Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Heimildarinnar, er hættur störfum. Hann upplýsir um brotthvarf sitt í færslu á Facebook og segist sjálfur hafa haft frumkvæði að starfslokunum.
„Fyrir nokkru tilkynnti ég stjórn Sameinaða útgáfufélagsins að ég hefði hug á að láta af störfum sem ritstjóri Heimildarinnar og sú niðurstaða formgerðist í dag,“ skrifar Þórður á Facebook.
Hann segir engan vera ómissandi og það komi alltaf einhver í manns stað. „Heimildin er á góðu róli, búin að fara í gegnum tímabil umbreytinga og uppbyggingar, orðinn mikilvægur miðill í íslensku samfélagi og finna ákveðinn stöðugleika sem mun án efa nýtast til enn frekari vaxtar,“ segir hann.
Þórður segir að nú taki við yfirlega um hvað hann ætli að gera í framtíðinni.„Það er auðvitað skrýtið að kveðja eitthvað sem maður hefur tekið svona mikinn þátt í að skapa og lagt svona mikið í. Og það örlar eðlilega á blendnum tilfinningum,“ skrifar Þórður Snær.































Athugasemdir