Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Dómaranum var ekki heimilt að kveða upp svo mildan dóm

Dómaranum var ekki heimilt að kveða upp svo mildan dóm

Sif Sig­mars­dóttir ritar pistil og byrjar hann á þessum orðum.

„Fyrir þremur árum skrif­aði ég grein um ungan Breta sem átti yfir höfði sér fimmtán ára fang­elsi. Ben John, nem­andi í afbrota­fræði við háskóla í Leicester, var tutt­ugu og eins árs þegar hann var fund­inn sekur á grund­velli hryðju­verka­laga um að hafa ólög­lega undir höndum þús­undir skjala um hvernig búa mætti til byssur, skot­færi og sprengjur.“

Bætir við:

„Óvænt vend­ing átti sér hins vegar stað við dóms­upp­kvaðn­ing­una. Timothy Spencer, dóm­ari í hér­aðs­dómi Leicester á Englandi, dæmdi John ekki í fang­elsi heldur til þess að lesa heims­bók­mennt­irnar. „Hefurðu lesið Dickens?“ spurði dóm­ar­inn. „Austen? Byrjaðu á Hroka og hleypi­dómum og Sögu tveggja borga. Lestu svo Þrett­ánda­kvöld eftir Shakespe­are. Hugsaðu um Hardy. Hugsaðu um Trollope.“ Dómarinn sagð­ist svo ætla að hlýða honum yfir.“

Sif segir að „fyrir síð­asta tölu­blað Heim­ild­ar­innar tók ég saman lista yfir það sem mér fannst 100 bestu íslensku bækur sem gefnar hafa verið út á 21. öld­inni. Viðbrögð ástríðu­fullra bókaunn­enda­létu ekki á sér standa. Bóka­upp­á­stungum rigndi inn frá les­endum sem mæltu með upp­á­halds­bók­unum sínum, efni sem fyllt gæti annan 100 bóka lista. ​Skiptar skoð­anir lestr­ar­hesta um gæði og skemmt­ana­gildi bóka olli því að mér varð hugsað til Ben John. Hvað varð um Ben og hvað fannst honum um bæk­urnar sem dóm­ar­inn lét hann lesa?“

Heldur áfram:

„​Dómurinn yfir Ben John reynd­ist hafa vakið hörð við­brögð. Samtök sem kalla sig „Hope not hate“ – Von í stað hat­urs – og hafa að mark­miði að berj­ast gegn fas­isma sögðu hann „and­styggi­lega vægan“ og „senda út þau skila­boð að dóm­stólar færu mjúkum höndum um hægri öfga­menn.“ Það voru þó ekki aðeins lög­fróðir sem létu í ljós óánægju. Bók­mennta­spek­úlantar gagn­rýndu val dóm­ar­ans á les­efni. Hefði ekki verið nær að láta nýnas­ista lesa Dagbók Önnu Frank eða Thomas Mann? Aðrir and­mæltu slíkum upp­á­stungum og sögðu bók ekki þurfa að inni­halda predikun svo að les­andi hlyti gagn af lestr­inum. Helsti ávinn­ingur lest­urs væri æfingin sem les­andi fengi í að setja sig í spor ann­arra og skipti þá engu hvort les­efnið væri mörg þús­und blað­síðna lang­loka eftir Proust eða nýjasti hasar­tryllir Stephen King.“

Hún færir í tal að „​Ben kom aftur fyrir dóm­ar­ann nokkrum vikum eftir dóms­upp­kvaðn­ing­una. Hann hafði með­ferðis tvær bækur, Hroka og hleypi­dóma eftir Jane Austen og Þrett­ánda­kvöld eftir William Shakespe­are. ​„Og fékkstu meiri ánægju út úr þessu les­efni en því sem var til umfjöll­unar frammi fyrir kvið­dómnum?“ spurði dóm­ar­inn. ​„Mér fannst Shakespe­are skemmti­legri en Jane Austen en ég hafði þó gaman af ákveðnum þáttum Jane Austen,“ svar­aði Ben. ​„Þetta vekur með mér von,“ svar­aði dóm­ar­inn og lagði drög að næsta bók­arabbi kump­án­anna.“

Sif segir að „sam­tökin Von í stað hat­urs voru hins vegar ekki jafn von­góð. Samtökin kröfð­ust þess að rík­is­sak­sókn­ari tæki dóm­inn til end­ur­skoð­unar. Málið fór fyrir áfrýj­un­ar­dóm­stól sem komst að þeirri nið­ur­stöðu að dóm­ar­anum hefði ekki verið heim­ilt að kveða upp svo mildan dóm yfir Ben.“

Segir að end­ingu:

„Við munum lík­lega aldrei fá að vita hvað Ben fannst um næstu bækur á leslist­anum. Í stað bók­lestrar var Ben dæmdur til tveggja ára fang­els­is­vistar.

Bækur björg­uðu Ben ekki frá fang­els­is­vist. Bækur eru þó margs megn­ugar. Lestur er tal­inn draga úr þung­lyndi og kvíða, minnka lík­am­legan sárs­auka, auka sam­kennd og hægja á hrörnun heil­ans. Síðast en ekki síst eru bækur vel til þess fallnar að bjarga fólki frá leið­indum í sum­ar­frí­inu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ