Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Steinunn Ólína gerir upp kosningabaráttuna með rothöggi: „Sóðasveit Katrínar kom sögum á kreik“

Steinunn Ólína gerir upp kosningabaráttuna með rothöggi: „Sóðasveit Katrínar kom sögum á kreik“
Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir Mynd: Facebook

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tók af sér box­hansk­ana og skrif­aði niður þrumupistil á Facebook í gær. Þar tætir hún í sig alla sem henni fannst hafa smánað for­seta­kosn­inga­bar­átt­una sem nú er nýaf­staðin.„Money can’t buy you loveÉg sé mig knúna til að segja nokkur orð um þessa kosn­inga­bar­áttu svo ég losni við óþolið úr kerf­inu. Síðan vona ég að ég þurfi aldrei að ræða þennan smán­ar­blett á póli­tískri sögu lands­ins framar.“ Þannig hefst færsla Stein­unnar Ólínu, leikkonu og fyrrum for­seta­fram­bjóð­anda en færslan hefur vakið mikla athygli enda skefur Steinunn ekki af hlut­unum.

Og hún heldur áfram:

„Friðjón nokkur Frið­jóns­son kosn­inga­stjóri Katrínar heldur þeim mál­flutn­ingi hennar til streitu að kosn­inga­bar­átta hennar hafi verið heið­ar­leg, sann­gjörn og skemmti­leg. Ekki ætla ég Katrínu að hafa haft fulla vit­neskju um allt það sem gekk á en svo skyni skroppin er hún ekki, að vita ekki full­vel, að hefji maður yfir­leitt sam­starf við óheið­ar­legt og sið­laust fólk þá er sjaldn­ast von á góðu.Ég hef aldrei orðið vitni af jafn skað­ræð­is­legri og ómerki­legri kosn­inga­bar­áttu og þess­ari hér.“

Steinunn kvartar ekki undir aðför­inni gegn henni sjálfri, heldur öðrum sam­fram­bjóð­endum hennar.

„Sú grimmd og heift og frekja snýr ekki að sjálfri mér heldur að þeim and­stæð­ingum sem sjálftöku­fólkið í hirð Katrínar sýndi verðum fram­bjóð­endum í aðdrag­anda kosn­ing­anna.Hvernig Katrín hélt hún gæti rambað úr stóli for­sæt­is­ráð­herra í stól for­seta með þá lygi á lofti að hún hefði yfir­gefið stjórn­málin með skað­ræðis aðfar­ar­frum­vörp að þjóð­ar­heill heit úr eigin kviði á borði þings­ins.“

Og Steinunn er hvergi nærri hætt:

„Hvernig KJ steig inn á sviðið í bar­áttu Baldurs sem var löngu far­inn af stað með glans og af heil­indum.Hvernig Baldur var kraf­inn um hlýðni og að draga fram­boð sitt til baka sem hann hefur gert grein fyrir.Hvernig sóða­sveit Katrínar kom sögum á kreik um per­són­legt líf hans og gerði að almannaróm löngu áður en sá ómerki­legi Stefán Einar gerði sig að fífli fyrir framan alþjóð í þætti hans Spurs­málum.Hvernig því var dreift um sam­fé­lagið að Baldur væri lyg­inn og ómerki­legur her­væð­ing­ar­sinni.Hvernig honum var af fjöl­miðlum nuddað upp úr Icesave.“

Næst talar hún um aðför­ina gegn Höllu Hrund:

„Aðförin að Höllu Hrund var engu skárri. Reynt að gera störf hennar hjá Orku­stofnun ómerki­leg þegar hún er bók­staf­lega ein af fáum sem hefur staðið í lapp­irnar fyrir hönd lands­manna þar inn­an­dyra.Dregin á hár­inu end­ur­tekið fyrir að hafa tekið fund í emb­ætti sínu, fund sem nota bene hafði engin áhrif.Gert grín að óvana hennar í fjöl­miðlum og lát­bragði.Reynt að gera hana að glæpa­manni fyrir að hafa mynd­skeið í kosn­inga­mynd­bandi sínu sem hún sjálf bar enga ábyrgð á.Sjálft Rík­is­út­varpið í síð­ustu kapp­ræðum reyndi að nudda henni upp úr máli sem engan annan til­gang hafði en að reyna að leggja fyrir hana gildru og kom erindi hennar ekk­ert við.“

Og Steinunn hefur ekki lokið sér af varð­andi RÚV:

„Hvernig Rík­is­út­varpið hafn­aði kröfu 11 fram­bjóð­enda um að hafa kapp­ræð­urnar þær síð­ari með sama sniði og þær fyrri af sér­dæld við fyrrum for­sæt­is­ráð­herra.Hvernig Rík­is­út­varpið kom öðru­vísi fram við Katrínu en aðra fram­bjóð­endur svo allir fram­bjóð­endur tóku eftir og hlógu að sín á milli. Lotn­ingin gagn­vart hugs­an­legum for­seta og fyrrum for­sæt­is­ráð­herra gerði alla frétta­menn RÚV að fíflum.Hvernig aug­ljósir per­sónu­legir greiðar hennar sem for­sæt­is­ráð­herra skynu í gegnum þéttriðið stuðn­ings­netið.“

Sjálf­stæð­i­stæð­is­menn fá einnig á bauk­inn hjá leikkon­unni:

„Hvernig Valhöll réði fólk til vinnu við fram­boð hennar grímu­laust.Hvernig pen­ingau­astur fram­boðs KJ ofbauð þjóð­inni með yfir­þyrm­andi aug­lýs­ingum hvar sem komið var við, ýtni við ung­menni, og sú ósmekk­leg­heit að hafa aug­lýs­ingu Katrínar á milli þátta í síð­ustu kapp­ræðum fyrir kosn­ingar hjá RÚV. Hvað er RÚV að pæla?And­styggi­legt var það og and­styggi­legt verður það áfam í manna minnum. Við skulum muna að þeir sem hampa henni mest studdu mann­eskju sem treysti því Bjarni gæti keypt handa henni Bessa­staði í skiptum fyrir for­sæt­is­ráðu­neytið hvar hún hefur setið á svikráðum við þjóð sína und­an­farin ár og sam­visku­sam­lega lagt blessun sína yfir arð­ráns­frum­vörp sem eyði­leggja, munu verði þau ein­hvern­tíman að veru­leika, fram­tíð allra sem á eftir okkur koma.“

Því næst snýr Steinunn Ólína sér að þeim lista­mönnum sem studdi Katrínu Jak­obs­dóttur með ráðum og dáðum í kosn­inga­bar­átt­unni:

„Það fylgir því ábyrgð að vera lista­maður og auð­valds­dæl­urnar og valdasleikj­urnar úr menn­ing­ar­líf­inu sem hæst létu í aðdrag­anda kosn­ing­anna og klesstu sér þétt upp við skap­ara sinn og atvinnu­veit­anda til margra ára, skulu hafa það hug­fast að það á ekk­ert skylt við menn­ingu að mylja undir fólk sem með ásetn­ingi eyði­leggur fram­tíð lands og nátt­úru þar með auð­vitað menn­ingu þjóð­ar­innar. Og það er jafn­framt ómenn­ing­ar­legt að hæð­ast að fólki sem er ekki klippt út úr sama glugga­lausa her­berg­inu og þú sjálfur. Íslenskir menn­ing­ar­páfar með sitt and­lausa raus, sín lélegu ljóð og ömur­legu saka­mála­sögur væri hollt að lesa meira af amer­ískum litt­er­a­túr og sjálfs­hjálp­ar­bókum til að horfa í speg­il­inn og auka víð­sýni sína ofur­lítið.“

Rætt hefur verið um það í sam­fé­lag­inu og í fjöl­miðlum að þjóðin hafi kosið taktískt með því að kjósa Höllu Tóm­as­dóttur, svo Katrín myndi ekki sigra en því er Steinunn ósam­mála:

„Þjóðin kaus ekki taktiskt, þjóðin ein­fald­lega valdi sér for­seta sem fjöl­miðlar og öfl þeirra sem eiga og ráða höfðu ekki eyði­lagt með ófræg­ing­ar­her­ferð úr smiðju leðju­deildar Katrínar Jak­obs­dóttur sem hún hreyfði engum mót­bárum við en augna­ráð hennar flótta­legt vitn­aði um skömm­ina.Þjóðin valdi sér for­seta eins og hún hefur alltaf gert, einu mann­eskj­una sem stóð upp­rétt eftir aðfarir dauða­sveitar Katrínar, sóma­kon­una Höllu Tóm­as­dóttur sem ég er full­viss um að verður okkur fjarska­lega góður for­seti. Halla er mann­eskju­leg, hlý og for­vitin. Hún trúir á manns­and­ann og sam­talið en ekki ískalt yfir­boð­andi reglu­verkið sem drepur allt sem fyrir verður.“

Að lokum birti Steinunn mynd sem sýnir áform rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur fyrir landið og nýt­ingu erlendra auð­manna á gæðum þess, að sögn Stein­unnar:

„Hér gefur að líta á mynd áform rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur sem munu verða minn­is­varði um alla fram­tíð um heil­indi hennar við íslensku þjóð­ina og landið okkar Ísland.Þessi útgáfa mynd­ar­innar er með breyt­ingum sem

Marinó G. Njálsson

gerði á því. Á því eru blá og brún strik, sem hann bætti á það,, til að und­ir­strika svæðin sem VG stefnir á að erlendir auð­menn geti nýtt, ann­ars vegar undir lagar­eldið sitt um aldur og ævi og hins vegar til að flytja út efni um langan veg til að lækka kolefn­is­spor fram­leiðslu sinnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð