Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Þegar herlögreglan handtók Kára og Ragnar Skjálfta: „Vertu sæll aldni sósíalisti“

Þegar herlögreglan handtók Kára og Ragnar Skjálfta: „Vertu sæll aldni sósíalisti“

Kári Stef­áns­son rifjar upp þegar hann og Ragnar Kristján Stef­áns­son, „Skjálfti“ voru hand­teknir af banda­rísku her­lög­regl­unni í Keflavík, þegar þeir gerðu til­raun til að taka yfir stúdíó í sjón­varps­stöð hers­ins.

Ragnar Skjálfti verður jarð­sung­inn í dag en af því til­efni skrif­aði gam­all vinur hans og sós­í­alista­fé­lagi, Kári Stef­áns­son fal­lega færslu til að minn­ast Ragnars. Færslan er löng en þar fer hann yfir kynni sín af Ragnari og rifjar upp lítt þekkta til­raun þeirra til að mót­mæla Víetnam­stríð­inu.

„Bréf til Ragnars Stef­áns­sonar

Ég var nítján ára þegar við hitt­umst nokkur að Tjarn­ar­götu 20 og héldum síðan til Kefla­víkur í þeim til­gangi að taka yfir stúdíó í sjón­varps­stöð hers­ins. Þaðan ætl­uðum við að sjón­varpa áróðri gegn stríð­inu í Víetnam. Og þú Ragnar Skjálfti varst bíl­stjór­inn sem áttir að koma okkur undan ef illa færi. Með í för voru þær Róska og Birna Þórðar en ég man ekki eftir fleirum og þar sem ég er búinn að missa síma­sam­band við þig reikna ég ekki með að geta stólað á þig til þess að fylla í eyð­urnar. Ef ég man rétt tókst okkur ekki að stöðva stríðið í Víetnam en við náðum svo sann­ar­lega athygli her­lög­regl­unnar sem fór um okkur heldur ómjúkum höndum þótt varn­ar­sátt­mál­inn segði að hún mætti ekki snerta inn­fædda.“

Þá rifjar Kári einnig upp fleiri skipti þegar þeir mót­mæltu stríð­inu og segir meðal ann­ars:

„Og leiðir okkar lágu saman við fleiri göngur og mót­mæli vegna þess að alls staðar þar sem íslenskir sós­í­alistar börð­ust fyrir betra sam­fé­lagi og meira rétt­læti í heim­inum varst þú nærri.“

Kári beinir svo orðum sínum að hryll­ingnum á Gaza:

„Og nú er mér sagt að háð sé eitt ljótasta stríð sög­unnar í Gaza en það er í raun­inni ekk­ert stríð heldur bara Ísraelar að drepa fjöld­ann allan af Palen­stínu­aröbum í þeirri von að meðal þeirra sem þeir drepa leyn­ist ein­hverjir Ham­asliðar. Hver veit hvort það sé rétt eða rangt en hitt vitum við að meðal þeirra, sem hafa verið sprengdir í loft upp eru um það bil 20 þús­und börn. Af þeim 38 þús­und sem Ísraelar hafa drepið í Gaza eru tutt­ugu þús­und börn og þeir segj­ast hafa reynt að forð­ast að valda óbreyttum borg­urum skaða? Og tækin til þess að drepa börnin fengu Ísraelar frá Banda­ríkj­unum. Ragnar þetta, hvað svo sem það er, sem er að ger­ast í Gaza, veldur mér alls konar vanda. Í fyrsta lagi eru Gyðingar gáf­að­asta þjóð í heimi og allar hetj­urnar mínar úr vís­inda­heim­inum eru Gyðingar og trjónir Einstein þar yfir öllum. Þetta ástand í Gaza bendir lík­lega til þess að höf­uðið sé að mestu gagns­laust án hjart­ans, þess vegna finnst mér Ragnar að það sé kom­inn tími til þess að við hættum að hlægja að honum Sveini Dúfu. En þetta er að vísu enn flókn­ara vegna þess að vinir mínir af gyð­inga­ættum í Ameríku eru allir sem einn í rusli yfir fram­göngu frænda sinna í Ísrael. Hörm­ung­arnar í Gaza eiga ekki rætur sínar í hatri Gyðinga á Aröbum og eru ekki stríð Gyðinga gegn Aröbum heldur glæpur ísra­el­skra fas­ista fyrst og fremst gegn Palest­ínu­mönnum en einnig gegn sögu Gyðinga sem markast af friði og spekt.“

Þá segir Kári að hlutur Banda­ríkj­anna í þjóð­ar­morð­inu haldi fyrir honum vöku enda hafi skoðun hans á land­inu breyst frá því að hann var ungur sós­í­alisti.

„Og síðan er það hlutur Banda­ríkj­anna í þessu þjóð­ar­morði sem heldur fyrir mér vöku Ragnar. Í gamla daga litum við á Banda­ríkja­menn sem villi­menn kap­ít­al­ism­ans sem ekki væri upp á púkk­andi. Ég get það ekki lengur vegna þess að ég bjó þar í tutt­ugu ár og sá þar margt fal­legt og gott í þess­ari fjöbreyti­legu þjóð og svo var hún mér svo örlát og kenndi mér svo margt. Þess utan á ég dóttur og þrjá dótt­ur­syni sem eru Banda­ríkja­menn og þess vegna er mér ómögu­legt annað en að þykja væntum þessa þjóð. Hitt verð ég að segja að það er óásætt­an­leg grimmd af rík­is­stjórn Bidens að dæla sprengjum til Ísrael sem eru not­aðar til þess að varpa á heim­ili, skóla og sjúkra­hús í Gaza og deyða börn og aðra óbreytta borg­ara. Þegar tals­mönnum Hvíta húss­ins hefur verið bent á að það sé verið að drepa börn er svarið gjarnan að Ham­asliðar feli sig meðal barn­anna, þeir séu ein­fald­lega með þessi börn í gísl­ingu. Það er fyrir því löng hefð í Banda­ríkj­unum að fall­ast ekki á að drepa gísla til þess að ná til þeirra sem halda þeim í gísl­ingu. Þar af leið­andi Ragnar eru þessar sprengju­send­ingar Banda­ríkja­manna ekki í neinu sam­ræmi við menn­ingu þeirra heldur eru þær í raun réttri andam­er­ískar og það eina sem gæti rétt­lætt þetta í hugum ráða­manna í Hvíta hús­inu er að þessir gíslar, palentísk börn, hafi minni rétt til lífs en Banda­ríkja­menn. Það stríðir líka gegn hefð í Banda­ríkj­unum sem gengur út á að við mann­skepnur fæð­umst allar inn í þennan heim jafn rétt­háar. Það eina sem í mínum huga Ragnar útskýrir banda­ríska þátt­inn í hörm­ung­unum í Gaza er elli­hrum­leiki Bidens. Hann er að öllum lík­indum búinn að gleyma því að það er ekk­ert í heimi hér sem rétt­lætir það að drepa börn, engin póli­tísk fíló­sófía, engin saga um fyrri átök, engin trú­ar­brögð.“

Minnist Kári einnig á stríðið í Úkraínu og þá stað­reynd að skatt­pen­ingar Íslend­inga séu not­aðir til að drepa rúss­nesk ung­menni. „Ragnar þetta er harður heimur sem þú skilur okkur eftir með og nú verðum við að draga fána rétt­lætis að húni án þinnar hjálpar.“

Lokaorð Kára eru ein­stak­lega fal­leg:

„Og nú ertu far­inn frá okkur. Við Íslend­ingar höfum búið í þessu landi í ell­efu hund­ruð ár og það hefur mótað okkur að því marki að það þarf ekki flókið próf til þess að ákvarða fað­erni þess­arar þjóðar. Við erum afsprengi elds og íss og suð­vestan kalda og rign­ingar. Þetta föð­ur­land okkar kann líka að sýna virð­ingu þegar við á þannig að þegar það var orðið ljóst að þú værir að kveðja hleypti það á stað jarð­skjálfta­hr­inu á Suð­ur­nesjum sem aldrei áður. Það vissi eins og við hin að þú kannt betur en aðrir að lesa þau skila­boð sem eru falin í jarð­skjálftum. Í þetta skiptið sögðu þau: Vertu sæll aldni sós­í­alisti og þökk fyrir alla bar­átt­una.“

Hér má sjá færslu Kára í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð