Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Hjólreiðafélag Akureyrar -njótum íslenskrar náttúru án þess að spilla henni

Hjólreiðafélag Akureyrar -njótum íslenskrar náttúru án þess að spilla henni
Mynd tekin af vef­síðu HFA.

Á Akureyri ríkir mikil og sterk hjól­reiða­menn­ing, þökk sé Hjól­reiða­fé­lagi Akur­eyrar (HFA), en félagið heldur utan um mót, keppnir, nám­skeið, æfingar og stuðlar að upp­bygg­ingu og við­haldi hjóla­leiða á Akureyri. Hjól­reiða­fé­lagið hefur það að mark­miði að almenn­ingur geti notið nátt­úr­unnar á reið­hjólum án þess að fal­lega íslenska nátt­úran spillist, og er það vel.

Fyrir ell­efu árum, nánar til­tekið, 2. maí árið 2012, var Hjól­reiða­fé­lag Akur­eyrar stofnað í þeim til­gangi að efla hjól­reiðar á Akureyri og í frá­bær­lega fal­legu nágrenni bæj­ar­ins. Einnig kynnir Hjól­reiða­fé­lag Akur­eyrar fyrir áhuga­sömum hjól­reiðar sem jákvæða hreyf­ingu og glæða áhuga almenn­ings á gildi þeirra. Þá stendur félagið fyrir góðri og öfl­ugri fræðslu og for­vörnum er snúa að bættum hjól­reiða­sam­göngum á Akureyri og í nær­sveitum.

Mark­miðið með stofnun Hjól­reiða­fé­lags Akur­eyrar var og er að efla hjól­reiðar almennt; halda mót og keppnir; halda úti æfingum og stuðla að upp­bygg­ingu hjóla­leiða í bæj­ar­landi Akur­eyrar, sem og að gefa almenn­ingi betri kost á að kynn­ast og njóta nátt­úru þess þegar ferð­ast er um á reið­hjólum.

Mynd/ Ármann Hinrik

Vel er staðið að öllu hjá Hjól­reiða­fé­lagi Akur­eyrar, enda er eitt af mark­miðum þess að auð­velda almenn­ingi aðgengi að hjóla­leiðum í bæj­ar­land­inu gull­fal­lega, eftir því sem unnt er án þess að glæsi­leg nátt­úran fyrir verði fyrir skaða. Félagið veitir einnig góða fræðslu um slóða, svæði, leiðir, sögu og mann­líf svæð­is­ins.

Hjól­reiða­fé­lagi Akur­eyrar var tekið opnum örmum strax frá stofnun þess og hefur starf­semin farið vax­andi með ári hverju; segja má að í kjöl­far stofn­unar félags­ins hafi orðið vit­und­ar­vakn­ing hvað varðar hjól­reiða­menn­ingu á Akureyri og í nágrenni bæj­ar­ins.

Nefna má að skrán­ing í Hjól­reiða­fé­lagið fer í gegnum Nóra-kerfið og til að skrá sig í félagið eða end­ur­nýja árgjald þarf að fara á þessa slóð hér: iba.felog.is. Þar þarf að skrá sig inn með raf­rænum skil­ríkjum og skal ýta á hnapp­inn „Skráning í boði.“ Þá birt­ist listi yfir öll þau nám­skeið sem í boði eru á vegum félags­ins. Þess má geta að félags­skír­teini eru raf­ræn og verða send á félags­menn í tölvu­pósti á það net­fang sem skráð er í Nóra.

Þetta frá­bæra félag á Akureyri hefur gert góða hluti núna í tæpan ára­tug og starf­semin er alltaf að efl­ast og dafna; hvetur Mannlíf alla til að hafa sam­band við félagið eigi það leið um hina stór­kost­legu nátt­úrupara­dís sem Akureyri er sem og nær­sveitir bæj­ar­ins. Það er ekki ónýtt að ferð­ast um svæðið á hjól­reiða­fáki fráum fram um veg, mót fjalla­hlíðum háum þar sem golan kyssir kinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Kynning

Efni unnið í samstarfi við auglýsendur