Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Tilkynningum um kynferðisbrot gegn börnum fjölgar á milli ára

Tilkynningum um kynferðisbrot gegn börnum fjölgar á milli ára
Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Pixabay hjá pexels.com

Um 10 pró­sent aukn­ing á til­kynn­ingum um kyn­ferð­is­brot varð á milli áranna 2023 og 2024. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu rík­is­lög­reglu­stjóra.

Skýrsla rík­is­lög­reglu­stjóra um kyn­ferð­is­brot hefur nú verið birt. Í skýrsl­unni má finna upp­lýs­ingar um fjölda til­kynn­inga til lög­reglu vegna kyn­ferð­is­brota árið 2024.  Tilkynnt brot voru 568 tals­ins, sem er 10% aukn­ing til­kynn­inga frá 2023.

Lög­reglan skráir bæði hvenær kyn­ferð­is­brotið átti sér stað og hvenær það var til­kynnt til lög­reglu þar sem í hluta mála líður langur tími þar á milli. Í fyrra var til­kynnt um 185 nauðg­anir til lög­reglu og þar af 130 sem áttu sér stað á árinu. Til­kynn­ingum um nauðg­anir fjölg­aði um þrjú pró­sent miðað við árið 2023. Ef horft er til með­al­tals til­kynn­inga síð­ustu þrjú ár þar á undan, fækk­aði þeim um 14 pró­sent.

Mikill aldursmunur milli brotaþola og grunaðra

Samkvæmt skýrsl­unni voru konur voru 88 pró­sent brota­þola í öllum kyn­ferð­is­brotum sem til­kynnt voru til lög­reglu. Hlut­fallið var enn hærra þegar horft var til nauð­gana, þar voru 95 pró­sent brota­þola kven­kyns. Hlut­föllin snú­ast við þegar kemur að kyni grun­aðra, þar voru 94 pró­sent karl­kyns í kyn­ferð­is­of­beld­is­málum sem til­kynnt eru til lög­reglu.

Tals­verður ald­urs­munur var á milli brota­þola og grun­aðra. Með­al­aldur brota­þola var 23 ár, á meðan með­al­aldur grun­aðra var 34 ár.  Um 46 pró­sent brota­þola voru undir 18 ára í öllum kyn­ferð­is­brotum á meðan 12 pró­sent grun­aðra voru undir 18 ára. Hlutfall brota­þola undir 18 ára í nauðg­un­ar­brotum var 36 pró­sent og hlut­fall grun­aðra undir 18 ára var 17 pró­sent.

Alls bár­ust til­kynn­ingar um 126 kyn­ferð­is­brot gegn börnum og sam­an­borið við með­al­tal síð­ustu þriggja ára var sex pró­sent fjölgun slíkra mála. Til­kynn­ingar um barn­a­níð voru 40, sem er rúm 22 pró­sent fjölgun slíkra til­kynn­inga sam­an­borið við með­al­tal síð­ustu þriggja ára þar á undan.

Fjölgun tilkynninga og fækkun brota

Samkvæmt lög­regl­unni hefur eitt af meg­in­mark­miðum lög­regl­unnar und­an­farin ár verið að hlut­fall þeirra sem hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­brotum og til­kynna það til lög­reglu auk­ist um leið og kyn­ferð­is­brotum fækki. Í þolenda­könnun lög­regl­unnar árið 2023 meðal 18 ára og eldri kom fram að 1,9 pró­sent svar­enda höfðu orðið fyrir kyn­ferð­is­broti (þvingað eða reynt að þvinga til kyn­ferð­is­legra athafna, gripið í eða verið snert kyn­ferð­is­lega gegn vilja sínum). Þar af höfðu tíu pró­sent til­kynnt það til lög­reglu. Hæsta hlut­fall þeirra sem svör­uðu voru á aldr­inum 18-25 ára, eða 11 pró­sent svar­enda. Um 0,6 pró­sent höfðu orðið fyrir staf­rænu broti þar sem nekt­ar­myndum var deilt af þeim án leyfis á netið (6 svar­endur í könn­un­inni), og um 43 pró­sent þeirra sögð­ust hafa til­kynnt það til lög­reglu, en hafa verður í huga að fáir svör­uðu spurn­ing­unni.

Þá svör­uðu 6,5 pró­sent þátt­tak­anda því til að þau hefðu orðið fyrir elti­hrelli, þar af hafði ger­and­inn verið í helm­ingi til­vika kunn­ingi eða ókunn­ugur.

Í mæla­borði far­sældar sem bygg­ist á svörum nem­enda í grunn­skólum í rann­sókn Íslenskra æsku­lýðs­rann­sókna kemur fram að 16 pró­sent 13-16 ára nem­enda sögð­ust hafa orðið fyrir kyn­ferð­is­of­beldi og 36 pró­sent fyrir staf­rænu kyn­ferð­is­of­beldi.

Alltaf er hægt að til­kynna brot með því að hafa sam­band við 112.  Sjá einnig leið­ar­vísir um með­ferð kyn­ferð­is­brota í rétt­ar­vörslu­kerf­inu á ofbeld­is­gátt 112.is.

Skýrsl­una má finna hér. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð