Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Davíð Þór:„Teljum sameiginlegum fjármunum okkar allra betur varið í það en í að múta Namibíumönnum“

Davíð Þór:„Teljum sameiginlegum fjármunum okkar allra betur varið í það en í að múta Namibíumönnum“
Davíð Þór Jónsson.

„Hægri­menn hafa óskap­lega gaman af því að vitna í Margréti Thatcher sem ein­hvern tím­ann mun hafa sagt að gall­inn við sós­í­al­isma væri að á end­anum verði maður uppi­skroppa með ann­arra manna pen­inga til að sólunda.“ Þannig hefst pist­ill sr. Davíðs Þórs Jóns­sonar, fram­bjóð­anda Sós­í­alista­flokks­ins í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, sem birt­ist á Vísi í dag.

Í pistl­inum skýtur séra Davíð Þór bylm­ings­föstum skotum á Sjálf­stæð­is­flokk­inn, Morg­un­blaðið og auð­valdið. Hann heldur áfram:

„Þetta lýsir alveg ein­stak­lega skað­legu við­horfi til þess hvernig umgang­ast beri sam­eig­in­lega sjóði lands­manna. Sam­eig­in­legir sjóðir lands­manna eru ekki „ann­arra manna pen­ingar“. Þeir eru pen­ingar okkar allra. Þeim ber að verja í þágu okkar allra. Þrátt fyrir að þetta sé aug­ljóst vex þeirri mön­tru jafnt og þétt fiskur um hrygg að „rík­is­út­gjöld“ séu ein­hver mein­semd í eðli sínu sem halda beri í algjöru lág­marki.“

Segir Davíð Þór í pistl­inum að gríð­ar­legur auður hafi safn­ast á fárra hendur hér á landi og að þeim auð fylgi völd „til að mynda ógn­ar­vald yfir atvinnu­ör­yggi heilla byggð­ar­laga“.

Skýtur prest­ur­inn á Morg­un­blaðið sem rekið er með gríð­ar­legu tapi ár hvert:

„Í krafti þessa auðs hefur líka verið seilst til valda í fjöl­miðlum til að kom­ast yfir dag­skrár­valdið sem því fylgir. Auð­vald­inu er sama þótt það tapi stórfé á fjöl­miðlum í sinni eigu, valdið sem það fær yfir umræð­unni er hverrar krónu virði. Og umræðan fer allt of oft í það far sem auð­vald­inu hentar.“

Davíð segir einnig að „hver sá sem tekur undir mön­tr­una um hin illu „rík­is­út­gjöld“,“ sé tal­inn góður og gegn „og eng­inn spyr hvar eigi að skera niður í vel­ferð­ar­kerfi sem þegar liggur í ræmum eftir nið­ur­skurðar­æði stjórn­valda.“ Hins vegar sé sá sem talar um að stór­auka rík­is­út­gjöld, yfir­heyrður af spænska rann­sókn­ar­rétt­inum.

Prest­ur­inn segir Sós­í­alista hafa svörin á reiðum höndum:

„Við sós­í­alistar höfum á hinn bóg­inn svör á reiðum höndum varð­andi það hvernig við viljum stækka sam­eig­in­lega sjóði okkar. Við viljum lækka skatta á lægstu tekjur og milli­tekjur en stór­auka þá á það sem aflögu­fær­astir eru. Við tölum fyrir auð­legð­ar­skatti sem leggj­ast mun á rík­asta 1% lands­manna. Spyrjum þá sem eru and­vígir því hverjum þeir séu eig­in­lega að þjóna, almenn­ingi eða auð­vald­inu. Við tölum fyrir fram­færslu­við­miði sem lægstu laun og bætur skuli aldrei fara niður fyrir. Við tölum fyrir því að fjár­magnstekjur séu skatt­lagðar eins og hverjar aðrar tekjur (með sams konar frí­tekju­marki). Við tölum fyrir þrepa­skiptum eigna­skatti með eðli­legu frí-eigna­marki og hækk­andi álagi eftir því sem eign­irnar verða fleiri og stærri. Og loks tölum við fyrir því að arð­ur­inn af sam­eig­in­legum auð­lindum okkar, gæðum lands og sjávar, renni í sam­eig­in­lega sjóði okkar en ekki í vasa þeirra rík­ustu.“

Davíð heldur áfram:

„Und­an­farna ára­tugi hafa stjórn­völd grímu­laust gengið erinda auð­valds­ins gagn­vart almenn­ingi. Skattar hafa lækkað á hæstu tekjur en stór­auk­ist á þær lægstu með þeim afleið­ingum að í Reykja­vík alast 10.000 börn upp í fátækt, tæp 20% níu ára barna hafa reynslu af því að fara svöng í rúmið af því að það var ekki til matur á heim­il­inu og 15.000 eldri borg­arar hafa um 100.000 krónum minna á mán­uði en lág­marks­laun til ráð­stöf­unar til að halda sér á lífi.

Þessu verður að breyta.“

Davíð segir greini­legt að auð­valdið sé með rík­is­valdið í rassvas­anum og nefnir skýrt dæmi um slíkt:

„Efist ein­hver um að rík­is­valdið sé í rassvas­anum á auð­vald­inu skulum við rifja upp við­brögð þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra þegar upp komst um stór­felldar mútur Samherja í Namibíu. Þá hringdi hann ekki í namibísk stjórn­völd til að bjóða aðstoð íslenskra stjórn­valda við að upp­lýsa málið. Nei, hann hringdi í vin sinn hjá Samherja, þar sem hann sjálfur hafði gegnt stöðu stjórn­ar­for­manns, og spurði hvernig honum liði. Stjórn­sýslu­legt van­hæfi hans til að gegna emb­ætt­inu vegna vina­tengsla og skýrra hags­muna­á­rekstra er aug­ljós­lega hafið yfir allan vafa. En auð­valdið sér það hvorki né skilur.“

Í lokakafla pistils­ins hæð­ist séra Davíð Þór að Bjarna Bene­dikts­syni, for­sæt­is­ráð­herra og köku­skreyt­ing­ar­mann:

„Bjarni Bene­dikts­son lét ein­hvern tím­ann hafa það eftir sér að kakan væri ekki nógu stór og greip þar til mynd­lík­ingar úr eft­ir­lætis áhuga­máli sínu; köku­skreyt­ingum. Bakarinn veit hins vegar að ef kakan er ekki nógu stór til að allir fái nóg þá bakar maður aðra stærri. Hagsýna hús­móð­irin áttar sig hins vegar á því að kakan er alveg nógu stór, henni er bara skipt með rang­látum hætti.“

Segir hann Sós­í­alista vilja baka nægi­lega stóra köku svo allir geti fengið sér nóg og vilja byggja aftur upp öfl­ugt vel­ferð­ar­kerfi „eftir skemmd­ar­verka- og eyði­legg­inga­starf­semi stjórn­valda sl. 30 ár“, með því að stór­auka fjár­magnið sem varið er úr sam­eig­in­legum sjóðum okkar. „Við teljum sam­eig­in­legum fjár­munum okkar allra betur varið í það en í að múta Namib­íu­mönnum. Rík­is­valdið á að þjóna almenn­ingi gagn­vart auð­vald­inu, ekki öfugt eins og nú er.“

Hér má lesa pistil­inn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð