Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Aðeins um Sigmund Davíð – hugsað yfir morgunsopa! – „Hvað er að ykkur? Hvað er að okkur?“

Aðeins um Sigmund Davíð – hugsað yfir morgunsopa! – „Hvað er að ykkur? Hvað er að okkur?“
Auður Jóns­dóttir Mynd: Kazuma Takigawa

Rit­höf­und­ur­inn Auður Jóns­dóttir skrifar „aðeins um Sigmund Davíð – hugsað yfir morg­un­sopa!“

„Þegar Sig­mundur Davíð var frekar nýorð­inn for­sæt­is­ráð­herra kúrði ég heima með son minn ungan í slag­viðri og gráma. Í frétt­unum ómaði ein­hver mál­flutn­ingur hans sem gerði mig álíka von­lausa og veðrið. Svo ég sendi fyrr­ver­andi mann­inum mínum póst og sagði að við yrðum að flytja aftur til útlanda, hvort hann gæti drifið í því að finna íbúð. Hann fann íbúð í Berlín og við fjöl­skyldan fluttum út. Sonur minn fór í leik­skóla þar og ég man eftir deg­inum þegar leik­skóla­kenn­arar og for­eldrar horfðu á mig, eftir alþjóð­legan frétta­flutn­ing af póli­tíkusum hér, með með­aumkun og undrun í senn – pínu eins og ég væri óviti. Það var í kjöl­far upp­ljóstrana svo­kall­aðra Panama-skjala.

Ég reyndi að útskýra fyrir þýsku leik­skóla­kenn­ur­unum að ég væri póli­tískur flótta­maður. Systir mín og mágur voru þá hjá mér og eitt­hvað var kallað á eftir þeim þegar þau röltu um hverfið að tala íslensku. Það loddi skömm við mann, bara yfir því að vera Íslend­ingur.

Kannski svipuð skömm og sumir Íslend­ingar fundu fyrir erlendis í Hruninu.

Ein­hverjum árum seinna var ég flutt heim og þá skall Klaust­urs­málið á. Ég man eftir að hafa lesið fréttir sem stig­mögn­uð­ust og var að fara að sofa en gat ekki sofnað af þörf fyrir að skrifa. Svo ég hent­ist á fætur rétt fyrir mið­nætti, vakti Báru Huld Beck vin­konu mína sem þá var að vinna á Kjarn­anum og sagð­ist verða að birta pistil. Hún hélt sér vak­andi meðan ég gubb­aði honum út úr mér. Hann hét Ofbeldi gagn­vart konum – ef þing­menn sitja áfram: https://kjarninn.is/…/2018-11-30-ofbeldi-gagnvart…/

Í októ­ber núna las ég síðan grein þar sem Heimir Már fjallar um spjall við Sigmund Davíð í Sam­tal­inu. Þar segir:

„Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins vill að allir þeir sem koma að land­mærum Íslands til að sækja um hæli verði taf­ar­laust sendir til baka. Þeir missi jafn­framt rétt­inn til að sækja um vernd á Íslandi. Þá væri ekki hægt að ætl­ast til að Íslend­ingar aðlagi sig að menn­ingu og siðum þeirra sem hingað flytja, heldur verði fólk sem vilji búa hér að aðlaga sig að íslensku sam­fé­lagi.“

Um mán­uði síðar les ég svo á DV:

„Eyjan efndi um helg­ina til könn­unar meðal les­enda um hvern þeir vilja fá sem næsta for­sæt­is­ráð­herra. Tilefnið er aug­ljóst, alþing­is­kosn­ing­arnar sem fara fram 30. nóv­em­ber næst­kom­andi. Skemmst er frá því að segja að hlut­skarpastur í þess­ari könnun var Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­maður Mið­flokks­ins sem var eins og flestir ættu að muna for­sæt­is­ráð­herra á árunum 2013-2016. Flestum þátt­tak­endum í könn­unni líst því vel á að Sig­mundur Davíð snúi aftur í for­sæti við rík­is­stjórn­ar­borðið.“

Í fyrra­vetur skrif­uðum við Jón Ferdin­and, þá starfs­fé­lagi minn, grein í Heim­ild­ina sem heitir Popúlísk aðferð til að ná eyrum óör­uggra karla og birt­ist hér:

https://heimildin.is/grein/21911/

Snorri Másson fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins.

Við veltum vöngum yfir Skoð­ana­bræðrum: hlað­varps­spjalli Snorra og Bergþórs Mássona við Patrik Atlason – öðru nafni: Prett­yboitjokko. Spjallið hafði ratað í fjöl­miðla vegna vanga­veltna þeirra um karl­mennsku! – á þann hátt að hún hljóm­aði eitruð. Það vafð­ist fyrir manni hver erindi hlað­varps­ins væri.

Van­hugs­aður húmor á gráu svæði, poppuð ögrun stráklinga – eða eitt­hvað alvar­legra?

Þegar Snorri Másson til­kynnti að hann væri í fram­boði fyrir Mið­flokk­inn var ekki annað hægt en að setja þetta hlað­varp í sam­hengi við orð­ræðu Klaust­urs­manna sem hljóm­aði eins og kerf­is­bundin niðrun kvenna. Að sjá hann og Sigmund Davíð poppa sig upp í TikTok víd­eói er eitt­hvað sem haus­inn á mér nær ekki utan um.

Hvað er í gangi?

Um dag­inn rakst ég svo á erki­ís­lenska Maskínu-könnun, líka á Vísi, á þá leið að flestir myndu vilja fá sér bjór með Sigmundi Davíð af núver­andi stjórn­mála­leið­togum. Og maður, eða öllu frekar kona, spyr:

Hvað er að ykkur? Hvað er að okkur?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð