Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Óvin­urinn er inn­an­tóm lof­orð: „Hvernig bregðast manneskjur við yfirvofandi útrýmingu mannkyns?“

Óvin­urinn er inn­an­tóm lof­orð: „Hvernig bregðast manneskjur við yfirvofandi útrýmingu mannkyns?“
Auður Aðal­steins­dóttir. Mynd: Kristinn Ingvarsson – KRI / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Auður Aðal­steins­dóttir for­stöðu­maður Rann­sókna­set­urs HÍ í Þing­eyj­ar­sveit og höf­undur fræði­bók­ar­innar Hamfarir í bók­menntum og listum, skrifar grein sem ber yfir­skrift­ina:

Á valdi til­finn­ing­anna.

„Lofts­lags­vand­inn er bæði óút­reikn­an­leg­ur, gríð­ar­lega um­fangs­mik­ill og flók­inn. Eng­ar ein­fald­ar lausn­ir eru í boði. Meiri­hluti al­menn­ings virð­ist all­ur af vilja gerð­ur til að gera sitt en einn helsti óvin­ur­inn er græn­þvott­ur og inn­an­tóm lof­orð.“

Bætir við:

„Hamfarir hafa alla tíð verið eitt af meg­in­við­fangs­efnum bók­mennta, kvik­mynda og lista, meðal ann­ars sem til­efni til að kanna mann­seðlið og mögu­leik­ann á að skapa okkur ann­ars konar veru­leika. Hvernig bregð­ast mann­eskjur til dæmis við yfir­vof­andi útrým­ingu mann­kyns? Og hvers konar sam­fé­lag væri hægt að byggja á rústum okkar sið­menn­ingar? Því ham­farir fela ekki aðeins í sér eyði­legg­ingu, eins og danski ham­fara­sér­fræð­ing­ur­inn Kristian Cedervall Lauta bendir á í bók sem heitir Kata­strofer. Þær opna gjarnan augu okkar fyrir ein­hverju sem við sáum ekki áður, og það gerir okkur kleift að nota reynsl­una af þeim á upp­byggi­legan hátt: til að læra eitt­hvað um okkur sjálf og sam­fé­lagið, veik­leika okkar og styrk­leika, og til að búa okkur betur undir fram­tíð­ar­ham­farir.“

Auður við­ur­kennir þó að það sé þó „hæg­ara sagt en gert þegar kemur að lofts­lags­vand­anum, sem er, þrátt fyrir að við séum þegar farin að upp­lifa afleið­ing­arnar, bæði svo óút­reikn­an­legur og svo gríð­ar­lega umfangs­mik­ill og flók­inn að engar ein­faldar lausnir eru í boði. Meiri­hluti almenn­ings virð­ist allur af vilja gerður til að gera sitt en einn helsti óvinur þeirra er græn­þvottur og inn­an­tóm lof­orð. Á okkur dynja óná­kvæmar upp­lýs­ingar, mis­skiln­ingur, og, því miður, vað­all af fegr­uðum eða hag­ræddum stað­reyndum sem þjóna hags­munum fyr­ir­tækja og stjórn­mála­afla.“

Hún nefnir að „þótt sem betur fer sé heldur aldrei skortur á fólki sem nennir að leið­rétta rang­færslur virkar nær ómögu­legt að henda reiður á því hvaða aðgerðir séu raun­veru­lega gagn­legar í dag­legu skrolli niður sam­fé­lags­miðl­ana, þar sem við stoppum æ sjaldnar við eitt­hvað og erum oft með annað augað á ein­hverju öðru. Er betra að kaupa íslenska tómata í plasti eða útlenska án plasts? Mengar hybrid bíll meira en venju­legur bens­ín­bíll ef ferð­ast þarf langar vega­lengdir? Jafnvel þótt við tökum tíma í að kafa í rök­semda­færsl­urnar – og vitum reyndar öll í grófum dráttum hvað þarf raun­veru­lega til – þá er vand­inn á þeim skala að þegar upp er staðið er bolt­inn hjá stjórn­völdum og risa­fyr­ir­tækjum. Þar virð­ast hins vegar klisjur um orku­skipti, græna orku og lofts­lags­mark­mið of oft orðin tóm. Eða það sem verra er, þær eru not­aðar til að verja gróða­sjón­ar­mið og jafn­vel umhverf­is­spjöll, eins og kom fram í nýlegri úttekt Hall­gríms Ind­riða­sonar á RÚV um áætl­aða borun Norð­manna eftir málmum á hafs­botni. Vís­inda­menn ótt­ast áhrif slíkra bor­ana á líf­ríki og líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika en yfir­völd og fram­leið­endur segja málm­ana nauð­syn­lega fyrir græn orku­skipti.“

Auður segir að með þessu séu skyndi­lega lofts­lags­mark­mið „orðin rétt­læt­ing fyrir að skaða umhverfið og umræða um umhverf­is­mál notuð til að dul­búa sann­leik­ann, fegra stað­reyndir í eigin þágu, slá erf­iðum ákvörð­unum á frest og jafn­vel verja umhverf­is­spjöll. Margir líta til skáld­skapar og listar í þessu sam­hengi; hann geti hjálpað okkur að kom­ast upp úr klisj­unum, ýtt við okkur. Og það er rétt að rit­höf­undar og lista­menn hafa ekki aðeins verið meðal öfl­ug­ustu aktí­vista þegar kemur að umhverf­is­málum heldur hafa brugð­ist á marg­vís­legan hátt við umhverfiskrísu sam­tím­ans í list sinni. Í ljóða­bók­inni Digte 2014 eftir danska skáldið Theis Ørntoft seg­ist ljóð­mæl­andi þó standa á vega­mótum þess að vera sama og örvænta: „ég les um að maður sé skyld­ugur / til að hugsa á von­góðan hátt á þessum síð­ustu tímum“ segir hann, „En hugs­anir mínar eru ekki von­góðar“.

Auður ljŕ máls á því að „vist­skapur 21. ald­ar­innar ein­kenn­ist reyndar svo mjög af von­leysi og eft­ir­sjá að talað hefur verið um „vistsorg“ og „lofts­lagsmelankólíu“. Slík vist­list er stundum gagn­rýnd fyrir að kynda undir tóm­læti og aðgerða­leysi frekar en að hvetja til hefð­bund­ins aktí­visma. Þegar ég hef haldið fyr­ir­lestra um vist­ljóð­list hef ég fengið athuga­semdir um að þau sorg­ar­við­brögð sem þar megi greina séu ekki gagn­leg. Á móti mætti benda á að nauð­syn­legt sé að horfast í augu við blá­kaldan veru­leika lofts­lags­breyt­inga og láta ekki óraun­hæfar vonir um töfra­lausnir standa í vegi fyrir því að ráð­ist sé að rótum vand­ans. Í skáld­skap sem þessum má finna til­raunir til að vinna til­finn­inga­lega og hug­rænt úr flóknum umbreyt­ingum, þar sem umhverfið sem við þekkjum er að hverfa úr aug­sýn og við tekur ókunn­ug­legur og ógn­vekj­andi veru­leiki.“

Solveig Roep­s­torff .

Hún nefnir einnig að „auk sorg­ar­við­bragð­anna veldur lofts­lagskrísan kvíða og streitu og vís­inda­menn sem reynt hafa ára­tugum saman að vekja athygli á vand­anum finna fyrir ein­kennum kuln­unar. Þetta eru allt við­eig­andi og mann­leg við­brögð við raun­veru­legri og alvar­legri kreppu, und­ir­strik­aði danski sál­fræð­ing­ur­inn Solveig Roep­s­torff í við­tali við Psykolog­ens fag­magasin árið 2022. Meðal óheppi­legra við­bragða er hins vegar hegðun á borð við það að finn­ast það skyn­sam­legt að fljúga minna eða draga úr fata­kaupum en gera það samt ekki. Það verður eins konar klofn­ingur milli ásetn­ings og hegð­unar vegna þess að fólk hefur enga reynslu af mögu­legum fram­tíð­ar­á­vinn­ingi. Það er meira að segja til eitt­hvað sem kall­ast „óhollt úthald“ sem þýðir að þegar fólk hefur lagt mik­inn tíma og fyr­ir­höfn til að skapa sér gott líf er það lík­legra til að halda áfram á sömu braut þrátt fyrir vit­und­ina um skað­leg áhrif þess á lofts­lagið.“

Auður segir að „þótt þannig megi nota ýmis hug­tök sál­fræð­innar til að útskýra hegðun og líðan fólks á tímum lofts­lags­breyt­inga, og stundum þró­ist hún yfir í hamlandi kvíða sem krefst kvíða­með­ferðar, leggur Roep­s­torff áherslu á það, í bók sem ber tit­il­inn Klimapsyko­logi, að van­líðan vegna lofts­lags­breyt­inga sé almennt séð ólík kvíða­rösk­unum. Hún flokk­ist ekki sem sjúk­legt ástand og ekki verði leyst úr henni með ein­stak­lings­með­ferð. Við þurfum að takast sam­eig­in­lega á við þessar til­finn­ingar og hegðun, í almanna­rými. Og það gerum við ekki með inn­an­tómum klisjum eða græn­þvotti, heldur með því að eiga dýpri og merk­ing­ar­fyllri sam­skipti um vand­ann. Til dæmis í bók­menntum okkar og listum. Því einmitt vegna þess að ekki er hægt að tak­marka skáld­skap­inn við að vera „gagn­legur“ og upp­byggi­legur og vegna þess að listin er í raun eins og vist­kerfin okkar, flókin og stundum ófyr­ir­sjá­an­leg, þá felst í henni tæki­færi til að tjá og kanna þennan flókna vanda. Þar með talið til­finn­inga­leg við­brögð okkar: sekt­ar­kennd, ótta, afneitun og von­leysi – en líka jákvæð­ari við­brögð á borð við seiglu, sam­fé­lags­lega ábyrgð og umhyggju.

Sigrún Inga Hrólfs­dóttir.

Við mann­eskj­urnar skynjum og tengj­umst umhverfi okkar ekki síður (og kannski enn frekar) gegnum til­finn­ingar en með rökum. Og und­an­farið hefur mynd­list­ar­konan Sigrún Inga Hrólfs­dóttir beint athygli að þeirri stað­reynd að til­finn­ingar okkar eru hluti af hinu flókna sam­spili efna í heim­inum og því dæmi um það hvernig við erum sam­ofin umhverfi okkar. „Nátt­úru­leg efni í lík­am­anum eins og end­or­fín og oxýtósín hafa áhrif á líðan okkar og ég skynja þessi áhrif sem liti en þau eru samt ósýni­leg, hug­læg,“ segir í texta um verkin í sýn­ingu hennar, Invizible Colors.Þessi mynd­ræna tján­ing á öfl­unum sem eru að verki í heim­inum, líka ósýni­legum öflum á borð við átök, löngun, ást og vellíðan, er hennar fram­lag til sam­skipta um „flók­inn vef til­finn­inga, stjórn­mála, vís­inda, pen­inga- og valda­tengsla, stig­veldis kynja og kyn­þátta, svo og und­ir­ok­unar teg­unda sem ekki eru mann­legar“.

Auður er á því að „þannig getur listin hjálpað okkur að átta okkur á því að við erum ekki bara á valdi til­finn­inga heldur tökum við þátt í heim­inum með því að finna til. Réttláta reiði má til dæmis beisla í bar­áttu fyrir betri ver­öld. Og eins og Auður Ava Ólafs­dóttir skrifar um í skáld­sög­unni Eden þá er sam­kennd og virð­ing fyrir sam­hengi sem er stærra en maður sjálfur lyk­ill­inn að meiri skiln­ingi á hinum flókna vef sem tengir allt saman: „Og þá fer ég allt í einu að hugsa um að það er sagt að geim­farar gráti. Að þegar maður væri kom­inn nógu langt í burtu og greinir ekki lengur landa­mæri þá gleymi maður átökum manns­ins á jörðu niðri og að jörðin hitni og að yfir­borð sjávar hækki stöðugt og sjái þess í stað hvernig allt loðir saman. […] Og þegar maður skilur hversu lítið má út af bera til að [jörðin] fari út af spor­inu þá beri til­finn­ingar mann ofur­liði og fólk fall­ist í faðma og gráti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð