Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Skotinn af smástelpu á Svalbarðasvæðinu: ,,Hún var einn og fimmtíu og 46 kíló“

Skotinn af smástelpu á Svalbarðasvæðinu: ,,Hún var einn og fimmtíu og 46 kíló“

Gestur Sjóarans að þessu sinni er Hús­vík­ing­ur­inn Eiríkur Sig­urðs­son, skip­stjóri á Reval Viking.

Eiríkur var skip­stjóri á Hágangi þegar norsk frei­gáta skaut á skipið þegar það var við veiðar á Sval­barða­svæð­inu. Skipið var skráð í Mið-Amer­íku­rík­inu Belís sem á hlut að Sval­barða­sátt­mál­anum. Norðmenn fara með stjórn á Sval­barða­svæð­inu og vildu ekki sjá þessi erlendu skip þarna en Eiríkur og hans menn vildu ekki láta þá kom­ast upp með að bola sér í burtu.

Norð­menn­irnir voru meðal ann­ars búnir að koma sér upp klippum til að klippa aftan úr þeim trollin, álíkar þeim sem not­aðar voru á Breta í þorska­stríð­unum.

,,Það tókst nú ekk­ert hjá þeim, þetta voru svo miklir klaufar, kunnu ekk­ert á þetta en svo til að stríða þeim þá slök­uðum við bara hler­unum út en engu trolli, það voru bara grand­arar á milli hler­anna. Þeir fóru fyrir aftan okkur og voru að reyna að klippa því þeir héldu nátt­úru­lega að við værum bara á togi en svo end­aði með því að við nenntum þessu ekki og hífðum trollið upp. Það brut­ust alltaf út svaka­leg fagn­að­ar­læti um borð í frei­gát­unum því þeir sá nátt­úru­lega að það komu engin troll! En trollin voru allan tím­ann uppi á dekki bara.“

Eitt sinn þegar þeir voru við veiðar á Leir­dýp­inu, skammt undan land­helgi Noregs kom ein frei­gátan siglandi og þeir ákváðu að hífa í hvelli. Þegar hler­arnir voru komnir upp var fullt af fiski í troll­inu sem þá flaut fyrir aftan skipið. Frei­gátan sendi þá út létt­bát­inn með smærri gerð af klippum og ætl­uðu að reyna að klippa á pok­ann og rífa hann í tætlur.

Þegar létt­bat­inn var að bera að garði leist Eiríki ekk­ert á blik­una, kall­aði á kall­ana niðri á dekki að taka til spúlslöng­una og reyna að spúla þau í burtu. Báturinn hörf­aði um stund­ar­sakir en sneri svo aftur. Þá tók 150 kílóa, tveggja metra hár stýri­maður Eiríks, Anton Ingvason frá Dalvík, sig til og óð aftur í skut með hagla­byssu. ,,Hann stóð þarna víga­legur eins og Rambó með hagla­byss­una og reikn­aði með að það myndi duga; hann ætl­aði nátt­úru­lega aldrei að skjóta nokkurn mann!“

,,Hann ætl­aði bara að hræða þá. Það dugði samt ekki neitt þannig að hann skaut einu skoti, hel­vítis mað­ur­inn! Og það var nú ekki mjög vin­sælt!“

Eiríkur lítur svo á að skotið hafi farið of nálægt bátnum en aldrei þó þannig að hann ætl­aði að fara að hitta neinn. Norð­menn­irnir urðu skilj­an­lega mjög hræddir og hörf­uðu til baka um borð í frei­gát­unua.

Skip­herr­ann kall­aði þá á Hágangi, gerði kröfu um að skipið myndi stoppa og hann myndi senda menn um borð til að taka við stjórn­inni. Eiríki leist nú ekk­ert á það og setti þá á fulla ferð til Íslands óviss um hvort hann myndi svo sem lenda þar eða ein­hvers­staðar ann­ars­staðar. Þegar þeir voru búnir að keyra í sex til átta klukku­stundir fór skip­stjóri frei­gát­unnar að hóta því að stoppa þá með öllum ráðum og jafn­vel skjóta á þá ef ekk­ert annað dygði. Eiríkur lét ekki segja sér það og sagð­ist myndi halda áfram.

Norð­menn­irnir sigldu þá alveg upp að Hágangi og til­kynnti honum að hann myndi skjóta og bað Eirík að tryggja það að það væru engir menn í vél­ar­rúm­inu því þangað ætl­aði hann að skjóta. Eiríkur sagði honum þá að það væri alfarið á hans ábyrgð og hann ætl­aði ekk­ert að tryggja það að það væru ekki menn að störfum í skip­inu.

Skip­stjóri frei­gát­unnar lét þetta ekki stoppa sig og það end­aði með því að hann skaut tvisvar á skipið en Eiríkur lýsir því sem gríð­ar­legum höggum þegar skotin hæfðu skipið. Eftir seinna skotið kall­aði Eiríkur yfir og bað þá að hætta að skjóta því hann vildi skoða skemmd­irnar og þeir sam­þykktu að skjóta ekki aftur fyrr en Eiríkur væri búinn að kalla til þeirra aftur.

Skotin skildu eftir sig tvö hnefa­stór göt á skip­inu, rétt fyrir ofan sjólínu. Skot­markið hafði greini­lega átt að vera stýr­is­vélin en hefði frei­gátan hæft hana væru þeir úr leik.

Eiríkur fór þá aftur upp í brú, kall­aði yfir til frei­gát­unnar, útskýrði stöð­una og sagð­ist ætla að halda áfram og þá var skotið einusinni til við­bótar. Þá átt­aði Eiríkur sig á því að þetta gengi ekki neitt og stopp­aði því skip­stjóri frei­gát­unnar var búinn að hóta því að hann myndi sökkva skip­inu.

Vopnaðir dátar komu næst um borð og hertóku skipið og því svo siglt til hafnar í Tromsö þar sem Eiríkur og stýri­mað­ur­inn voru kærðir fyrir ofbeldi og fisk­veiði­brot sem end­aði með að þeir voru settir í fang­elsi; Eiríkur yfir nótt og stýri­mað­ur­inn með hagla­byss­una nokkrum dögum lengur.

Þeir þurftu svo að fara aftur til Noregs og vera við­staddir rétt­ar­höld þar sem þeir hittu hluta áhafn­ar­innar en þar kom það Eiríki á óvart hver skyttan hefði verið.

,,Það var svo­lítið gaman að ég komst að því að skyttan var rúm­lega tví­tug stelpa! Ég sá hana! Hún var svona kannski einn á fimm­tíu á hæð og 46 kíló eða eitt­hvað!“

Í við­tal­inu rekur Eiríkur sögu sjó­fer­ils síns. Hann fór að fara til sjós um ferm­ing­ar­aldur en í dag stýrir hann tog­ara sem dregur allt að fjórum trollum í einu.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér í spil­ar­anum en einnig er hægt að hlusta á alla þætti Sjóarans á Spotify hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Menning

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar