Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Manndrápstilraun á Vopnafirði – Sagður hafa reynt að stinga fyrrum sambýliskonu á hol með járnkarli

Vopnafjörður
Vopna­fjörður Mynd: east.is

Kona liggur þungt haldin á Sjúkra­húsinu á Akureyri eftir alvarlega líkams­árás á heimili sínu snemma á miðvikudags­kvöld. Fyrrum sambýlis­maður konunnar er grunaður um að hafa ráðist á hana en þau búa hvort á sínum sveitabæ skammt frá Vopna­fjarðarbæ.

DV segir frá líkams­árásinni sem gerð var á sveitabæ nærri þorpinu í Vopna­firði en vitni sem var í sambandi við þolandann eftir árásina, sagði frétta­miðlinum að maðurinn hafi gert tilraun til þess að reka fyrr­verandi sambýlis­konu sína á hol með járnkarli en þegar það hafi mistekist hafi hann tekið hana hálstaki. Er hún sögð mjög marin á hálsi og hnakka eftir líkams­árásina og með varnarsár á höndum. DV segir hana hafa legið meðvit­undalítil á gólfi skemmunnar þegar hún fannst stuttu eftir árásina og tjáð viðstöddum að hennar fyrr­verandi hafi reynt að drepa hana.

Eftir árásina var maðurinn hand­tekinn og yfir­heyrður af lögreglunni á Egils­stöðum en látinn laus eftir yfirheyrsluna. Lögreglan telur að málið liggi ljóst fyrir og krefst ekki gæslu­varðhalds yfir manninum.

„Hann kom sér fyrir í 300 metra fjarlægð frá henni, þar sem hann getur fylgst með henni. Hann segir að rifflinum sé miðað að húsinu hennar,“ hefur DV eftir aðila sem þekkir til málsins.

Fram kemur í frétt DV að árásin sé partur af langri sögu ofbeldis sem er sögð hafa eitrað líf tveggja barna parsins fyrr­verandi og valdið þeim miklum skaða.

Maðurinn er sagður hafa reynt að nauðga konunni á heimili hennar síðasta sunnudags­kvöld en að sýslu­maðurinn á Egils­stöðum hafi neitað henni um nálgunnar­bann, þar sem atvikið þótti ekki nógu alvarlegt. Daginn eftir ku maðurinn hafa reddað sér skotvopni en hann býr mjög nærri sveitabæ konunnar. „Hann kom sér fyrir í 300 metra fjarlægð frá henni og fylgist með henni þar. Hann segir að rifflinum sé miðað að húsinu hennar,“ segir aðili sem þekkir til málsins í samtali við DV.

Konan er sögð vera á fertugsaldri en maðurinn á sextugsaldri en fyrir 15 árum sakfelldur fyrir kynferðis­brot gegn unglings­stúlkum sem vistaðar voru á heimili þar sem maðurinn starfaði. Síðustu misserinn hefur hann verið kærður til lögreglu fyrir líkams­árásir á Vopna­firði samkvæmt DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

„Orð mega sín lítils frammi fyrir slíkum missi.“

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið