Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Foreldrar Bryndísar Klöru lýsa ódæðinu – Forráðamenn hnífamannsins földu vopnið og hylmdu yfir

Foreldrar Bryndísar Klöru lýsa ódæðinu – Forráðamenn hnífamannsins földu vopnið og hylmdu yfir
Bryndís Klara Birg­is­dóttir. Mynd: Aðsend

„Það er vitað hver hann var og það kemur víst í ljós að for­ráða­menn hans heima bregð­ast þannig við að þau fóru að reyna að bjarga honum. Út frá kannski sinni umhyggju fyrir honum. Reyna að milda afleið­ing­arnar fyrir hann. Það tafði rann­sókn­ina eitt­hvað,“ segir Birgir Karl Ósk­ars­son, faðir Bryn­dísar Klöru sem var stungin til bana á menn­ing­arnótt árið 2024. Tvö önnur ung­menni slös­uð­ust í atlögu hnífa­manns­ins sem lagði á flótta eftir atvikið. Hann var fyrr­ver­andi kær­asti einnar stúlkunnar í bílnum og hafði elt hana í gegnum stað­setn­ing­arapp í síma hennar með þeim hrika­legu afleið­ingum sem blasa við.

For­eldrar Bryn­dísar Klöru, Birgir Karl og Iðunn Eiríks­dóttir stigu fram í þætt­inum Kompási á Stöð 2 og sögðu sögu dóttur sinnar og lýstu þeirri óbæri­legu sorg sem fylgir and­láti hennar.  Því var lýst að Bryndís var stungin undir hand­legg þegar hún reyndi að draga árás­armann­inn frá stúlkunni. Hún hlaut alvar­legan áverka á hjarta og fór í hjarta­stopp á Skúla­götu þar sem hnoðað var í hana lífi. Bryndís Klara lést af sárum sínum, tæpri viku eftir árás­ina. Hún var aðeins sautján ára.

For­ráða­menn drengs­ins voru hand­teknir á menn­ing­arnótt, grun­aðir um að hafa komið sönn­un­ar­gögnum undan við rann­sókn máls­ins. Fólkið er grunað um hylm­ingu. Þau sendu árás­armann­inn í sturtu eftir heim­kom­una.  Blóðug föt hans voru sett í þvotta­vél og hnífnum sem not­aður var við ódæð­is­verkið var komið undan. Einnig laug fólkið til um atburða­rás­ina í skýrslu­tökum. Í þætt­inum segir að lög­regla hafi fundið hníf­inn í bak­poka í skott­inu á bif­reið for­ráða­manna ódæð­is­manns­ins.

Mál for­ráða­mann­anna var sent til hér­aðs­sak­sókn­ara sem felldi það niður vegna fjöl­skyldu­tengsla við dreng­inn. Slíkt er ekki refsi­vert þegar um er að ræða nána vanda­menn. Birgir á erfitt með að skilja ákvörðun fólks­ins að reyna að fela glæp­inn.

„Ég skil það en skil það samt ekki. Ég hefði ekki brugð­ist svona við,“ sagði Birgir Karl í Kompási.

Hnífa­mað­ur­inn hefur ekki verið nafn­greindur. Í Kompási var upp­lýst að hann hefði játað á sig mann­dráp. Mál hans er fyrir dóm­stólum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð