Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Er kominn með nóg af skítkasti í umræðu um forsetaframbjóðendur: „Það er eiginlega bara galið!“

Er kominn með nóg af skítkasti í umræðu um forsetaframbjóðendur: „Það er eiginlega bara galið!“
Gísli Ein­ars­sons. Mynd / skjá­skot af RÚV

Gísli Ein­ars­son finnst nóg komið af skít­kasti á for­seta­fram­bjóð­end­urna.

Landa­kóng­ur­inn sjálfur, Gísli Ein­ars­son, skrif­aði færslu á Facebook í gær þar sem hann ræðir um kosn­inga­bar­átt­una sem nú er háð milli for­seta­fram­bjóð­end­anna. Segist hann vilja halda því fyrir sig hvern hann hyggst kjósa enda sé það hans réttur. Eins sé það réttur fólks sem vill deila með alþjóð á Facebook og öðrum sam­fé­lags­miðlum, hverjir eru þeirra upp­á­halds fram­bjóð­endur.

En Gísla finnst nóg komið af skít­kasti sem hann seg­ist hafa séð mikið af und­an­farið.

„Mér þykir hins­vegar ekk­ert gaman að, né skil ég þá þörf sem margir virð­ast hafa, að koma á fram­færi hvern, eða hverja þeir ætla ekki að kjósa og rök­styðja það með orð­færi sem sæmir ekki viti­bornu fólki á opin­berum vett­vangi. Já og varla einu sinni í ein­rúmi.

Ég skil ekki af hverju býsna margt fólk leggur minni áherslu á að mæra sinn eigin for­setak­andídat en meiri áherslu á að níða niður aðra sem eru í fram­boði. Það er eig­in­lega bara galið!“

Segist hann vera mis­hrif­inn af fram­bjóð­end­unum en að þeir hafi allir upp­fyllt til­sett skil­yrði og beri hann virð­ingu fyrir því.

„Allir þeir sem eru í fram­boði hafa upp­fyllt til­sett skil­yrði og eru því í fullum rétti til að bjóða sig fram í umrætt emb­ætti. Það ber að virða og þó ég sé að sjálf­sögðu mis­jafn­lega spenntur fyrir fram­bjóð­end­unum þá virði ég að sjálf­sögðu þeirra lýð­ræð­is­lega rétt, til fram­boðs, og ég ber virð­ingu fyrir að þeir skuli bjóða fram krafta sína.

Fyrir vikið finnst mér þeir allir verð­skulda lág­marks kurt­eisi.“

Þá seg­ist Gísli ekki halda að fram­bjóð­endur vilji ná árangri vegna þess að stuðn­ings­menn þeirra nái að ata aur á and­stæð­ing­ana.

„Ég á heldur ekki von á að neinn þess­ara ágætu fram­bjóð­enda vilji byggja sinn árangur á því hversu vel hans stuðn­ings­fólki hefur tek­ist að ata and­stæð­ing­ana auri! Ég reikna með að þeir vilji frekar vera metnir af eigin verð­leikum en á meintri ómennsku and­stæð­ing­anna!“

Að lokum segir hann að skíta­dreifarar eigi að nota á tún á þessum árs­tíma, ekki í umræðum um for­seta­kosn­ingar.

„Skíta­dreifarar eru hin þörf­ustu tæki og eru þeir gjarnan brúkað­ireinmitt á þessum árs­tíma. Þeirra vett­vangur eru tún og akrar, en þeir hafa ekk­ert að gera í umræður um for­seta­kosn­ingar. Það grær ekk­ert gott upp af þeim skít sem hent er í ein­staka for­seta­fram­bjóð­endur.Það hljómar kannski hroka­fullt en mig langar að fara fram á það í fullri vin­semd að fólk bara hagi sér!Og að gefnu til­efni vil ég geta þess að MINN FORSETI verður sá sem fær flest atkvæði í kom­andi kosn­ingum. Út á það gengur einmitt lýð­ræðið!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð