Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hæðist að NATO og íslenskum ráðamönnum: „Á þessari ögurstund er ekkert þing starfandi“

Hæðist að NATO og íslenskum ráðamönnum: „Á þessari ögurstund er ekkert þing starfandi“

„Afhjúpun NATO þessa dag­ana er býsna athygl­is­verð en hún skrif­ast á reikn­ing Tumps Banda­ríkja­for­seta. Afhjúpun er ef til vill ekki rétta orðið því það hefur lengi verið hugs­andi fólki ljóst að NATO er lítið annað en þjón­ustu­stofnun Banda­rískrar utan­rík­is­stefnu og helg­ast fyrst og síð­ast af skil­greindum hags­munum þar í landi. Hin NATO ríkin gera það sem þeim er sagt – svona að mestu leyti.“ Þannig hefst Facebook-færsla Kristins Hrafns­sonar, rit­stjóra Wikileaks en þar talar hann NATO og ráð­andi stöðu Banda­ríkj­anna innan þess banda­lags.

Kristinn heldur áfram:

„Til að breiða yfir þessa, fremur auð­mýkj­andi valda­skekkju, héldu önnur aðild­ar­ríki uppi þeirri blekki­mynd að þarna væru jafn­ingjar við borðið, „vina­þjóðir“ sem haldi þennan klúbb um háleit og fal­leg gildi. NATO sé bjart banda­lag, þar sem jafn­háir ridd­arar hring­borðs­ins ráða sínum ráðum eftir að hafa fallið á kné við hátíð­lega athöfn, hallað sér fram á sverðin, lotið höfðum og svarið þess eið að verja hvern annan – og heiður kvenna. Það hefur alltaf verið holur hljómur í þessu sviðs­verki en lík­leg­ast er þægi­legra að lifa í blekki­heimi en horfast í augu við nak­inn sann­leik­ann.“

Því næst snýr Kristinn sér að áhuga Donalds Trump á Græn­landi en hann hefur hótað að taka landið með her­valdi. Segir rit­stjór­inn að nú hrynji leik­tjöld NATO og að fólk sé hissa á að aðal­leik­ar­inn fylgi ekki hand­rit­inu. Þá rass­skellir hann íslenska fjöl­miðla fyrir að spyrja ekki krefj­andi spurn­inga um málið:

„Svo kemur Trump aftur fram á sviðið, elt­ist ekki við blekki­leik­inn og hótar að beita her­valdi gegn ann­ari NATO þjóð til að fylgja eftir kröfu sinni að fá Grænland. Leik­tjöldin hrynja og menn eru hvumsa yfir því að leik­ar­inn í hlut­verki Artúrs kon­ungs fylgir ekki hand­rit­inu.Með falli Pótem­kin­tjald­anna moln­aði jafn­framt þessi yfir­lýsta ,,grunn­stoð“ íslenskrar utan­rík­is­stefnu. Það leiðir að sjálfu að hin grunn­stoðin, Varn­ar­samn­ing­ur­inn við Banda­ríkin, er í upp­námi líka. Maður myndi ætla að þetta væri aðal­frétt íslenskra fjöl­miðla (á eftir hand­bolt­anum, vita­skuld) og aðal­um­ræðu­efnið á hinu póli­tíska sviði, en þar er ekk­ert að frétta nema eitt­hvað pot í Ingu Sæland. Hvaða stöðu ætlar íslenska ríkið að taka? Og íslenska þjóðin. Ef við fylgjum Dönum er þá varn­ar­samn­ing­ur­inn brost­inn? Verður Kefla­vík­ur­flug­völlur not­aður til hern­að­ar­að­gerða á Græn­landi? Verður tolla­refs­ingum beitt gegn Íslandi? Ætlum við að vera hlut­laus eða bara sinnu­laus og láta okkur vanta við borðið (eins og kvöld­verð­ar­borðið hjá Mette Fred­rik­sen á dög­unum)?“

Að lokum hæð­ist Kristinn að ráða­mönnum þjóð­ar­innar:

„Á meðan öll athygli er á nágranna okkar handan við Græn­lands­sund sem allir aðrir kalla að vísu Dan­merk­ur­sund (sem menn ættu að muna þegar þeir hneiksl­ast á trumpískri nafn­breyt­ingu Mexík­óflóa í Amer­íkuflóa) erum við og utan­rík­is­ráð­herra lands­ins að horfa á hand­bolta­stríð – sem við töpum. Á þess­ari ögur­stund er ekk­ert þing starf­andi og engin utan­rík­is­mála­nefnd. Helsta þjóðar­ör­ygg­is­málið í umræð­unni er sú vá sem skap­ast þegar lands­menn missa Netflix við rof sæstrengs. Aldeilis samt fengur núna að hafa reynslu­bolt­ann Svan­hildi sendi­herra á vakt­inni við hirð­ina í Camelot. Og Loga.“

Þess má geta að Mannlíf hefur sent spurn­ingar um áhuga Banda­ríkja­for­seta á Græn­landi og fleiru því tengdu til utan­rík­is­ráð­herra og bíður svara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina