Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Dagur er hugsi yfir alþjóðamálum: „Hvernig ætlum við að bregðast við?“

Dagur B. Eggertsson.
Dagur B. Egg­erts­son.

Dagur B. Eggertsson segir ótrúlega tíma vera í alþjóða­málum í augna­blikinu og veltir fyrir sér hvernig Ísland muni bregðast við stöðunni.

Þing­maðurinn Dagur B. Eggertsson gerir stöðuna á alþjóða­sviðinu að umtals­efni í nýrri Facebook-færslu en þar veltir hann fyrir sér hvernig best sé fyrir Íslandi að bregðast við breyttri sviðsmynd, nú þegar Donald Trump er tekinn við stjórn Banda­ríkjanna.

„Það eru ótrúlegir tímar í alþjóða­málum – hvernig metum við stöðuna og hvernig ætlum við að bregðast við?“ segir Dagur í upphafi færslunnar og heldur áfram:

„Nýr varnarmála­ráðherra Banda­ríkjanna gaf í fyrradag yfir­lýsingar um Úkraínu sem allir bandamenn Úkraínu hljóta að vera hugsi yfir, svo ekki sé meira sagt. Bandaríkja­forseti fylgdi í kjölfarið með símtali við Pútin, og svo Zelenskí. Evrópu­sambandi brást strax við og kallaði eftir sæti við borðið í væntanlegum friðar­viðræðum. Sjö stærstu Evrópu­löndin, þar á meðal Bretar voru með í för. Þessir viðburðir hafa tvímæla­laust fært Breta og ESB nær hvort öðru.“

Dagur segir svo frá því að varnarmála­ráðherrar NATO-ríkja muni hittast á öryggis­ráðstefnu í Muchen í Þýska­landi en þar verða þær Þorgerður Katrín utan­ríkis­ráðherra, Kristrún forsætis­ráðherra og Þórdís Kolbrún, fyrrum utan­ríkis­ráðherra, meðal þátt­takenda. „Eftir helgi hefst svo fundur þingmanna­vettvangs NATO, þar sem ég fer fyrir sendi­nefnd Alþingis Íslendinga.“

Þá segir Dagur það merkilegt hvað varnar- og öryggismál voru „gegnum­gangandi áherslu­atriði alls staðar í umræðunni á Alþingi í gær“.

Segist hann hafa fengið tækifæri til að útskýra á þinginu hvað þingmannavettvango Nato væri.

„Ég fékk tækifæri til að fara yfir hvað þingmanna­vettvangur NATO væri en ekki síður lýsa þeirri ótrúlegu upplifun að hafa verið í nánum samskiptum við borgar­stjóra Eystrasaltsríkjana og Norður­landa í gegnum undan­farin ár sem litast hafa af innrás Rússa í Úkraínu. Þar höfum við séð hraðari breytingar í viðhorfum til varnar- og utan­ríkismála en nánast nokkurn tímann áður. Nýtt öryggismat og mögulegar sviðs­myndir sem leyni­þjónusta Danmerkur birti í gær undir­strikar að þessi mál og nýtt stöðumat er að breytast hratt og getur breyst hratt. Og Ísland og Alþingi þarf að vera vakandi fyrir þessu og opið fyrir að endur­hugsa mjög margt, á nýjum grunni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

„Við getum ekki endalaust treyst á útsjónarsemi, fórnfýsi og fagmennsku heilbrigðisstarfsfólks til að bæta upp skort á fjármagni.“
Pólitík

„Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Innlent

Biðja um svör eftir að hundar urðu kettinum þeirra að bana

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Fanginn missti heimild til samfélagsþjónustu og fékk ekki að ljúka afplánun á Vernd.

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur