Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dwight Howard segist hafa verið neyddur til að eyða tvíti um Palestínu: „Ég synti á móti straumnum“

Dwight Howard segist hafa verið neyddur til að eyða tvíti um Palestínu: „Ég synti á móti straumnum“

Fyrrum NBA stjarnan Dwight Howard segir að honum hafi verið gert að eyða tíst­inu „Free Palestine“ árið 2014.

Fram­kvæmda­stjóri Körfuknatt­leiks­sam­bands­ins (e. NBA) hringdi innan tíu mín­útna og skip­aði íþrótta­mann­inum að fjar­lægja færsl­una, segir Howard við hlað­varps­stjórn­anda og bætti við: „Ég var að synda á móti straumnum“.

Fyrrum NBA stjarnan Dwight Howard sagði í hlað­varpi­við­tali á þriðju­dag að eftir að hafa birt orðin „Free Palestine“ á Twitter-reikn­ing­inn sinn árið 2014, hafi hann strax drukknað í sím­tölum þar sem honum var skipað að taka færsl­una niður, þar á meðal eitt frá fram­kvæmda­stjóra NBA deild­ar­innar. 

„Fyrir nokkrum árum, þegar ég spil­aði fyrir Houston Rockets, tísti ég „Free Palestine,“ og ég var nálægt því að vera rek­inn út úr deild­inni fyrir það,“ sagði Howard við hlað­varps­stjórn­and­ann ​​Ray Daniels, sem dæmi um það sem hann sagði vera „ fullt af hlutum“ sem NBA-leik­maður verði að bíta sig í tung­una útaf opin­ber­lega.

Hinn 39 ára gamli íþrótta­maður sagði hlað­varps­stjórn­and­anum að hann hefði átt langt sam­tal við nokkra palest­ínska aðdá­endur í Houston og vildi lýsa yfir stuðn­ingi sínum við sam­fé­lag þeirra.

„Þeir báðu mig um að vekja athygli á því sem er að ger­ast í landi þeirra,“ sagði hann og bætti við, „Ég vil að fólk viti hvaða bar­áttu þið eigið í. Mér finnst það ekki rangt. Svo ég tísti „Frjáls Palest­ína“.

„Minna en 10 mín­útum eftir að ég tísti þessu, fæ ég sím­tal frá fram­kvæmda­stjóra NBA, umboðs­mönnum, fólki sem starf­aði með stofn­un­inni minni á þeim tíma: „Þú verður að eyða þessu tísti, þú verður að taka þetta niður,“ og og ég var bara: „Hvað gerði ég sem var svona slæmt?“ hélt Howard áfram.

„Ég synti á móti straumnum, ég sagði eitt­hvað sem fólki lík­aði ekki,“ sagði hann til skýr­ingar.

„Fólki lík­aði þetta ekki, ÞEIM lík­aði ekki,“ sagði hlað­varps­stjór­inn. Ekki var strax ljóst hvern hann átti við en mögu­lega átti hann við stjórn­völd í Ísrael.

„Þegar þú ert í deild­inni muntu lenda á þeim stað þar sem ef ég segi of mikið, ef ég segi eitt­hvað, þá hef ég kannski ekki lengur vinnu. Ég verð að bíta í tung­una á mér, og það er erfitt að gera,“ sagði Howard.

Frá­sögnin teng­ist færslu frá Howard fyrir meira en ára­tug, í stríð­inu árið 2014 milli Ísraels og Hamas á Gaza.

Þrátt fyrir að upp­runa­lega færsl­unni hafi verið eytt, birti Howard stuttu síðar afsök­un­ar­beiðni þar sem sagði: „Fyrra tístið voru mis­tök. Ég hef aldrei tjáð mig um alþjóða­stjórn­mál og mun aldrei gera það,“ og „Ég biðst afsök­unar ef ég móðg­aði ein­hvern með fyrra tíst­inu mínu, það voru mis­tök!“.

Atvikið, sem fjallað var um á þeim tíma í fjöl­miðlum, var ekki síð­asta skiptið þar sem Howards olli deilum vegna tísts sem varð­aði alþjóða­mál.

Í maí 2023 baðst Howard afsök­unar eftir að hafa heim­sótt Taívan og sagst í aug­lýs­ingu hafa öðl­ast „glæ­nýja vel­þóknun á þessu landi,“ eftir að hann fékk við­brögð frá kín­verskum þjóð­ern­issinnum sem neita að við­ur­kenna eyþjóð­ina sem sjálf­stæða.

„Þaðan sem ég er, ef ég segi „Ég vil fara til lands­ins,“ þýðir það ekki að þessi staður sé land. Það er bara hvernig við tölum,“ sagði hann á eftir. „Ef ég móðg­aði ein­hvern í Kína biðst ég afsök­unar. Það var ekki ætlun mín að skaða neinn með því sem ég sagði í aug­lýs­ing­unni.“

Howard leikur nú í tælensku körfu­bolta­deild­inni með lið­inu Taoyuan Leopards en hann á hlut í deild­inni.

Hér má sjá hlað­varps­við­talið í heild sinn:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta