyrir skuld­unum og þetta mál til­heyrir sög­unni nú og Icesave-hetjan stendur sem sögu­legur sig­ur­veg­ari þessa máls.

Hver var stærsta stundin í lífi þínu?

Hver ein­asti dagur sem ég vakna upp og veit að ég á mína að enn og fæ fleiri stundir með þeim.

Hver eru mestu von­brigðin?

Svara þessu von­andi ekki 2 júní!

Fal­leg­asta ljóðið?

Ég ætla ekki að ljúga fólki hér og segj­ast hafa eitt­hvað vit eða minni á ein­hverju fal­legu ljóði, þau eru mörg eflaust en ekki föst í mínu minni, þetta er ekki mín sterkasta hlið.

Besta skáldsagan?

Ég hef voða­lega gaman af sögum um sigur van­mátt­ugra yfir þá mátt­ugri hvort það sé Íþróttir, sci-fi eða annað. Engin ein mynd stendur þar fram úr. Gaml­ing­inn var samt hel­víti góður.

Hvað er það besta við Ísland?

Fersk­leik­inn, kaldi vind­ur­inn sem blæs gegnum hárið og frískar lík­amann, sjáv­ar­lyktin sem er ein­kenn­andi fyrir landið, það lyktar ekki allur sjór eins. Vatnið kalda sem er besta lífs­gjöfin að hafa og að liggja í móanum og hlusta á lífið í kringum sig, helst með lamba kóti­lettu í hendi og njóta friðs­ins.

Kanntu á þvotta­vél?

Við skulum vona það á fjögur börn, en já ég hef þvegið af mér frá 13 ára aldri.

Ef þú ættir eina ósk, Íslendingum til hagsbóta, hver væri hún?

Rík­is­vald allra lands­manna en ekki útvalda, þetta fer í þá átt ef við eign­umst for­seta sem raðar fag­lega í rík­is­ráð.

Að þínu mati, hvert er helsta hlutverk forseta Íslands?

Starfs­lýs­ing­inn er í stjórna­skráni sem for­set­inn sver eið til og honum ber að vinna sam­kvæmt henni og vera for­seti allra lands­manna.

Borðarðu þorramat?

Eitt að því sem sem mér þykir vænt­ast um er að fara á þorra­blótið á Borðeyri og sjá sveit­ung­ana sína og borða sig vel saddan af þorra­mat.

Ertu róm­an­tísk/ur?

Ég hef nú verið ein­hleypur lengi, út frá þeim árangri mætti áætla að svo er ekki. Ég held þó alltaf í von­ina að það náist að koma báli á þessum glóðum af róma­tík í mér og verða ást­fang­inn að nýju, kannski er það karma að svo hefur ekki nást enda margar góðar konur sem maður sleppti taki á þegar sálin var ekki til­búin í ást.

Í stuttu máli; hvers vegna ætti að kjósa þig til emb­ættis for­seta Íslands?

Vonandi finnur fólk með sér að ég er gæddur þeim kostum sem verða þjóð­inni til sóma og ákveð­inn í að vinna að auknu lýð­ræði og gæta náung­ans.

Mannlíf lagði spurn­inga­lista fyrir þeim fram­bjóð­endur sem náð hafa lág­marks­fjölda með­mæla, svo þjóðin fái að kynn­ast þeim betur. Munu svör fram­bjóð­end­anna vera birt á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð