Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fimm samtök boða mótmæli við bandaríska sendiráðið: „Ofbeldið læðist að okkur eins og þoka“

Fimm samtök boða mótmæli við bandaríska sendiráðið: „Ofbeldið læðist að okkur eins og þoka“
Sendiráð Banda­ríkj­anna Mynd: Trausti Hafsteinsson

Fimm sam­tök boða mót­mæli við banda­ríska sendi­ráðið.

Á morgun, laug­ar­dag­inn 8. febr­úar er boðað til mót­mæla við banda­ríska sendi­ráðið á Engja­teigi 7, Reykja­vík. Fimm sam­tök standa á bak­við mót­mælin sem hefj­ast klukkan 14:00 en þar á meðal eru sam­tökin No Borders Iceland og Félagið Ísland-Palest­ína.

Í lýs­ingu á við­burð­inum á Facebook segir að ótal mann­rétt­indi hafi nú þegar verið framin síðan Donald Trump tók aftur við emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna. Nefnd eru ýmis dæmi, meðal ann­ars um að Trans fólki sé neitað um skil­ríki og að unnið sé að því að banna sam­kyn­hneigðum ein­stak­lingum að gifta sig. Þá er einnig minnst á tug­þús­undir manna sem eigi nú að senda í ein­angr­un­ar­búð­irnar á Guant­anamo Bay.

Hér má lesa text­ann í heild sinni:

„Frá því að Donald Trump tók aftur við emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna þann 20. jan­úar síð­ast­lið­inn hafa ótal mann­rétt­inda­brot nú þegar verið framin.

Trans fólki er neitað um skil­ríki og unnið er að því að fella úr gildi rétt sam­kyn­hneigðra ein­stak­linga til þess að gifta sig. Til stendur að brott­vísa á tug­þús­undum manns til ein­angr­un­ar­búð­anna, Guant­anamo Bay. For­eldrar eru rifin burt frá börnum sínum og send úr landi. Eftir sitja börnin í algjöri óvissu og erf­iðum aðstæðum, þau sett í fóstur og eiga á hættu alls­konar mis­rétti.

Nú hefur Trump gefið út yfir­lýs­ingu þess efnis að Banda­ríkin muni taka yfir Gasa­svæðið og gera það að bað­strönd í eigu Banda­ríkj­anna. Þá hefur hann í hyggju að þvinga á brott alla Palest­ínu­menn sem búa á Gaza, mögu­lega með her­valdi. Hér er um að ræða afdrátt­ar­laus áform um land­rán og þjóð­ern­is­hreinsun.

Afstaða Banda­ríkj­anna í dag gagn­vart jað­ar­settum hópum er hættu­legt heim­inum, og á meðan heim­ur­inn brennur skrif­aði Trump nýverið undir til­skipun um að Banda­ríkin segi sig frá París­arsam­komu­lag­inu en Banda­ríkin losa einna mest gróð­ur­húsa­loft­teg­unda af ríkjum heims­ins.

Stjórn­völd Banda­ríkj­anna bera þá skyldu að sýna for­dæmi með því að færa sig frá og hætta notkun á jarð­efna­elds­neyti og styðja við græna orku á þann hátt sem virðir og verndar mann­rétt­indi. Lofts­lags­breyt­ingar leiða til hung­urs­neyðar, auk­ins fjölda flótta­fólks, fátæktar og heim­il­is­leysis um heim allan.

Trump sýnir sömu­leiðis alþjóð­legri lýð­heilsu lít­ils­virð­ingu þar sem hann tók þá þröng­sýnu ákvörðun að fella niður aðild Banda­ríkj­anna að Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­inni (e. WHO). Banda­ríkin hafa verið einn stærsti fjár­hags­legi bakjarl Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar og er mikil­vægur sam­starfs­aðili þegar kemur að því að tryggja alþjóð­legt sam­starf sem stuðlar að bættu heil­brigði innan aðild­ar­ríkja sem vinnur að því að allt fólk, óháð aðstæðum geti fengið aðgang að nauð­syn­legri heil­brigð­is­þjón­ustu.

Ofbeldið læð­ist að okkur eins og þoka og nú þurfum við að standa þétt við bakið á okkar ber­skjald­að­asta fólki. Það hefur aldrei verið jafn mik­il­vægt að sýna sam­hug og stuðn­ing í verki með því að vera sýni­leg á mót­mælum og nota rödd okkar eins og við mögu­lega getum. Sýnum okkar fólki á Íslandi og um allan heim sem er log­andi hrætt vegna ástands­ins að okkur stendur ekki á sama.

Við getum ekki sam­þykkt þessa aðför, það er kom­inn tími til þess að við látum í okkur heyra! Við krefj­umst þess að rík­is­stjórn Íslands sýni í verki að ekki sé sam­starfsvilji með ríkjum sem virða mann­rétt­indi og alþjóða­lög að vettugi.

Komum saman fyrir utan sendi­ráð Banda­ríkj­anna laug­ar­dag­inn 8. febr­úar klukkan 14:00 og látum í okkur heyra!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Mótmæli

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti