Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Unnur hellir sér yfir Höllu: „Skeytir engu um sannleikann frekar en þegar hún var í embætti“

Unnur hellir sér yfir Höllu: „Skeytir engu um sannleikann frekar en þegar hún var í embætti“

Unnur Brá Kon­ráðs­dóttir aðstoð­ar­kona Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar, lætur í sér heyra. Lætur Höllu Hrund Loga­dóttur hjá Framsókn heyra það og tekur alfarið fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi unnið gegn því að tryggja orku­ör­yggi almenn­ings, „hvað þá Suð­ur­nesja­manna er því­lík firra að mann setur hljóðan. Frá því eld­hrær­ingar hófust á Reykja­nesskag­anum hefur gríð­ar­leg vinna átt sér stað til að tryggja orku­ör­yggi á Suð­ur­nesjum. Við erum betur í stakk búin en áður til að mæta þeim vanda sem skap­að­ist þegar Njarð­vík­ur­lögnin fór í sundur.“

Hún bætir þessu við:

„Tryggt hefur verið vara­vatns­ból fyrir stóran hluta Suð­ur­nesja í Árnarétt og jarð­hita­leit, sem rík­is­stjórnin ákvað að fara í að til­lögu Guðlaugs Þórs, sem skil­aði okkur Rockville bor­hol­unni. Holan ætti að kom­ast í notkun strax í upp­hafi næsta árs og verður þá góð við­bót við jarð­hita á Suð­ur­nesjum. Ítarleg kort­lagn­ing verk­efna og sá lær­dómur sem við höfum dregið af eld­gosum und­an­far­inna miss­era hefur líka skilað sínu. Þannig hefur sú ákvörðun að fergja lagnir með jarð­vegslagi til að mynda skilað því að þær eru betur varðar en áður og hefur sú ein­angrun haldið enn sem komið er, þó hraun hafi runnið yfir Njarð­vík­ur­línu í þessu gosi.“

Segir einnig:

„Þá hafa verið reistir gríð­ar­miklir varn­ar­garðar sem er ætlað að verja orku­verið í Svarts­engi og tryggja með því orku­ör­yggi á svæð­inu. Vinnunni er þó ekki lokið og þurfa stjórn­völd, ásamt sveit­ar­fé­lögum og orku­fyr­ir­tækjum að halda áfram að bæta orku­ör­yggi á Suð­ur­nesjum og fylgj­ast grannt áfram með fram­vindu mála. Allt stjórn­kerfið hefur unnið öllum árum að því að tryggja öryggi á Suð­ur­nesjum. Áður en Halla Hrund ræð­ast á okkur Sjálf­stæð­is­menn fyrir and­stöðu við að tryggja orku­ör­yggi heim­il­anna, hefði það verið skyn­sam­legt að hún ræddi stutt­lega við for­ystu­fólk Fram­sókn­ar­flokks­ins í rík­is­stjórn og á þingi. Nýr odd­viti Fram­sóknar í Suð­ur­kjör­dæmi, heldur því fram að and­staða Sjálf­stæð­is­flokks­ins í orku­ör­ygg­is­málum, hafi orðið til þess að hún ákvað að ganga til liðs við Fram­sókn­ar­flokk­inn og hasla sér völl í póli­tík. Það hefði verið einnar messu virði fyrir odd­vit­ann að velta því fyrir sér hvers vegna frum­varp um breyt­ingar á raf­orku­lögum til að tryggja raf­orku­ör­yggi heim­il­anna sem Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra lagði fram var ekki afgreitt nú í vor, þrátt fyrir að atvinnu­vega­nefnd hefði afgreitt frum­varpið.“

Unnur Brá segir að „frum­varpið tók nokkrum breyt­ingum í með­förum nefnd­ar­innar – breyt­ingum sem unnar voru í sam­ráði fyrir ráðu­neytið, Orku­stofnun og aðra hag­að­ila. Halla Hrund ætti að spyrja for­ystu­fólk Fram­sókn­ar­flokks­ins hvort and­staða þeirra hafi komið í veg fyrir að frum­varpið náði ekki fram að ganga. Svarið verður ekki sér­lega þægi­legt ef svarað er af hrein­skilni. Að sama skapi ætti odd­vit­inn að afla sér upp­lýs­inga um hvernig á því standi að ekki hafi verið mælt að nýju fyrir frum­varp­inu þegar þing kom saman í haust, ekki síst í ljósi þess hve mik­il­vægir hags­munir eru í húfi. Guð­laugur Þór lagði frum­varpið fyrir rík­is­stjórn sem afgreiddi það. Þing­flokkur Sjálf­stæð­is­flokks­ins afgreiddi frum­varpið strax enda öllum í þing­flokkum ljóst hve málið er mik­il­vægt. En frum­varpið sat fast í þing­flokkum Fram­sóknar og Vinstri grænna. Þannig var komið í veg fyrir að mælt yrði fyrir máli, sem skiptir heim­ili og minni fyr­ir­tæki gríð­ar­lega miklu, og tryggja efn­is­lega með­ferð þess nú í haust. Kannski að odd­vit­inn, sem virð­ist vera búinn að koma sér fyrir í sér­hönn­uðu gler­hýsi, snúi sér að því að gagn­rýna félaga sína í Fram­sókn­ar­flokknum. En kannski blindar bjálk­inn sýn.“

Segir einnig:

„Það er með ólík­indum að þessi fyrrum emb­ætt­is­maður hag­ræði sann­leik­anum á þennan ómerki­lega hátt í til­raun til þess að fegra sjálfa sig gagn­vart þjóð­inni. Fyrr­ver­andi orku­mála­stjóri skeytir engu um sann­leik­ann frekar en þegar hún var í emb­ætti. Dæmin eru því miður mörg eins og kom í ljós í fjöl­miðlum þegar hún var í for­seta­fram­boði sl. vor. Skýrasta dæmið var þegar hún und­ir­rit­aði sam­komu­lag fyrir Íslands hönd við skóla­systur sína úr Harvard sem var þá ráð­herra í argent­ínsku rík­is­stjórn­inni. Til þess hafði orku­mála­stjóri ekk­ert umboð.“

Svo loka­orðin:

„Það sem stóð fyrrum orku­mála­stjóra helst fyrir þrifum í sínu fyrra emb­ætti var megn and­staða hennar við aukna orku­öflun í land­inu og skiln­ings- eða skeyt­ing­ar­leysi gagn­vart hlut­verki sínu, lögum og stjórn­sýslu­reglum eins og dæmin sanna. Sú stað­hæf­ing að sjálf­stæð­is­menn hafi staðið á móti nauð­syn­legum aðgerðum til að tryggja orku­ör­yggi, hvort heldur á land­inu öllu eða Suð­ur­nesjum, á ekki við rök að styðj­ast. Ráð­herrar og þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa þvert á móti staðið fremst í flokki á þessu sviði. Orku­ör­yggi hefur verið eitt af lyk­ilá­herslu­málum flokks­ins á þessu kjör­tíma­bili og mun vera það áfram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð