Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Séra Davíð Þór Jónsson: „Kynferðisofbeldi í ísraelskum fangelsum er kerfisbundið og viðtekið“

Séra Davíð Þór Jónsson: „Kynferðisofbeldi í ísraelskum fangelsum er kerfisbundið og viðtekið“
Sam­stöðukór­inn fyrir frjálsri Palest­ínu hlýðir á ávarp Davíðs Þórs. Mynd: Facebook

Sam­stöðukór fyrir frjálsri Palest­ínu söng fyrir framan dóms­mála­ráðu­neytið í fyrrdag. Séra Davíð Þór Jónsson flutti ávarp um Ísraelsk fang­elsi áður en kór­inn söng.

Sam­stöðukór fyrir frjálsri Palest­ínu.

Félagið Ísland-Palest­ína birti í gær ljós­myndir og ávarp sem séra Davíð Þór Jónsson fór með þegar sam­stöðukór fyrir frjálsri Palest­ínu söng fyrir utan Dóms­mála­ráðu­neytið í fyrra­dag. Ráðu­neytið fer meðal ann­ars með mál­efni fang­elsa á Íslandi en af því til­efni fjall­aði ávarpið um ísra­elsk fang­elsi.

Sam­stöðukór fyrir frjálsri Palest­ínu.

Hér má lesa ávarp séra Davíðs Þórs í heild sinni:

„Í dag syngjum við fyrir frjálsri Palest­ínu fyrir utan Dóms­mála­ráðu­neytið, ráðu­neytið sem fer meðal ann­ars með mál­efni fang­elsa á Íslandi. Af því til­efni er yfir­lýs­ing dags­ins um ísra­elsk fang­elsi.Síðustu 12 mán­uði hefur Ísrael breytt fang­elsum sínum, sem þá þegar voru hrylli­leg, í pynt­ing­ar­dýflissur fyrir Palest­ínu­menn. Alræmdasta dæmi þess er Sde Teiman-fang­elsið. Heil­brigð­is­starfs­mönnum, kenn­urum, blaða­mönnum og þús­undum óbreyttra borg­ara hefur verið rænt af Gaza og þau fang­elsuð í Sde Teiman. Fólk fær engar upp­lýs­ingar um hvort ást­vinir þeirra eða ætt­ingjar eru fang­elsuð þar. Í Sde Teiman hverfur fólk inn í svart­hol.Þau sem lifa af og er sleppt lýsa kerf­is­bundnum pynt­ingum; lík­am­legum, and­legum og kyn­ferð­is­legum. Þessar lýs­ingar hafa feng­ist stað­festar af aðilum á borð við CNN, New York Times, ísra­elsku mann­rétt­inda­sam­tök­unum B’tsalem og upp­ljóstr­urum sem starfa í fanga­búð­unum, en þús­undir ísra­el­skra her­manna hafa starfað þar. Fangar eru neyddir til þess að halda sömu stöðu klukku­tímum saman og ef þeir fip­ast er þeim refsað með bar­smíðum. Fangar eru vaktir eftir lít­inn svefn þegar hundum er sigað á þá. Í Sde Teiman fá ólærðir heil­brigð­is­nemar að fram­kvæma aðgerðir án deyf­ingar eða bún­aðar. Ísra­elskur læknir sem vann í Sde Teiman sagði algengt að taka þyrfti hendur af palest­ínskum föngum vegna þess að hand­járnin eru vilj­andi höfð svo þröng að þau stoppa allt blóð­flæði. Fangar fá hvorki athvarf frá sum­ar­hit­anum né vetr­ar­kuld­anum. Ísraelar svelta fanga og þurfa tíu fangar að deila mat­ar­skammti sem rétt nægir fyrir einn. Raf­byssum er ítrekað beitt á kyn­færi fanga. Afmennskun Palest­ínu­manna gengur hvergi lengra en í Sde Teiman og í öðrum ísra­elskum fang­elsum.Í lok júli voru níu fanga­verðir hand­teknir í Sde Teiman eftir að Palest­ínu­maður var fluttur þaðan á sjúkra­hús með brotin rif­bein og rif­inn enda­þarm eftir alvar­lega hópnauðgun af þeirra hálfu. Ísra­elskir stjórn­mála­menn for­dæmu hand­tök­unar og í kjöl­farið braust hópur Ísraela inn í Beit Lid-fang­elsið þar sem söku­dólgarnir voru vistaðir til þess að frelsa þá. Þeim var á end­anum sleppt og kær­urnar felldar niður. Nokkrum dögum seinna var mynd­band­inu af hópnauðg­un­inni lekið. Mynd­bandið sýnir þaul­æfða gjörð, bæði hvernig fórn­ar­lambið er valið og hvernig fanga­verð­irnir skýla hver öðrum svo að ekki sé hægt að bera kennsl á þá. Þessir ofbeld­is­menn ganga frjálsir í dag og er reglu­lega boðið í ísra­elska spjall­þætti, ekki sem óþokkum heldur sem hetjum. Kyn­ferð­is­of­beldi í ísra­elskum fang­elsum á hendur Palest­ínu­mönnum, körlum, konum og börnum, er kerf­is­bundið og við­tekið, ger­end­urnir bæði konur og karlar. Það er und­an­tekn­ing ef palest­ínskir fangar eru ekki beittir kyn­ferð­is­of­beldi. Hægt er að hand­taka alla Palest­ínu­menn fyrir það eitt að vera Palest­ínu­menn. Og vegna þess að eng­inn getur stað­ist stans­lausar kvalir og pynt­ingar játa flestir á end­anum að til­heyra and­spyrnu­hópum. Það er búið að afnema öll rétt­indi í ísra­elskum fang­elsum og hafa fanga­verðir fengið leyfi til að halda pynt­ingum sínum áfram frá þjóðar­ör­ygg­is­ráð­herra Ísraels, Itamar Ben-Gvir, sem segir að allir palest­ínskir fangar séu „sori mann­kyns“. Palest­ínskur fangi lýsir því þegar hann var pynt­aður að einn her­maður hafi montað sig af því að Itamar Ben-Gvir væri að horfa á þá í beinu streymi. Þetta er lýsandi fyrir það með hversu mik­illi vit­neskju og sam­þykki ísra­el­skra stjórn­valda fangar í ísra­elskum fang­elsum eru beittir ofbeldi. Í sept­em­ber úrskurð­aði Hæsti­réttur Ísraels að Sde Teiman yrði ekki lokað. Samfélag sem upp­hefur pynt­ara og nauð­gara eins og hetjur getur ekki fengið að til­heyra alþjóða­sam­fé­lag­inu. Samfélag sem neitar að loka pynt­ing­ar­dýfliss­unum sínum getur ekki fengið að til­heyra alþjóða­sam­fé­lag­inu. Samfélag þar sem her­menn krefj­ast þess að fá að nauðga óvinum sínum má ekki fá að til­heyra alþjóða­sam­fé­lag­inu. Það brýtur gegnum öllu okkar sið­ferði og gildum og við krefj­umst rétt­lætis fyrir Palest­ínu­menn. Þessi stutti texti reifar aðeins brot af þeim glæpum sem fá að við­gang­ast í ísra­elskum fang­elsum. Við krefjum þig, Guðrún Haf­steins­dóttir dóms­mála­ráð­herra, um að beita þér fyrir því að rík­is­stjórn Íslands fram­fylgi eft­ir­far­andi kröfum: ● Að styðja kæru Suður-Afríku á hendur Ísra­els­ríkis fyrir brot á Sáttmála Sam­ein­uðu   þjóð­anna gegn þjóð­ar­morði.● Að slíta stjórn­mála­sam­starfi Íslands við Ísrael.● Að Alþingi Íslands sam­þykki þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um við­skipta­þving­anir gagn­vart   Ísrael og að rík­is­stjórnin setji þær þving­anir á eins fljótt og auðið er. Sam­stöðukór fyrir frjálsri Palest­ínu“

Sam­stöðukór fyrir frjálsri Palest­ínu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð