Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“

VR fordæmir Virðingu: „Slík félög grafa undan réttindum“
Halla Gunn­ars­dóttir for­maður VR

Stétt­ar­fé­lagið VR segir fram­komu SVEIT í mál­efnum er snúa að stétt­ar­fé­lag­inu Virðingu vera fyrir neðan allar hellur en stærstu stétt­ar­fé­lög lands­ins saka Virðingu um að vera gervi­stétt­ar­fé­lag sem er ætlað að draga úr rétt­indum launa­fólks. Þá er SVEIT sakað um að standa fyrir stofnun stétt­ar­fé­lags­ins.

„Stjórn VR for­dæmir atlögu atvinnu­rek­enda innan SVEIT, sam­tökum fyr­ir­tækja á veit­inga­mark­aði, að rétt­indum og kjörum launa­fólks á Íslandi. SVEIT hefur stofnað gult stétt­ar­fé­lag sem gengur undir heit­inu Virðing og útbúið „kjara­samn­ing“ sem felur í sér beinar kjara­skerð­ingar fyrir starfs­fólk í veit­inga- og gisti­húsa­geir­anum. Virðing upp­fyllir ekki grund­vall­ar­kröfur sem gerðar eru til stétt­ar­fé­laga, heldur er um að ræða félag sem er stofnað af atvinnu­rek­endum sem síðan semja við sjálfa sig, fremur en að semja við starfs­fólk. Þar með flokk­ast Virðing sem gult stétt­ar­fé­lag en slík félög grafa undan rétt­indum og hags­munum launa­fólks og ganga í raun erinda atvinnu­rek­enda“, segir í til­kynn­ingu frá félag­inu en SVEIT hefur hafnað öllum ásök­unum sem stétt­ar­fé­lögin hafa sett fram varð­andi Virðingu.

Svívirðileg atlaga að réttindum

„Stjórn VR tekur heils­hugar undir gagn­rýni Eflingar og SGS á SVEIT og hvatn­ingu um að snið­ganga félagið. Virðing beinir spjótum sínum að fólki í við­kvæmri stöðu, erlendu launa­fólki, ungu fólki og þeim sem þekkja síður rétt­indi sín á vinnu­mark­aði. Stjórn VR vill sér­stak­lega hvetja félags­fólk að hafa sam­band við VR ef atvinnu­rek­andi fer þess á leit að við­kom­andi gangi í Virðingu og/eða vinni eftir svoköll­uðum „kjara­samn­ingi“ Virð­ingar. Kjara­samn­ingur Virð­ingar er í öllum atriðum mun lak­ari en kjara­samn­ingar VR og felur í sér skerð­ingu á kjörum starfs­fólks í ferða­þjón­ustu. Launa­taxtar eru lægri, dag­vinnu­tíma­bil er lengra og nær inn á laug­ar­dag, upp­sagn­ar­frestur er mun lak­ari sem og veik­inda­réttur og önnur rétt­indi eru skert veru­lega, svo fátt eitt sé nefnt. Kjara­samn­ingur Virð­ingar gengur að auki gegn lögum um vinnu­mark­að­inn.

Framkoma Virð­ingar og SVEIT er að mati stjórnar VR sví­virði­leg atlaga að rétt­indum launa­fólks og markar aft­ur­för í kjara­bar­áttu. Stjórn VR hvetur launa­fólk sem og atvinnu­rek­endur til að hafna þess­ari atlögu. Samstaða á vinnu­mark­aði er mik­il­væg þegar kemur að því að standa vörð um grund­vall­ar­rétt­indi launa­fólks og á það að vera sam­eig­in­legt verk­efni aðila vinnu­mark­að­ar­ins að tryggja þau.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð