Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Indriði býr einn á Skjaldfönn: Ég var hálfgerður hippi, safnaði hári og átti vinkonur

Indriði býr einn á Skjaldfönn: Ég var hálfgerður hippi, safnaði hári og átti vinkonur
Indriði Aðal­steins­son, bóndi á Skjald­fönn við Ísa­fjarð­ar­djúp. Mynd: Reynir Trausta­son.

Gestur Mann­lífs­ins að þessu sinni er Indriði Aðal­steins­son bóndi á Skjald­fönn við Ísa­fjarð­ar­djúp. Búskapur hefur verið á Skjald­fönn í tæp 200 ár í beinan karl­legg frá Ólafi Jónssyni frá Hraundal, sem hóf þar búskap árið 1826. Í dag býr Indriði einn á Skjald­fönn og unir hag sínum vel.

Indriði lýsir búskapnum, ófyr­ir­sjá­an­legu veð­ur­fari og snjó­flóðum. Hann hafi meðal ann­ars átt fótum fjör að launa í ágætu veðri þegar vind­hrafnar söfn­uð­ust við jökul­inn. Þegar hann var tólf ára kom faðir hans inn og kall­aði upp að það hefði fallið snjó­flóð á hrúta­húsið. Hann fór þá út og hras­aði fljót­lega um eitt­hvað í snjónum. Það reynd­ist dauður hrútur með lapp­irnar upp í loft. Skömmu síðar heyrði hann skot dynja sem honum þótti und­ar­legt því eng­inn annar var á svæð­inu og hann hafði enga skot­hvelli heyrt þann dag­inn. Er hann leit svo upp að fjalls­brún­inni sá hann svarta sprungu þar sem íshellan þar hafði losnað og stefndi að honum. Íshellan bar hann með sér niður í kjarrið en þar stóð hann fastur.

Indriði Aðal­steins­son á Skjald­fönn í eld­hús­inu heima.

Hann vildi ekki vera skrif­aður fyrir búskapnum og telur sig hafa verið hálf­gerðan hippa; safn­aði hári, fór á dans­leiki og átti vin­konur. Hann tók svo við búinu um 1980. Í dag er hann 82 ára og hefur nokkrar áhyggjur af að búskapur gæti lagst af.

Indriði er þekktur hag­yrð­ingur og færir okkur þessa:

Bjarga verður bænda­stétt,

býsna gott það væri.

Svo lands­menn geti á grillið sett,

gæða­hrygg og læri.

Árétta það enn á ný,

og ei má gleyma hinu,

Að landið fari ekki í

órækt hrís og sinu,

Þegar ekki ullin er góð,

er okkar skjól og fengur.

Varla mun þá þessi þjóð,

þrauka mikið lengur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu