Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Ráðgátan um Sofiu á Selfossi: „Hún var fyrirmynd“

Bróðir og móðir Sofiu, sem fannst látin hjá kærasta sínum á Selfossi, lýsa ótrú­legri breyt­ingu á „nátt­úru­barni“ og „góðri systur“.

Ráðgátan um Sofiu á Selfossi: „Hún var fyrirmynd“
Starfaði í World class á Sel­tjarn­ar­nesi Sofia Kolesnikova flutti til Íslands 2010 og gekk í Aust­ur­bæj­ar­skóla. Hún fór í sam­band með kærasta sem átti eftir að verða afdrifa­ríkt.

Fjöl­skylda Sofiu Kolesnikovu, sem fannst látin á Selfossi við tor­kenni­legar aðstæður hjá kærasta sínum, lýsir ráð­gát­unni sem hverf­ist um and­lát hennar. Sofia, sem hafði flutt til Íslands á barns­aldri árið 2010, hafði mikil áhrif á líf fjöl­skyld­unnar. Hún bjó við fátækt fyrstu árin á Íslandi, en Sofia hafði gengið í Aust­ur­bæj­ar­skóla og starf­aði síðan meðal ann­ars í World Class á Sel­tjarn­ar­nesi.

Það sem fjöl­skyld­unni og lög­reglu finnst tor­tryggi­legt er að þegar Sofia lést hafði hegðun hennar gjör­breyst. Fjár­hags­lega ábyrga og heilsu­m­eð­vit­aða unga konan var skuldum vafin og greind­ist með eit­ur­lyf í blóði. Lög­regl­una grunar að hún hafi orðið fyrir nauð­ung­ar­stjórnun kærastans sem var á vett­vangi þar sem hún lést. Þetta kemur fram í þriggja þátta seríu Þóru Tóm­as­dóttur fjöl­miðla­konu í þætt­inum Þetta helst á Rás 1.

„Hún var mjög góð systir,“ segir bróðir hennar, Deivs Kolesnikovs, í við­tali við Þóru á Rás 1. Deivs lýsir karakter Sofiu, sem rímar illa við aðstæður hennar fyrir frá­fallið.

„Ég var alveg með mína erf­ið­leika. Lenti í erf­iðum vina­hópum. Á þeim tíma hjálp­aði hún mér að sjá vina­hóp­inn sem ég var í, að hann hefði verið vit­laus. Mjög snemma byrj­uðum við að tala um fram­tíð­ar­mark­mið. Hún mót­aði mig ofsa­lega mikið þar. Með íbúð­ar­kaupum og með að ná lengra, ekki bara að fara í ruglið af því að þetta er erfitt.“

Varðandi eit­ur­lyf og áfengi sagði Sofia við bróður sinn, að hans sögn: Þú getur alveg prófað, en ég mun aldrei gera það.

„Hún var rosa­leg fyr­ir­mynd. Hún dró mig úr þung­lynd­inu fyrstu árin. Hún hjálp­aði mér að sjá að það er til fram­tíð. Þú getur alveg haft áhrif á þetta. Þetta er erfitt núna, en þú getur alveg gert eitt­hvað í þessu.“

Það var systkin­unum mik­il­vægt að kom­ast upp úr fátækt. Þau voru enn með sár eftir erf­iðar aðstæður og missi í Lett­landi. Faðir systk­in­anna lést í Lett­landi úr krabba­meini og ákvað því Valda Kolesnikova, móðir Sofiu, að flytja til Íslands, þar sem systir hennar bjó. Í sept­em­ber 2010 komu þau til Íslands og bjuggu hjá systur hennar.

„Við komum frá Lett­landi og fluttum af því að það var svo rosa­lega erfitt,“ segir móðir hennar, Valda Kolesnikova.

„Hún var mikið nátt­úru­barn. Elskaði, nátt­úru, elskaði blómin, elskaði garð­inn.“
Valda Kolesnikova, móðir Sofiu

Valda lýsir Sofiu dóttur sinni í sam­tali við Rás 1. „Hún var mjög hlý. Hún var mikið nátt­úru­barn. Elskaði, nátt­úru, elskaði blómin, elskaði garð­inn. Svo mikið úti í garð­inum og í nátt­úr­unni. Elskaði að veiða fisk.“

Þannig var Sofia það barn, af hennar fimm afkvæmum, sem hún hafði minnstar áhyggjur af.

„Hún var að passa alla fjöl­skyld­una, til að eng­inn væri í veik­indum. Hún var svo hrædd um að ein­hver færi í burtu, ein­hver myndi deyja aftur.“

Sofia var feimin og örlítið kvíðin, með félags­kvíða. Á síð­ustu mán­uðum lífs­ins leit­aði hún til lækna vegna heilsu­brests. Sofia var upp­tekin af heilsu­sam­legum lífs­stíl, en síð­ustu mán­uði ævinnar breytt­ist hegð­unin. Eftir að hún lést voru tekin sýni úr hári hennar sem gáfu til kynna að hún hefði neytt fíkni­efna síð­ustu mán­uð­ina. Þetta var í algerri and­stöðu við gildi hennar og hegðun fram að því. Um leið ein­angr­aði hún sig frá fjöl­skyld­unni.

Maðurinn sem hún hafði kom­ist í kynni við var staddur á vett­vangi þar sem hún lést á Selfossi í apríl 2023. Hann hafði eytt gögnum af vett­vangi. Óljóst var hvort hún hefði verið kyrkt eða lát­ist af völdum fíkni­efna. Maðurinn fannst lát­inn í Taílandi áður en hér­aðs­sak­sókn­ari tók afstöðu til ákæru á hendur honum. Málið verður aldrei upp­lýst að fullu. Eitt er þó ljóst að hegðun hennar hafði gjör­breyst í nýju sam­bandi. Hún breytti mat­ar­venjum, tók eit­ur­lyf og tók lán. Fjár­munir runnu frá henni og yfir til kærastans.

„Þegar ég heyrði kókaín og hún: Bara kjaftæði. Ef þú spyrð alla sem þekktu hana þá hefur eng­inn séð hana drekka og eng­inn séð hana taka neitt. Maður hugsar bara, það er hel­víti ólíkt henni,“ segir Deivs, bróðir hennar, í þætt­inum Þetta helst á Rás 1. Í næsta þætti kemur fram að kærast­inn var í sam­bandi með fleirum þegar and­látið bar að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð