Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Lögreglan gerði húsleit á tveimur bóndabæjum nærri Hvolsvelli – Hasshundur þefaði upp vopnabúr

Lögreglan gerði húsleit á tveimur bóndabæjum nærri Hvolsvelli – Hasshundur þefaði upp vopnabúr

Fíkni­efna­deild lög­regl­unnar í Reykja­vík og lög­reglan á Hvols­velli komst heldur betur í feitt þegar gerð var hús­leit á tveimur bæjum í nágrenni Hvolsvallar þriðju­dag­inn 22. nóv­em­ber 1994. Á öðrum bónda­bænum fannst heilt vopna­búr og hell­ingur af ólög­legu bruggi.

Tveimur mán­uðum áður hafði lög­reglan hafið áták gegn bruggi og hafði lokað um tutt­ugu bruggverk­smiðjum. En brugg­ar­arnir á þessum bóndabæ voru einnig afar vel vopnum búnir en þar fund­ust meðal ann­ars tvær hagla­byssur, lás­bogi, gadda­kylfa og rif­ill með hljóð­deyfi. Ábúandi bæj­ar­ins hafði oft komið við sögu lög­reglu.

Á hinum bænum fannst einnig mikið magn af bruggi og sykri en konan sem bjó á bænum sagð­ist eiga við áfeng­is­vanda að stríða og að syk­ur­inn væri til sultu­gerðar. Var hún hand­tekin á staðnum en lög­regl­unni hafði borist upp­lýs­ingar um að landi væri fram­leiddur á bænum til dreif­ingar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Hér má lesa frétt DV af mál­inu:

Húsleit á tveimur bæjum í nágrenni Hvolsvallar í gær:

Heilt vopna­búr fannst við leit í dóp- og brugg­bæli

– lög­regla lagði hald á brugg­tæki og tölu­vert af landa

Fíkni­efna­deild lög­regl­unnar í Reykja­vík og lög­reglan á Hvols­velli gerðu hús­leit á tveimur bæjum í nágrenni Hvolsvallar í gær­dag. Á öðrum staðnum var lagt hald á mik­inn fjölda vopna, um 20 lítra af landa, 100 lítra af gambra í suðu og eim­ing­ar­tæki. Einnig var lagt hald á áhöld til neyslu fíkni­efna á sama stað og tor­kenni­legt duft sem ekki hafði verið efna­greint í morgun.

Morðtól falin í hlöðu

Það var laust eftir hádegi sem lög­reglan renndi í hlað á fyrri bænum en þar er tak­mark­aður hefð­bund­inn búskapur. Enginn var hand­tek­inn en inni í hús­inu fund­ust tvær hagla­byssur, skot­færi, lás­bogi og örvar, illa hirt kana­bis­planta og, eins og fyrr sagði, landi, gambri og mörg áhöld til fíkni­efna­neyslu. Við ítar­legri leit í hlöðu við bæinn fann hass­hundur fíkni­efna­deildar tösku sem í var fjöldi hnífa, gadda­kylfa og byssur. Var hér um að ræða fjað­ur­hnífa, rak­hnífa og veiði­hnífa með allt að 30 sentí­metra löngu blaði. Einnig var þar afsöguð hagla­byssa og riff­ill með hljóð­deyfi fannst á milli hey­bagga.
Ábú­and­inn á bænum hefur oft komið við sögu fíkni­efna­lög­reglu. Ekki er talið úti­lokað að eitt­hvað af heim­il­is­munum séu þýfi úr inn­brotum.

Kristján Ingi Krist­jáns­son, yfir­maður ávana- og fíkni­efna­deildar lög­regl­unnar, sagði í sam­tali við DV í gær að hann hefði orðið áhyggjur af auk­inni vopna­eign í fíkni­efna­heim­inum sem gæti leitt til auk­innar hörku. Benti hann á þann fjölda vopna sem fannst við leit­ina í gær því til stað­fest­ingar.

Sykur til sultugerðar

Síðdegis létu lög­reglu­emb­ættin svo til skarar skríða á öðrum bæ í nágrenn­inu. Upp­lýs­ingar höfðu borist um landa, eimaðan á bænum, í dreif­ingu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.
Þar var kona á fer­tugs­aldri hand­tekin og færð til yfir­heyrslu eflir að öflug eim­ing­ar­tæki, landi og gambri fund­ust við hús­leit á bænum. Um var að ræöa á annan tug lítra af áfengi og 100 lítra af gambra sem konan sagði að væri að hluta til í eigu systur sinnar en ann­ars í sinni eigu. Í land­ann hafði verið blandað bragð­efnum og honum tappað á hinar ýmsu teg­undir af áfeng­is­flöskum. Má þar nefna viskí, kon­íak, líkjöra, vodka og fleira. Við hús­leit fannst einnig tals­vert magn af sykri sem ætla mætti að væri til frek­ari áfeng­is­gerðar en hús­freyjan á bænum sagði hann ætl­aðan til sultu­gerðar. Áfengið kvað hún til eigin nota en engin óregla væri þó á heim­il­inu. Gott væri hins vegar að fá sér dreitil með kaff­inu á kvöldin að loknu amstri dags­ins.
Frá því að ávana- og fíkni­efna­deild lög­regl­unnar tók við rann­sókn brugg­mála fyrir um tveimur mán­uðum hefur deildin upp­rætt vel á annan tug bruggverk­smiðja í Reykja­vík og nágrenni og á Suður- og Vest­ur­landi. Ýmist hefur hún verið ein á ferð eða í sam­vinnu við önnur emb­ætti og einnig slökkvi­liðið. Er hér um veru­lega aukn­ingu að ræða frá því sem áður var.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð