Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Felmtri sló á alla í Búðardal: „Þeir höfðu náð í Maríu heitina og hjeldu henni upp úr sjónum“

Felmtri sló á alla í Búðardal: „Þeir höfðu náð í Maríu heitina og hjeldu henni upp úr sjónum“
Flug­bátur af sömu gerð og fórst í slys­inu. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Flug­bátur í eigu Loft­leiða hófst á loft nálægt Búðardal með átta mann­eskjum inn­an­borðs. Illa hafði gengið að koma flug­bátnum á loft en það tókst í þriðju til­raun. En vélin komst ekki langt því er hún var komin í um 30 metra hæð, tók hún snarpa vinstri beygju og steypt­ist í sjó­inn á vinstri væng og nef og hvolfdi um leið og í sjó­inn var komið.

Fjórir lét­ust, þrír særð­ust og einn komst lífs af án telj­andi meiðsla. Þetta gerð­ist 13. mars árið 1947.

Morg­un­blaðið sagði frá slys­inu dag­inn eftir á eft­ir­far­andi hátt:

4 FARÞEGAR LÁTA LÍFIÐ Í FLUGSLYSI

FLUGBÁTUR HRAPAR VIÐ BÚÐARDAL
Átta manns voru í flug­vjel­inni

Í GÆRDAG hrap­aði í sjó­inn vestur við Búðardal Grumman flug­bátur er var að leggja af stað. Í honum voru átta manns. Af sjö far­þegum fór­ust fjórir.- Tvær konur, önnur hjeðan úr Reykja­vík, en hin frá Búðardal, og tveir karl­menn. Annar frá ísa­firði en hinn frá Búðardal. Af þeim fjórum sem bjargað var slapp aðeins einn ómeiddur. Er slysið vildi til, var veður hið besta og ládauður sjór. Þeir sem fór­ust með flug- bátnum voru:

Frú Elísabet Guð­munds­dóttir, Búðardal, kona Magnúsar Rögn­valds­sonar, verk­stjóra í Búðardal. Hún var um fer­tugt.

Frú María Guð­munds­dóttir, ekkja Guðjóns heit­ins Gam­ali­els­sonar, húsa­meist­ara, frá Berg­stöðum við Berg­staða­stræti, Reykja­vík.

Einar Oddur Krist­jáns­son, gull­smiður, Ísafirði, lætur eftir sig konu og 3 upp­komin börn.

Magnús Sig­ur­jóns­son frá Hvammi í Dölum. Hann var ungur maður ein­hleypur.

Þeir sem björg­uð­ust: Þrem far­þegum og flug­mann­inum var bjargað. Far­þeg­arnir voru: Benedikt Gíslason, prent­mynda­gerða­maður, Reykja­vík, frú Guðrún Arna­dóttir, lækn­is­frú í Búðardal og Magnús Hall­dórs­son frá Ket­ils­stöðum við Búðardal. Flug­maður var Jóhannes Mark­ús­son.

Á leið til Reykja­víkur


Grumman­flug­bátur þessi var eign h.f. Loft­leiða. Ferðinni var heitið til Reykja­víkur. En bæði á Ísafirði og á Djúpuvík höfðu far­þegar verið teknir. — María heitin Guð­munds­dóttir kom í flug­vjel­ina á Djúpuvík, en Einar O. Krist­jáns­son á Ísafirði. Flug­vjelin sett­ist á sjó­inn skamt fyrir framan kaup­túnið. Voru far­þeg­arnir 5, sem ætl­uðu að taka sjer far með flug,- vjel­inni fluttir á bát út í vjel­ina. Rjeru þeir bátnum tveir: Eiður Sig­urðs­son, bíl­stjóri í Búðardal og Aðal­steinn Guð­munds­son, verka­maður. Er þeir höfðu skilað far­þeg­unum út í vjel­ina snúa þeir á bátnum til lands. En mót­orar flug­vjel­ar­innar voru settir af stað. Eftir litla stund rennir flug­maður vjel­inni til flugs. Lyftist hún lítið eitt upp frá sjáv­ar­flet­inum. En síðan sjá menn sjer til mik­illar skelf­ingar að flug­vjelin tekur að hall­ast. — Hvolfist hún yfir á vinstri væng og snýst svo að það skiftir engum togum, að hún er á hvolfi í sjónum, en marar þar í kafi. Sjón­ar­vottar geta enga grein gert sjer fyrir því hvað hafi verið orsök þess að svo fór. En hvað flug­maður segir um orsakir slyss­ins vissi blaðið ekki í gær­kvöldi. Felmtri sló á alla í Búðardal yfir þessu svip­lega slysi, sem þama gerð­ist fyrir augum þeirra án þess að nokkur gæti gert sjer grein fyrir orsökum þess.

Björg­un­ar­starfið

Menn­irnir á ferju­bátnum, sem rjeru út að flug­vjel­inni með far­þeg­ana fylgd­ust með því, sem gerð­ist. Rjeru þeir nú líf­róður út að flug­vjel­inni, þar sem hún lá í sjónum og mar­aði í kafi. Fimm af þeim, sem í vjel­inni voru höfðu kom­ist út úr henni. Flug­mað­ur­inn, Jóhannes Mark­ús­son hafði kom­ist upp á kjöl vjel­ar­innar og eins Benedikt Gíslason. Þeir höfðu náð í Maríu heit­ina og hjeldu henni upp úr sjónum.

En Magnús Hall­dórs­son og eins frú Guðrún Árna­dóttir höfðu náð taki á flug­vjel­inni, nálægt dyr­unum og hjeldu sjer þar. Er blaðið átti tal við Eið Sig­urðs­son í gær­kvöldi til þess að spyrja hann um nán­ari atvik að slys­inu, skýrði hann m.a. svo frá að greið­lega hefði gengið fyrir þeim tveim, sem í bátnum voru að bjarga þeim, sem kom­ist höfðu út úr vjel­inni. — Gerði hann ráð fyrir að liðið hefðu um 15—20 mín­útur frá því að flug­vjelin hrap­aði þangað til að þeir höfðu náð fólk­inu í bát­inn. En að því búnu taldi hann að ekk­ert við­lit hefði verið að bjarga þeim, sem inni í flug­vjel­inni voru. Því að flug­vjelin var þá fyrir löngu full af sjó og senni­lega að far­þeg­arnir hafi aldrei losað sig úr sæt­is­bönd­unum, sem spent voru um þá er flug­vjelin skyldi hefja sig til flugs.

Hvernig komust þeir út?

Ekki er hægt að gera sjer grein fyrir því hvernig þeir komust út úr vjel­inni, sem björg­uð­ust. Eiður sagði blað­inu, að Benedikt Gíslason hefði sagt sjeir, að hann hefði orðið þess var að flug­vjelin fór að hall­ast ískyggi­lega mikið, þá sagt sjer, að er hann hefði orðið losað ólina, sem hann var bund­inn með í sæti sitt. En hann hafði enga hug­mynd um hvernig hann komst út úr flug­vjel­inni. Er Eiður og Aðal­steinn voru komnir með fólkið í land hlupu aðrir menn út í bát­inn til þesg að róa út að flug­vjel­arflak­inu og freista að ná þeim, sem þar voru eftir. En þeir voru ekkl komnir nema skamt frá landi er þeir sáu að flug­vjel­arflakið sökk. Óvíst var talið er í land kom hvort María heitin væri lífs eða liðin. Hóf hjer­aðs­læknir þegar lífg­un­ar­til­raunir, en þær báru ekki árangur. Guðrún Áma­dóttir, kona hjer­aðs­lækn­is­ins var hand­leggs­brotin. En flug­maður, tals­vert særður á höfði. Benedikt var ósár. Magnús Ket­ils­son var lít­ils háttar meiddur. Skýrði lækn­ir­inn blað­inu svo frá í gær­kvöldi, að þeim, sem meidd­ust liði bæri­lega.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð