Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Bjarni hættur á þingi og sem formaður: „Ég finn að þetta er rétti tíminn til að breyta til“

Bjarni hættur á þingi og sem formaður: „Ég finn að þetta er rétti tíminn til að breyta til“
Bjarni Bene­dikts­son Mynd: Facebook

Bjarni Bene­dikts­son ætlar ekki að gefa kost á sér í for­manns­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins og ætlar sér ekki að taka sæti á kom­andi þingi.

„Kæru vinir,

Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér í for­manns­kjöri á kom­andi lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins.Það hafa verið for­rétt­indi og heiður að leiða flokk­inn frá árinu 2009. Ég skil sáttur við mín verk, þakk­látur fyrir stuðn­ing­inn og stoltur af mínum störfum sem þing­maður í tæp­lega 22 ár.“ Þannig hefst til­kynn­ing frá Bjarna Bene­dikts­syni for­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem birt­ist á Facebook rétt í þessu. Í færsl­unni fer hann yfir sviðið og talar um tíma sinn á þingi og talar upp störf sín fyrir þjóð­ina.

„Á mínum fyrstu árum í for­ystu fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn var staðan í þjóð­líf­inu erfið. Mikið upp­gjör var framundan og þörf fyrir end­ur­reisn á sviði efna­hags­mála. Við Íslend­ingar feng­umst við ein­hverja mestu efna­hag­skrísu lýð­veld­is­tím­ans og mikil átök voru í þing­inu um póli­tíska stefnu­mörkun. Allt var undir fyrir Ísland á þessum örlaga­ríku tímum og ég lagði allt mitt af mörkum fyrir landið okkar ásamt sam­herjum í flokknum, og hef gert það alla tíð síðan.“ Segir hann enn­fremur að árang­ur­inn sem rík­is­stjórn hans náði frá 2013 hafi farið fram úr hans björt­ustu vonum. „Við getum sagt að hvergi sé betra að búa en á Íslandi“.

Segist hann hafa fengið mörg tæki­færi í stjórn­málum og að það hafi þroskað hann og mótað.

„Ég hef fengið mörg tæki­færi á sviði stjórn­mál­anna en aldrei tekið því sem sjálf­sögðum hlut að end­ur­nýja umboð mitt, síð­ast í kosn­ing­unum í nóv­em­ber, þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk áfram flest atkvæði í kjör­dæmi mínu. Ekkert hefur þroskað mig meira og mótað í líf­inu en að fá að glíma við öll þessi flóknu úrlausn­ar­efni sem þing­maður og ráð­herra, eiga sam­tal við kjós­endur og standa þeim reikn­ings­skil af verkum okkar.“

Segist hann því næst að hann ætli sér ekki að bjóða sig fram til áfram­hald­andi for­ystu í Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Á þessum tíma­mótum hef ég hins vegar ákveðið að sækj­ast ekki eftir end­ur­nýj­uðu umboði til for­ystu fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Nýaf­staðnar kosn­ingar skil­uðu Sjálf­stæð­is­flokknum næst flestum þing­mönnum á Alþingi, þar sem hann var rúmu pró­sentu­stigi minni en sá stærsti.

Stærstu tveir flokk­arnir eru báðir tals­vert frá sínum fyrri hæðum, og sögu­lega eru úrslitin ekki nægi­lega góð fyrir okkur sjálf­stæð­is­menn. En eftir langa setu í rík­is­stjórn, þar sem Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn tók ábyrgð á stjórn lands­mál­anna meðan aðrir reyndu að byggja sig upp í stjórn­ar­and­stöðu, vann flokk­ur­inn ágætan varn­ar­sigur.“

Segir hann einnig að ný tæki­færi opn­ist fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í stjórn­ar­and­stöðu, til að „styrkja sam­band sitt við hinn almenna kjós­anda og skerpa á for­gangs­málum“.

Þá seg­ist hann hafa verið í 22 ár á þingi og það sé meira en hann hafði getað ímyndað sér. Hann hafi síðstu daga litið yfir far­inn vef með sínum nán­ustu og hugsað um fram­tíð­ina. „Ég finn að þetta er rétti tím­inn til að breyta til“. Heldur hann áfram:

„Í ljósi þess­ara aðstæðna hef ég ákveðið að taka ekki sæti á því þingi sem hefst síðar í mán­uð­inum. Næstu vikur ætla ég að taka mér frí en hyggst svo taka mín síð­ustu skref á póli­tíska svið­inu og kveðja vini mína í Sjálf­stæð­is­flokknum á lands­fund­inum sem framundan er, þar sem blásið verður til sóknar fyrir þjóð­lífið allt.“

Hér má sjá færsl­una í heild sinni:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð