Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stefán Máni segir biskup hvetja landsmenn til að styðja barnamorð

Hnýtir í predikun Guðrúnar Karls

Stefán Máni segir biskup hvetja landsmenn til að styðja barnamorð
Guðrún Karls Helgu­dóttir Biskup Íslands hvatti til afstöðu með börnum og friði. Mynd: Biskupsembættið

Stefán Máni Sig­þórs­son rit­höf­undur skaut fast á biskup Íslands, Guðrúnu Karls Helgu­dóttur, í færslu á sam­fé­lags­miðl­inum X.

Biskup Íslands, Guðrún Karls Helgu­dóttir hvatti lands­menn til að taka afstöðu með börnum, sak­lausu fólki og friði í predikun í Dóm­kirkj­unni í fyrra­dag. Minntist hún sér­stak­lega á stríðs­glæp­ina sem framdir eru á Gaza þar sem börn eru drepin í umvörpum. Þá minnt­ist hún einnig á árásir á almenna borg­ara í Úkraínu og hung­ur­dauða í Súdan.

Rit­höf­und­ur­inn Stefán Máni Sig­þórs­son lét predikun bisk­ups­ins fara í taug­arnar á sér og skrif­aði stutta en hnit­mið­aða færslu á X, sem hljóð­aði eft­ir­far­andi:

„Hvatti lands­menn til þess að styðja hryðju­verk, mann­rán, morð á konum og börnum, við­ur­styggð, íslam, öfga og bar­barisma.“

Guð­laugur nokkur svarar rit­höf­und­inum og lætur hann heyra það.

„Ég minni á að Ísrael hefur ALLTAF myrt langt um fleiri sak­lausa borg­ara og börn en Hamas - hvert ein­asta ár frá stofun Hamas. Þetta er vel skráð og algjör­lega aug­ljóst öllum þeim sem eru ekki bein­línis ras­istar og múslima­hat­arar (eins og einn leið­in­leg­asti rit­höf­undur Íslands er).“

Stefán Máni svar­aði að bragði: „Ekki tala svona um Hallgrím Helgason“.

Guð­laugur svar­aði aftur: „Mér dettur það ekki í hug. Hann er þó amk þokka­lega frum­legur og vel skrif­andi.“

Stefán Máni vakti athygli í byrjun mán­aðar þegar hann tróð sér inn í umræð­una um hina geisi­vin­sælu þætti Adolescence, sem fjalla um ofbeldi meðal ung­lings­drengja í Bret­landi en rit­höf­und­ur­inn sagð­ist ekki hafa horft á þætt­ina því þeir væru „anti-white“.

Byggði hann þá skoðun sína lík­lega á þeim mis­skiln­ingi margra á hægri vængnum, að þætt­irnir væru byggðir á morð­máli þar sem dökkur drengur myrti þrjár ungar stúlkur í Southport síð­asta sumar og að kyn­þætti ger­and­ans hafi verið breytt við gerð þátt­anna. Hið rétta er hins vegar að þætt­irnir byggja á fjöl­mörgum ofbeld­is­málum sem komið hafa upp í Bret­landi á und­an­förnum árum. Þá var byrjað að taka upp þátta­röð­ina áður en stungu­árásin í Southport átti sér stað.

Stefán Máni hefur nú eytt X-færslu sinni um biskup Íslands en yfir átta þús­und manns hafði séð hana áður en hún hvarf.

Færsla Stefáns Mána
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ